Bakslag varð í friðarhorfum í stríðinu í Miðausturlöndum í dag þegar ljóst varð að ekkert yrði af fyrirhuguðum fundahöldum bandarískra og íranskra sendimanna. Íranski utanríkisráðherrann yfirgaf Islamabad, höfuðborg Pakistans, áður en sendimenn Bandaríkjaforseta lögðu af stað.
Tíðindi dagsins gefa til kynna að langt sé í land áður en ríkin sættast á grunn að viðræðum um að ljúka stríðinu.
Upphaflegt tveggja vikna vopnahlé rann út í vikunni en Trump lýsti því þá yfir að vopnahléið hefði verið framlengt um þrjár vikur.
Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, ræddi í dag við Asim Munir, yfirmann pakistanska hersins og, Shehbaz Sharif forsætisráðherra og Ishaq Dar utanríkisráðherra. Fundurinn stóð í tvær klukkustundir en að því loknu hélt Araghchi aftur til Írans að sögn þarlendra fjölmiðla.
Skömmu seinna sagði Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, að hann væri hættur við að senda Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdason sinn, til viðræðna við Írana í Pakistan. Hann sagði í viðtali við Fox News að Bandaríkjamenn hefðu öll ráð í hendi sér og að það tæki því ekki að fljúga í átján tíma til þess að ræða um ekki neitt. Hann sagði að Íranar gætu haft samband þegar þeir væru reiðubúnir til þess.
Trump sagði í viðtali við fjölmiðilinn Axios að þetta þýddi ekki að stríðsátök hæfust á ný. „Nei, það þýðir það ekki. Ég hef ekki hugsað út í það enn þá.“
Fréttin hefur verið uppfærð.