Framkvæmdir við endurbætur á innilauginni í Akureyrarsundlaug hófust haustið 2024. Framkvæmdin er mikil lyftistöng fyrir sundlaugina, ekki síst sundkennslu á Akureyri. Kostnaður við framkvæmdina hleypur á nokkur hundruð milljónum. Mikil ánægja er með hvernig framkvæmdin heppnaðist.
„Við erum bara búin að taka allt í nefið, flísaleggja hólf og gólf og það var allt tekið frá a til ö. Það eru komnar rennur eða rampur ofan í laugina. Við opnuðum aðeins út og það er komið gler hérna þannig þú getur séð endurnar,“ segir Gísli Rúnar Gylfason, forstöðumaður Sundlaugar Akureyrar.
Framkvæmdin setti skólasund í grunnskólum á Brekkunni örlítið úr skorðum. Ráðamenn sundlaugarinnar og sundkennarar dóu ekki ráðalausir í þessi tvö ár heldur var sund kennt í lendingarlaug rennibrautarinnar.