Eldur kviknaði í olíuhreinsunarstöð í Leningrad-héraði í Rússlandi eftir að dróni hrapaði þar nærri. Héraðsstjóri Leningrad-héraðs, Aleksandr Drozdenko, greindi frá eldsvoðanum í færslu á Telegram. Hann sagði 42 dróna hafa verið skotna niður í héraðinu.
Kyiv Independent greindi einnig frá drónaárásinni og sagði hana hafa verið á eina stærstu olíuhreinsunarstöð Rússa, Kinef-hreinsunarstöðina í borginni Kirish.
Fjölmiðillinn greinir einnig frá árásum Úkraínuhers á vöruhús netverslunarinnar Ozon í Rostov-on-Don og á herstöð flughersins í Krasnodar Krai í nótt.