Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra segir að efla þurfi íslenska alþjóðlega skipaskrá og setja lög svo tryggja megi heimild ríkisins til að leggja hald á skip í neyðarástandi. Þetta segir hann í svari við fyrirspurn Dags B. Eggertssonar, þingmanns Samfylkingarinnar.
Dagur vísaði til þess að ekkert kaupskip hefði siglt undir íslenskum fána í rúma tvo áratugi og spurði hvaða áhrif þetta gæti haft á skipasiglingar til Íslands á stríðstímum eða þegar neyðarástand skapaðist.
„Komi til ófriðar eða annars neyðarástands hér á landi eða á heimsvísu getur íslenska ríkið ekki gert tilkall til skipa sem sigla undir erlendum fána og sú staða getur skapast að Ísland verði háð ríkjum þar sem skipin eru skráð til flutninga til og frá landinu,“ segir Eyjólfur í svari sínu.
Ýmislegt hefur verið gert síðustu 20 árin til að endurskoða lagaumhverfi og skattlagningu kaupskipaútgerðar á Íslandi, segir Eyjólfur. Hann sendi ritara Þjóðaröryggisráðs erindi um stöðuna sem kynni að varða öryggi ríkisins og almennings.
Eyjólfur segir stöðuna ekki samrýmast því áfallaþoli sem íslenskt samfélag geri kröfu um og segir að annars staðar á Norðurlöndum séu sjóflutningar hluti af heildstæðu öryggisumhverfi og áfallaþoli.
Hann ætlar að leggja fram frumvarp næsta vetur til að breyta íslenskri alþjóðlegri skipaskrá þannig að hún verði að raunhæfum kosti fyrir skipafélög. Eyjólfur segir að lagasetningu þyrfti til að tryggja að ríkið hafi heimild til að leggja hald á skip þegar neyðarástand skapast. Hann vísar til þess að í Noregi hafi verið sett sérlög um slíkan rétt ríkisins í stríði eða hættuástandi. „Slík lagasetning er til skoðunar í ráðuneytinu og er þar höfð hliðsjón af vinnu við eflingu áfallaþols samfélagsins og haft samráð við helstu hagaðila innan Stjórnarráðsins.“