Pedro Sanchez, forsætisráðherra Spánar, segir ekkert gefa til kynna að stjórnvöld í Marokkó hafi átt nokkurn þátt í því þegar þúsundir flóttamanna ruddust inn í Ceuta, landsvæði Spánar í Norður-Afríku, undir lok júlí.
Hann sagði í viðtali við útvarpsstöðina Cadena Ser að enn væri unnið að rannsókn á því hvers vegna og hvernig fólk komst þúsundum saman yfir landamærin milli Marokkó og Ceuta.
Sanchez sagði að mikið hefði verið um falskar upplýsingar eftir þetta, flestar kæmu þær frá öfgahægrimönnum.
„Eftir 30. og 31. júlí var mikið um orðróma og rangar upplýsingar sem var deilt af samfélagsmiðlum sem tengjast Rússlandi og Ísrael og alþjóðlegum öfgahægrihreyfingum sem nota flóttamenn alltaf til árása, ekki bara á Spán heldur líka Evrópu og til að ala á klofningi.