Aðeins er rétt rúmt ár síðan fyrsta skóflustungan var tekin að nýjum leikskóla í Hagahverfi á Akureyri. Verkið hefur unnist hratt og eru 3 deildir í skólanum komnar í fulla starfsemi þó að enn sé nokkuð í að húsið og útisvæði verði fullbúin.
Akureyrarbær hefur leyst biðlista eftir leikskólaplássi á undanförnum árum með því að opna leikskóladeildir inni í skólarýmum. Nú sjá þau fram á að skólarnir fái rýmin sín til baka og biðlistar tilheyri fortíðinni.
Bærinn hefur haft það að markmiði að öll börn sem séu orðin 12 mánaða 31. ágúst ár hvert fái leikskólapláss. Bærinn hefur aðeins tekið börn einu sinni á ári inn í leikskóla. Þar af leiðandi eru sum börn orðin tæplega 2 ára þegar þau fá pláss, séu þau fædd að hausti. Nú er til skoðunar hvort það sé svigrúm til að taka inn börn tvisvar á ári.