Eftir úrslitaleik Heimsmeistaramótsins í knattspyrnu á sunnudaginn sýndi Ríkisútvarpið íslensku kvikmyndina Lof mér að falla (2018) sem hluta af kvikmyndaröðinni Íslenskt bíósumar.
Elín Sif Halldórsdóttir, sem fór með eitt aðalhlutverkanna í Lof mér að falla, birti af því tilefni myndband á TikTok um myndina og þá sérstaklega gervið sem Kristín Júlía Kristjánsdóttir gerði fyrir karakter Elínar í myndinni.
@elin_hall Lof mér að minnast #fyrirþig ♬ original sound - Elín Hall
„Þetta er „diabolical“ og eitt besta lúkk sem ég hef „serve-að“. Þetta er aldrei ekki fyndið og ennþá jafnfyndið tíu árum seinna,“ sagði Elín í myndbandinu og sýndi þar klippu af sér úr myndinni þar sem hún er með aflitað, sléttað hár, þykkan andlitsfarða og er klædd í hlébarðsmynstraðan bol og þröngar gallabuxur.
„Shoutout á lýtalækninn minn“
Sjálf sagðist Elín ekki viss hvort hún hefði hjartað í að horfa aftur á myndina. Þá hefði hún gleymt því í hvaða ástandi hún hefði verið á þessum tíma.
„Nei sko, hólý shit. Ég fór í brjóstaminnkun svona ári eftir tökur,“ sagði hún síðan.
„Ég bara gleymi því að ég var að díla við þetta. Þetta var bara lífið mitt frá því ég var svona sextán-sautján ára og þangað til ég var tvítug. Shoutout á lýtalækninn minn. Vitið þið hvað þetta var þungt? Vitið þið hvað þetta var ógeðslega mikið fyrir mér alltaf,“ sagði hún að lokum.