Eldgos geta komið upp í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins
Eldgos geta komið upp í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins
📅 2026-04-21 15:30:00👁️ 2 lesið
Eldgos geta komið upp í efri byggðum höfuðborgarsvæðisins
Grafarholt, Mosfellsbær, Úlfarsárdalur, Norðlingaholt, Breiðholt, Vatnsendahverfið, Skarðshlíð og Urriðaholt eru allt hverfi sem liggja á hugsanlegum upptökum eldgosa, samkvæmt ítarlegu hættumati Veðurstofu Íslands um eldgosavá á Reykjanesskaga til langs tíma. Enn fleiri hverfi eru í hugsanlegum farvegi hraunrennslis, allt eftir því hvar gysi.
Margfalt meiri líkur eru þó á því að gosupptök verði langt ofan byggða og hraun renni aðrar leiðir en til byggða á höfuðborgarsvæðinu. Mikil óvissa er um hugsanleg gosupptök og tímasetningu eldgosa á næstu áratugum eða árhundruðum, en Veðurstofan hefur nú gert tilraun til að kortleggja hættuna. Niðurstöður hennar „styðja við það sem þegar var vitað og eru ekki að umbylta þekkingu á hvaða hraunavá steðjar að byggð og innviðum á Reykjanesskaga,“ eins og segir í kynningu Veðurstofunnar á hættumatinu.
Hættumat Veðurstofu Íslands felur ekki í sér mat á því hvað teljist „ásættanleg áhætta“ en hún kallar eftir skilgreiningum á því. Það er samfélagsleg og pólitísk spurning, enda er náttúruvá víða á Íslandi og ekki eingöngu bundin við eldgos og jarðhræringar, heldur einnig snjóflóð, sjávarflóð og aurflóð.
Nú liggur hins vegar fyrir víðtækt mat á eldgosavá á höfuðborgarsvæðinu og Reykjanesskaga austur að Hveragerði, sem Veðurstofan álítur að geti gagnast við umræðu um takmörkun áhættu með skipulagi.
„Töluverðar líkur“ á gosi skammt frá Hafnarfirði
Á höfuðborgarsvæðinu eru aðeins sveitarfélögin Seltjarnarnesbær og Kjósarhreppur alfarið innan þessara svæða sem taldar eru mjög litlar líkur á gosupptökum, auk nyrsta hluta Reykjavíkurborgar.
„Innan lands sveitarfélaganna Hafnarfjarðarbæjar og Garðabæjar eru töluverðar líkur á gosupptökum í u.þ.b. 3–4 km fjarlægð frá útjaðri byggðar,“ segir í skýrslunni.
Örskammt ofan við Voga á Vatnsleysuströnd eru líkur á gosupptökum taldar „nokkrar“ en „litlar“ undir byggðinni.
Raunar eru möguleg gosupptök, sem „litlar líkur“ eru á, undir mörgum nýjustu hverfum höfuðborgarsvæðisins. Þetta eru svæði sem liggja undir áhrifasvæði Krýsuvíkursvæðisins sem liggur allt frá Krýsuvík og norðaustur í Mosfellsdal.
Þannig nær svæði, sem skilgreint er mögulegt gosupptakasvæði, alla leið undir Fella- og Hólahverfið í Breiðholti, þótt litlar líkur séu á gosupptökum, sem fyrr segir.
„Nokkrar líkur“ á gosi undir Hveragerði
Mesta hættan á að eldgos hefjist inni í byggð eru þó í Hveragerði og Grindavík. Í Hveragerði eru líkurnar á gosi taldar „nokkrar“ undir byggðinni. Nyrsti hluti Grindavíkur liggur síðan á svæði þar sem líkur á gosupptökum eru „miklar“, „töluverðar“ og „nokkrar“, en „litlar“ í syðri hluta bæjarins. Lítil gossprunga opnaðist nokkra tugi metra norður af byggðinni 14. janúar 2024 og rann hraun yfir þrjú hús.
Bæði Grindavík og Hveragerði eru á 10% líklegustu áhrifasvæða hraunflæðis á svæðinu.
Eins og Heimildin fjallar um eru ný hverfi í byggingu og skipulagi á svæðum sem falla undir mögulega hættu á gosupptökum og hraunflæði.
Bæði á það við um nýja Áslandshverfið í Hafnarfirði, Skarðshlíðarhverfið í sama bæ, Urriðaholt í Garðabæ og Vatnsendahverfið í Kópavogi, en rétt er að geta þess að stórir hlutar byggðarinnar er á hæð sem myndi takmarka áhrif af hugsanlegu hraunflæði.
Möguleg upptök eldgosaÍ hættumati Veðurstofu Íslands eru gos talin geta komið upp innan græna svæðisins, en eru líklegri á bláu svæðunum. Mjög miklar líkur eru allt að 20 sinnum líklegri en litlar líkur. • Miklar líkur eru allt að 10 sinnum líklegri en litlar líkur. • Töluverðar líkur eru allt að 5 sinnum líklegri en litlar líkur. • Nokkrar líkur eru allt að 3 sinnum líklegri en litlar líkur.
