Enginn umsækjandi um starf sveitarstjóra í Langanesbyggð uppfyllti hæfniskröfur. Byggðaráð ætlar að taka sér tíma í að finna rétta manneskju í starfið.
Björn S. Lárusson, fyrrverandi sveitarstjóri í Langanesbyggð, fór á eftirlaun 1. júní og staða hans var auglýst. Sex umsóknir bárust.
Fjórir drógu umsókn sína til baka fyrir fund byggðaráðs Langanesbyggðar þar sem umsóknirnar voru teknar fyrir. Enginn umsækjenda uppfyllti þær kröfur sem gerðar eru til sveitarstjóra.
„Það kom okkur frekar á óvart að fá ekki fleiri umsóknir miðað við hvað er í gangi í kringum okkur en við erum frekar afskekkt. Við erum að kanna að áhuga hjá nokkrum sem sóttu annars staðar á Norðurlandi sem okkur þótti ekki ólíklegir kandídatar. Það verður ákveðið aftur fyrir næstu helgi hvort við auglýsum aftur,“ segir Sigurður Kristinn Ragnarsson, formaður byggðaráðs Langanesbyggðar.
Fráfarandi sveitarstjóri var með 1,4 milljónir króna í mánaðarlaun og því gæti starfið þótt eftirsóknarvert. Enginn asi er þó í ráðningarferlinu, segir Sigurður.
„Við erum með skrifstofustjóra sem sér um daglegan rekstur á meðan og það er ekkert mjög aðkallandi að ráða nýjan. Við ætlum að gefa okkur góðan tíma í það.“
Ætla ekki að draga úr kröfunum
Ekki verður dregið úr kröfum enda mikil uppbygging fram undan í Langanesbyggð og atvinnuástand stöðugt, segir Sigurður.
„Kröfurnar sem við gerum til starfsins eru ekki miklar þannig lagað. Þetta er bara öðruvísi starf en í stærri sveitarfélögum. Menn þurfa að hafa svona breiðari reynslu eða þekkingu, það er til dæmis enginn fjármálastjóri á skrifstofu og menn þurfa að vera vel inni í fjárhagsbókhaldi og áætlunum og þess konar. Því miður var bara enginn af þessum, þessum litla hóp sem sótti um, sem uppfyllti þær kröfur.“