Enginn er í gæsluvarðhaldi vegna innbrotsins í minkabúið í Dalsbú í Mosfellsbæ í lok síðasta mánaðar. Lögregla hefur handtekið og yfirheyrt einstaklinga sem hefur síðan verið sleppt.
Þetta staðfestir Hjördís Sigurbjartsdóttir, stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar á Vínlandsleið. Hún vildi ekki gefa upp hversu margir hefðu verið yfirheyrðir í tengslum við málið. Rannsóknin væri opin og unnið væri að því að fara yfir síma- og tölvugögn. Lítið væri hægt að gefa upp um rannsóknina að svo stöddu.
Nokkur þúsund minkar sluppu úr minkabúinu Dalsbúi í Mosfellsdal þann 29. júlí. Þar af sluppu nokkur hundruð dýr út í gegnum varnargirðingar í kringum búið sem voru aflífuð. Mikill viðbúnaður var í Mosfellsbæ vegna þess.
Lögregla hefur rannsakað málið undanfarinn mánuð. Þetta var í þriðja sinn á stuttum tíma sem dýr sleppa úr búi í grennd við höfuðborgarsvæðið. Brotist var inn í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í maí og hænsna- og kalkúnabúið á Reykjum í Mosfellsbæ í byrjun júní. Þau mál eru einnig til rannsóknar hjá lögreglu. Þar eru til skoðunar brot á lögum um dýravelferð, innbrot og eignaspjöll.
Lögreglan hefur ekki staðfest hvort málin þrjú tengist. Sams konar bréf voru skilin eftir á svínabúinu og kjúklingabúinu. Slíkt bréf var ekki skilið eftir á minkabúinu.
Ásgeir Pétursson, minkabóndi í Dalsbúi, segir í samtali við fréttastofu að hann hafi ekkert heyrt um rannsókn málsins nema það sem fram hefur komið í fréttum. Hann segir að margir séu eðlilega slegnir yfir atburðunum.