Franski leikarinn Pierre Deny er látinn en hann vakti heimsathygli fyrir nokkrum árum þegar hann fór með hlutverk í Netflix-þáttunum Emily in Paris. Pierre lést á mánudaginn 69 ára að aldri.
Dóttir leikarans staðfesti fréttirnar í Frakklandi að því fram kemur á vef People. Deny glímdi við ALS-sjúkdóminn sem er taugahrörnunarsjúkdómur. Dóttir leikarans sagði veikindin hafa verið skyndileg og mjög slæm.
Hann vakti mikla athygli þegar hann lék í þriðju og fjórðu þáttaröð Netflix-þáttanna Emily in Paris sem hafa notið gríðarlegra vinsælda. Þar lék hann viðskiptamanninn Louis de Léon en hann er faðir Nicolas sem er kærasti Mindy sem er vinkona Emily.
Lék í sápuóperu
Deny byrjaði að leika á níunda áratugnum og var meðal annars þekktur í Frakklandi fyrir leik sinn í þáttunum Sous Le Soleil, Une femme d'honneur og Cinq soeurs. Hann lék í meira en 300 þáttum af frönsku sápuóperunni Demain Nous Appartient á árunum 2017 til 2023. Nýlega lék hann í þáttunum Camping Paradis og Le Fil d'Ariane auk Emily in Paris.