Grétar Stefánsson aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir að eldurinn hafi komið upp í vinnuvél á Álfsnessvæðinu.
Hann getur ekki sagt til um umfang eldsins en segir að unnið sé að því að ráða niðurlögum hans.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.
Samkvæmt upplýsingum frá Gunnari Dofra Ólafssyni, samskiptastjóra Sorpu, er um að ræða eld sem kom upp í timburhakkara á athafnasvæði Sorpu.
Fréttin verður uppfærð.
Veistu meira um málið? Áttu myndir frá brunanum eða störfum slökkviliðs? Við tökum við ábendingum hér.