Barnafjölskyldur sem á að vísa úr landi þurfa ekki að deila rými með öðrum og verða vistaðar í öðru húsnæði samkvæmt breytingartillögum meirihluta allsherjar- og menntamálanefndar við frumvarp um brottfararstöð. Formaður nefndarinnar vonar að frumvarpið verði afgreitt í næstu viku.
Barnafjölskyldur verði ekki vistaðar á brottfararstöð
Nefndarálit var birt í gær um þrjár breytingartillögur á frumvarpi um brottfarastöð. Tvær þeirra lúta að breytingum á tilteknum málsgreinum frumvarpsins og sú þriðja að nýju ákvæði til bráðabirgða.
Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir breytingarnar skerpa á mikilvægi þess að bæta aðbúnað barnafjölskyldna og að þær séu ekki vistaðar á brottfararstöð.
„Heldur á öðrum stað þar sem hver fjölskylda getur verið algjörlega ein. Hún hefur þá sitt einkalíf þar. Bara íbúð með öllu sem henni fylgir og útiaðstöðu líka. Og að þetta sé ófrávíkjanlegt.“
Tillögurnar eru frá bæði Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Víðir segir breiða sátt ríkja innan nefndarinnar.
„Og það er mjög mikilvægt í þessu samhengi að átta sig á því að brottfarastöð er lokaúrræði þegar öll önnur úrræði hafa verið reynd. Eins og tilkynningaskylda, dvöl á tilteknum stað og fleira og fleira. Og hugsanlega í framtíðinni rafrænt eftirlit. Ef ekkert af þessu hefur gengið þá kemur brottfarastöð til greina sem lokaúrræði.“
Hefði viljað sjá mildari úrræði
Þingmaður Framsóknarflokks segir breytingarnar til bóta – en hefði þó viljað sjá mildari úrræði.
„Það voru mjög mörg samtök sem sendu áskorun á okkur, Barnaheill, UNICEF og fleiri, um að það að setja fjölskyldur með börn í lokað úrræði væri ekki ákjósanlegt og að það væri hægt að gera það með öðrum hætti. Við vildum ganga lengra og við bentum á þó nokkrar leiðir en meirihlutinn var ekki tilbúinn að hlusta á það.“
„Þetta er ömurlegur staður sem verið er að búa til“
„Mín ósk væri sannarlega sú að það þyrfti bara alls ekki að stofna til þessa úrræðis á litla Íslandi ef útlendingastefnan hefði verið betur uppsett á síðustu árum, þá væri það svo,“ segir Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, en hann á sæti í allsherjar- og menntamálanefnd.
„En því miður eru menn þarna. Ég hef kynnt mér vel starfsemi svona staða erlendis, farið á svona staði. Þetta er ömurlegur staður sem verið er að búa til og mín áhersla í þessu máli hefur verið að beita öllum úrræðum áður en svona staður er gerður að einhverjum geymslustað fyrir mikinn hóp fólks.“
Annarri umræðu um frumvarpið lauk á þingi í vikunni. Víðir segir óljóst hvenær frumvarpið verði tekið til þriðju umræðu og lokaatkvæðagreiðslu.
„Það eru náttúrulega mörg stór mál í gangi núna á lokasprettinum í þinginu. Þannig þetta kemur vonandi inn núna í vikunni.“