Ísland bætti ekki við sig nýjum Michelin-stjörnum þegar Michelin Guide Nordic 2026 var kynnt við hátíðlega athöfn í Tívolí í Kaupmannahöfn í dag. Allir þrír staðirnir hérlendis sem hafa skartað hinni eftirsóttu Michelin-stjörnu halda henni á milli ára. Það eru ÓX, Dill og Moss.
Alls hlutu níu nýir veitingastaðir eina Michelin-stjörnu og tveir nýir veitingastaðir hlutu tvær stjörnur.
Þá héldu fimm veitingastaðir á Norðurlöndum þremur stjörnum sínum, en danski veitingastaðurinn Kadeau Copenhagen hlaut þrjár Michelin-stjörnur í fyrsta sinn.
Veitingastaðirnir sem hlutu eina Michelin-stjörnu voru Akmē, Bach & Nurup, ESSE, Lille Mølle og Okê í Danmörku, Boreal í Finnlandi og Credo, Kvitnes Gård og Mirabelle by Ørjan Johannessen í Noregi. Þá hlutu Gaptrast í Bergen og Grön í Helsinki tvær Michelin-stjörnur.
Lóla bætist við í aðalúrval Michelin-handbókarinnar
Þrátt fyrir að engar nýjar stjörnur bættust við á Íslandi fékk veitingastaðurinn Lóla í Reykjavík viðurkenningu með því að bætast í aðalúrval Michelin-handbókarinnar, Main Selection, sem þykir í sjálfu sér gæðastimpill.
Lóla var eini íslenski staðurinn sem bættist í þann hóp að þessu sinni.
Samtals mælir Michelin Guide Nordic 2026 með 286 veitingastöðum á Norðurlöndum, þar af sex með þrjár stjörnur, 15 með tvær stjörnur og 78 með eina stjörnu. Auk þess fengu níu veitingastaðir nýja Bib Gourmand-viðurkenningu í ár.
Sjá nánar hér.