Eldri hjón hrepptu 2. vinning í EuroJackpot á dögunum sem hljóðaði upp á rúmar 336 milljónir króna. Þau keyptu miðann sinn hjá N1 við Austurveg á Selfossi.
Maðurinn fór sjálfur yfir miðann eftir að hafa heyrt að 2. vinningur hefði komið til landsins. Þegar hann sagði eiginkonunni frá vinningnum trúði hún honum ekki í fyrstu og var sannfærð um að hann væri að grínast, að því er segir í tilkynningu.
„Sögðust þegar telja sig rík“
„Hjónin sögðust þegar telja sig rík, enda eiga þau bæði mörg börn og enn fleiri barnabörn og lögðu áherslu á að það skipti þau mestu máli. Þau sögðust strax hafa ákveðið að deila gleðinni með sínum nánustu, enda gæfi það þeim enn meira að sjá börnin og barnabörnin njóta góðs af vinningnum. Barnabörnin eru ýmist að stíga sín fyrstu skref á húsnæðismarkaði eða í námi og því mun vinningurinn skipta sköpum fyrir marga í fjölskyldunni,” segir einnig í tilkynningunni.
Gat ekki komið á betri tíma
Vinningshafinn í Lottó síðasta laugardag, þegar fyrsti vinningur upp á 11 milljónir gekk út, er ung kona um þrítugt sem er með miðann sinn í áskrift. Hún er í fæðingarorlofi og sagði að vinningurinn hefði ekki getað komið á betri tíma og að hann myndi skipta fjölskylduna miklu máli.
„Stutt er á milli barna hjá henni og því ekki langt síðan hún var síðast í fæðingarorlofi. Hún segir vinninginn muni gera þeim kleift að anda léttar og skapa meira svigrúm á þessum krefjandi en dýrmæta tíma í lífinu.”