Mynd: Veðurstofa Íslands
Hafnarfjörður og Garðabær á hraunrennslissvæði
Hættan á svæðinu liggur ekki eingöngu í gosupptökum innan byggðar, heldur er mun líklegra að hraunrennsli berist að byggð vegna eldgoss ofan byggðar.
Sýnt hefur verið fram á það í eldgosinu við Grindavík og á Sundhnúkagígaröðinni að unnt er að stöðva hraunflæði með varnargörðum.
Hraunflæðilíkan fyrir höfuðborgarsvæðiðHér er gefið til kynna hvar hraun gætu runnið í meðalstóru gosi úr nokkrum mismunandi mögulegum gossprungum. Mynd frá Veðurstofunni með merkingum frá Heimildinni.
Á höfuðborgarsvæðinu, og þá helst í Hafnarfirði og Garðabæ, er hægt að sjá svokölluð nútímahraun, sem runnið hafa eftir endalok ísaldarskeiðsins fyrir 10 þúsund árum. Sum hafa runnið á sögulegum tíma, eða Kapelluhraunið sem rann til sjávar vestast í Hafnarfirði í áttina að Straumsvík.
Nútímahraun á höfuðborgarsvæðinuFyrir minna en 7 þúsund árum rann hraun niður Ellíðaárdalinn, en styttra er síðan hraun rann í gegnum Garðabæinn.
Veðurstofan á enn eftir að gefa út skýrslur um sprunguvá, fjórar talsins, um hraunavá á Suðrnesjum og vesturhluta Árnerssýslu, og jarðskjálftavá fyrir allan Reykjanesskaga.
Þá segir í kynningu Veðurstofunnar að þörf sé á skýru regluverki fyrir alla náttúruvá á Íslandi, líkt og gert er með ofanflóð, en þar er „ásættanleg áhætta“ skilgreind. „Í ljósi þess að við stöndum frammi fyrir mögulegri eldvirkni Reykjanesskaganum á næstu áratugum eru afurðir verkefnisins mjög dýrmætar svo hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir fram í tímann frekar en að bregðast við óvæntum atburðum,“ segir í skýrslu Veðurstofunnar.
Neikvæðnin og bölmóðurinn í nei-sinnum minnir helst á manninn sem fór upp að bóndabæ til að fá lánaðan tjakk vegna þess að það var sprungið hjá honum ...
Það er ekki bara Harry prins sem á í erfiðu sambandi við fjölskyldu sína. Karl konungur og Vilhjálmur prins eiga heldur ekki sérstaklega hlýtt samband...
Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir þörf á samtali og samstöðu atvinnulífs og launþega í ljósi nýjustu verðbólgumælinga....
Four people have been arrested after police seized 20 kilograms of heroin from a hotel in Las Palmas de Gran Canaria, in what is believed to be one of...
Svíþjóð í hættu á refsingu frá ESB Fréttin24. júlí 2026Erlent, Evrópusambandið, OrkumálLeave a Comment Ebba Busch orkumálaráðherra Svíþjóðar. Framkvæm...
Nóg verður um að vera á Bylgjulestarútilegunni. Lukkkuhjól Bylgjunnar verður á yfirsnúningi og gestir geta unnið gjafabréf frá N1 , frískandi 7up Pink...
Reykjavíkurborg býður íbúum borgarinnar og fólki í verslun og þjónustu á samráðsfund þar sem öryggi í borginni verður rætt.Þrír hafa verið handteknir ...
Spænskir miðlar fjalla um málið en maðurinn er sagður hafa flakkað hótela og veitingastaða á milli á þessu tíu daga tímabili. Lögreglan hafði ítrekað...
Leiðtogakreppan í Úkraínu: Af hverju Zelensky rak varnarmálaráðherra sinn Fréttin24. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment Mikhail Fedorov (t...
Seðlabanki Evrópu svipti á fimmtudag hulunni af nýrri hönnun sem mun prýða evruseðlana. Tíu ólíkar útfærslur hafa verið birtar, en síðar á árinu verðu...
Farþegar Strætó á höfuðborgarsvæðinu fá nú nákvæmari upplýsingar um ferðir og komur strætisvagna.Þetta er gert með nýrri uppfærslu, sem tekur mið af h...
Íbúum Reykjavíkur ásamt aðilum verslunar og þjónustu er boðið til samráðsfundar til að ræða um öryggi í borginni. Fundurinn sem er haldinn í kjölfar m...
Amerískir ferðamenn skapa mikla hættu á vegunum á Íslandi. Flestir þeirra hafa lítið frí, vilja nýta tímann og keyra strax af stað á bílaleigubílum, ö...
Brown, sem er 37 ára, átti að mæta fyrir dóm í október vegna alvarlegrar ákæru sem hann neitaði sök í. Hann var meðal annars ákærður fyrir tilraun til...
Vegagerðin varar við miklu hvassviðri á suðaustanverðu landinu í kvöld og í nótt. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is. Þ...
Þrír hafa verið handteknir vegna fjölda innbrota í miðborg Reykjavíkur en samkvæmt lögreglu er ekki um skipulagða glæpastarfsemi að ræða heldur tilvil...
