Tveir karlar, sem voru handteknir vegna alvarlegrar líkamsárásar á Austurvelli í miðborginni í gær, voru látnir lausir úr haldi í dag.
Hníf var beitt við árásina og karlmaður var fluttur á bráðamóttöku vegna hennar.
„Þetta var ekki eins alvarlegt og leit út fyrir í fyrstu,“ segir Bylgja Hrönn Baldursdóttir, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, innt eftir því hve alvarlega áverka hann hlaut.
Málið er ekki rannsakað sem tilraun til manndráps en Bylgja segir að hópslagsmál hafi farið úr böndunum. Hún segir að meintur gerandi sé ungur að aldri.