Scooter Braun umboðsmaður lét afar vel af kærustunni, leikkonunni Sydney Sweeney, í nýju viðtali í hlaðvarpinu Second Thought. Hann segir hana vera „óvenjulega konu.“
Sweeney er þekktust fyrir hlutverk sitt í þáttunum Euphoria, staðfesti samband þeirra opinberlega á samfélagsmiðlum fyrr í þessum mánuði. Braun er 44 ára.
„Ég hef kynnst óvenjulegri konu, góðhjartaðri, örlátri, klárri, einlægri og jarðbundinni,“ sagði hann í viðtalinu. Hann bætti við að sambandið væri eitt stærsta og ánægjulegasta óvænta atvik lífs síns.
Þegar hann var spurður hvort hann horfði á Euphoria svaraði hann í léttum tón að hann væri vissulega að fylgjast með þáttunum og að hann væri kannski hlutdrægur en teldi að „ákveðin leikkona“ hefði skilað frábærri frammistöðu.
Fyrstu fréttir um samband þeirra komu fram í september 2025. Síðustu mánuði hefur meiri alvara færst í leikinn samkvæmt heimildarmönnum parsins.
Braun gerði sambandið opinbert á samfélagsmiðlum þegar Braun deildi svarthvítri mynd af þeim saman.
„Heppinn andskoti,“ skrifaði hann við myndina.
Undir lok viðtalsins var Braun spurður hvað tæki við hjá honum eftir að hann hætti sem umboðsmaður árið 2024. Hann sagðist ekki vita nákvæmlega hvað framtíðin bæri í skauti sér en væri ánægður með lífið eins og það væri núna.
„Ég nýt sambandsins míns, barnanna minna, vina minna og lífsins almennt,“ sagði hann að lokum.