Víða um Evrópu og í Kanada er unnið að því að auka fjárútlát til varnarmála. Ráðamenn í Bandaríkjunum hafa lengi þrýst á Evrópumenn um að taka meiri á...
Orkumálaráðherrar Bandaríkjanna og Sádi-Arabíu skrifuðu á miðvikudag undir tvo samninga um kjarnorkumál; um samvinnu ríkjanna um nýtingu Sáda á kjarno...
Kvikmyndaverið Paramount Pictures birti í gær fyrstu stikluna fyrir jólamyndina Ebenezer í leikstjórn Ti West. Myndinni er lýst sem myrkri aðlögun á h...
The fledgling Burnham administration has been seeking to find its feet and make a decent first impression at the same time, the BBC's political editor...
Kerfi hafi verið uppfærð og samræmd og birtist nú sömu upplýsingar í strætóskýlum, Klapp-appinu, á vef Strætó og í kortum Google og Apple. Þá taki kom...
Átján ára piltur á Akureyri segist hafa sótt um störf á fleiri stöðum en hann geti talið án þess að fá nokkur viðbrögð frá atvinnurekendum. Pilturinn ...
„Ef fullvalda ríkisstjórnir, á hverjum tíma og úr öllum flokkum, geta ekki tryggt þjóðinni nothæfan gjaldmiðil, þá er það fullveldi ekki mikils virði,...
Stálheppinn einstaklingur á höfuðborgarsvæðinu datt í lukkupottinn þegar hann vann 45,4 milljónir króna í EuroJackpot.Í tilkynningu frá Íslenskri gets...
Thousands of residents were left without electricity yesterday evening (Thursday) after a piece of electricity network equipment that supplies power t...
„Það er greinilegt að landsmenn hlakka til Verslunarmannahelgarinnar og margir farnir að huga að hátíðarfatnaðinum og fylgihlutunum,“ segir Sigrún Edd...
Viðbragðsaðilar og fjarskiptafélög hafa lagst á eitt til þess að styrkja fjarskiptakerfið á Íslandi í kringum almyrkva á sólu og Neyðarlínan hefur ein...
Yankovic ræddi hátíðina í tengslum við ákvörðun sína um að hætta við að taka þátt í auglýsingu fyrir hugbúnað þegar hann uppgötvaði að hún væri búin t...
Bandaríski leikarinn Johnny Depp (63) kom aðdáendum á óvart með því að mæta á San Diego Comic-Con á fimmtudaginn, klæddur sem Ebenezer Scrooge.Depp mæ...
Ég er ekki að skrifa þetta sem maður sem er annaðhvort með eða á móti ESB. Ég er bara að horfa á þetta út frá reynslu minni áralöngu af íslenskum stjó...
Ótrúlegt myndband af birni sem sat fastur efst á rafmagnsstaur í Nýju-Mexíkó í Bandaríkjunum hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum síðustu daga....
Elon Musk, eigandi Tesla, SpaceX og fleiri fyrirtækja, segist ætla að láta gervigreindarforrit sitt Grok búa til kvikmynd í fullri lengd byggða á Ódys...
Jarðboranir hf. hafa undirritað samning við Orkuveituna um borun á rannsóknarholu. Markmiðið er að finna nýjar leiðir til nýtingar á ofurheitum jarðhi...
Gervigreindarlíkön OpenAI fundu áður óþekktan öryggisgalla, brutust út úr lokuðu tilraunaumhverfi fyrirtækisins og réðust inn í framleiðslukerfi Huggi...
Í byrjun febrúar voru tveir starfsmenn Hraunbúða handteknir vegna rannsóknar lögreglunnar á andláti konu á tíðræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Nú í jú...
Engin lán Landsvirkjunar eru lengur með ríkisábyrgð eftir að félagið greiddi upp síðasta skuldabréfið með ríkisábyrgð í dag. Þetta kemur fram í tilkyn...
Þjóðaratkvæðagreiðslan í ágúst snýst ekki síst um framtíð unga fólksins á Íslandi. Neikvæða fólkið sem vill ekki leyfa landsmönnum að ákveða framtíð s...
Eftir rigningatíð á suðvesturhorni landsins síðustu daga létti til eftir hádegi í gær og sást í bláan himinn sem ekki hefur verið algeng sjón að undan...
Söfnuðu hundruðum milljóna frá nafnlausum aðilum fyrir menningarmiðstöð gyðinga á Íslandi Rabbíni gyðinga á Íslandi virðist hafa safnað 436 millj...
Þar koma saman tónlist, myndlist, vísindi, geimferðir, tækni og vellíðan í kringum almyrkva á sólu og takmarkaður miðafjöldi í boði. Jón Bjarni segir ...
Visitors enjoying a morning at Las Canteras Beach in Las Palmas de Gran Canaria were treated to an unexpected sight yesterday (Thursday) when a woman ...
Ferjan Baldur hefur siglingar í Breiðafirði á ný í dag eftir að hafa siglt milli lands og Vestmannaeyja síðustu vikur. Jakob Björgvin Sigríðarson Jako...