Sigmundur Davíð Gunnlaugsson segist vera meiri „krútt“ en Nigel Farage, leiðtogi breska Reform-flokksins. Þetta kom fram í léttum en beittum orðaskiptum í Spursmálum, þar sem rætt var um stöðu gömlu stjórnmálaflokkanna, þróun Sjálfstæðisflokksins og hvort Miðflokkurinn eigi sér pólitíska samsvörun í Bretlandi.
Gömlu flokkarnir gleymi rótunum
Í Spursmálum á föstudag var Sjálfstæðisflokkurinn borinn saman við breska Íhaldsflokkinn, sem sagður var hafa misst sambandið við uppruna sinn og þróast í átt að kerfisflokki. Sigmundur Davíð segir að svipuð þróun sjáist hér á landi.
„Breski Íhaldsflokkurinn, elsti stjórnmálaflokkur í heimi, ráðandi í stærsta heimsveldi sögunnar, er núna að fjara út vegna þess að hann missti sambandið við ræturnar,“ segir hann og bætir við að flokkurinn hafi „gleymt sjálfum sér og orðið að kerfisflokki“.
Hann segir að þótt sigur Sjálfstæðisflokksins í nýliðnum sveitarstjórnarkosningum hafi verið góður, sýni það breytta stöðu flokksins að nú þyki stórsigur að fara yfir 30 prósent.
„Það að vera kominn í þá stöðu að það væri stórkostlegt að komast yfir 30% er samt ekki sögulegt miðað við að hafa náð 60% í Reykjavík,“ segir Sigmundur Davíð.
„Er Sigmundur Davíð Nigel Farage okkar Íslendinga?“
Umræðan tekur svo óvænta beygju, spurt er hvort Sigmundur Davíð sé nokkurs konar íslensk útgáfa af Nigel Farage. Guðrún Hafsteinsdóttir segir að hún telji víst að Sigmundur Davíð fylgjast með Farage.
„Ég hugsa að Sigmundur horfi nú oft á svona einhver reel og myndbönd og lesi sitt og sitt hvað eftir Nigel Farage,“ segir Guðrún.
Sigmundur Davíð svarar með óvæntum hætti: „Ég er meira krútt en hann.“
Reform og Miðflokkurinn
Í framhaldinu var rætt um breska Reform-flokkinn og tengsl hans við Miðflokkinn. Aðspurður hvort hann horfi til þeirra segist Sigmundur Davíð fremur telja að áhrifin geti hafa legið í hina áttina.
„Ef ég vissi ekki betur þá væru þeir að horfa til mín,“ segir hann.
Hann segir Miðflokkinn hafa talað lengi fyrir málum sem breski Reform-flokkurinn hafi síðar náð árangri með.
„Ég er búinn að vera að tala fyrir öllum þessum málum sem hafa skilað þeim árangri frá því að Nigel Farage var, ég veit ekki, að vinna í banka eða einhvers staðar annars staðar,“ segir Sigmundur Davíð.
„Frumkvöðlar“ í pólitík
Sigmundur Davíð segir þó ekki að Reform sé systurflokkur Miðflokksins. Hann segir frekar að ákveðin líkindi séu í stjórnmálaþróuninni, þar sem gömlu flokkarnir hafi misst sjónar á prinsippum sínum.
„Gömlu flokkarnir hafa gleymt því fyrir hvað þeir standa og gleymt prinsippunum sínum,“ segir hann. Guðrún skýtur þá létt á hann og segir að hann hljómi eins og Miðflokkurinn sé „æðsta pólitíska afl í heimi“.