„Öflug hæð suður af landinu heldur áfram að stýra veðrinu og valda þrálátri vætu vestan til á landinu en miklum hlýindum fyrir austan,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Hiti verður 11-24 stig í dag, áfram hlýjast austanlands en skýjað með köflum. Búast má við að veðrið þar haldist þar til í seinni hluta vikunnar. Þá hörfar hæðin til suðurs og lægð hreiðrar um sig norðaustur af landinu sem beinir mun svalara lofti úr norðri yfir landið. Þar af leiðandi á að kólna talsvert á Norður- og Austurlandi á föstudag. Sunnan heiða verður áfram milt.
Rigning eða súld verður á vestanverðu landinu í dag og dálítil rigning sums staðar norðaustan til síðdegis. Seinni partinn dregur úr úrkomu. Vestlæg átt 5-15 metrar og hvassast norðvestan- og suðaustanlands.
„Það verður fagnaðarefni fyrir marga að fá að njóta sólarinnar loksins aftur vestan til á landinu um næstu helgi ef að líkum lætur,“ skrifar veðurfræðingur.
Á höfuðborgarsvæðinu verður áfram dálítil súld og úrkoma eykst síðdegis, hiti 10-13 stig. Suðvestanátt 5-10 metrar.
Búast má við svipuðu veðri á morgun en það hlýnar og birtir til sums staðar á Norðvesturlandi.