Kanadískur karlmaður hefur játað sök fyrir að hafa aðstoðað 14 manns við að fremja sjálfsvíg með því að selja þeim eitur í gegnum netið. Samkvæmt kanadískum yfirvöldum hefur maðurinn sent 1.200 pakka með eitri til fólks í 41 landi víðs vegar um heiminn.
Kenneth Law er 60 ára gamall og játaði brotin 14 gegn því að saksóknarar féllu frá alvarlegri ákærum fyrir morð.
Law er menntaður verkfræðingur en starfaði sem matreiðslumaður á lúxushóteli í Toronto þegar hann var handtekinn fyrir þremur árum. Law hélt úti nokkrum fjölda vefsíða þar sem hann seldi natríumnítrít og önnur efni.
Samkvæmt BBC hefur maðurinn sent minnst 100 manns pakka til Bretlands, og talið er að hægt sé að rekja 73 andlát í Bretlandi til eiturs sem maðurinn útvegaði. Hann komst í kynni við viðskiptavini sína í gegnum sjálfsvígsspjallrásir á netinu.
Það hefur vakið mikla reiði í Bretlandi að þarlendir saksóknarar hafi ákveðið að ákæra ekki í málinu. Saksóknarar í Kanada segja að kanadíska réttarkerfið muni taka tillit til missis fjölskyldna í Bretlandi.
Sjálfsvíg á Ítalíu og í Nýja-Sjálandi hafa einnig verið rakin til eiturs sem maðurinn útvegaði.