Eldsneytisverð hækkar á miðnætti þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti fellur úr gildi.
Í byrjun maí var virðisaukaskatturinn lækkaður úr 24% í 11%. Lækkunin var liður í tímabundnum aðgerðum ríkisstjórnarinnar sem mæta áttu óvissu og verðhækkunum á olíu á heimsvísu.
Sagt var frá því fyrr í mánuðinum að til umræðu hefði verið í ríkisstjórn að framlengja lækkunina. Til þess þarf samþykki Alþingis. Það kemur ekki saman fyrr en 8. september og því ljóst að framlenging, ef til hennar kemur, verður ekki samþykkt fyrr en um miðjan september hið fyrsta.