Hamfarirnar áttu sér stað þann 26. ágúst en enn sem komið er hafa yfirvöld í Kína einungis staðfest sextán dauðsföll, samkvæmt ríkismiðlinum CGTN. Þá er 546 saknað.
Í Nepal er vitað til þess að tæplega þúsund eru látnir en rúmlega fjögur þúsund manns er saknað þar.
Sjá einnig: Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal
Í Tíbet sneru hamfarirnar að mestu að bænum Gyirong, sem lá á landamærum Nepal og Tíbet.
Sá bær er svo gott sem horfinn, ef marka má fréttaklippur frá vettvangi og myndefni frá því þegar flóðbylgjan skall á bænum.
Hér má svo sjá fyrir og eftir loftmyndir af Gyirong. Flóðbylgjan kom niður ána hægra megin á myndinni.
New imagery from @vantortech confirms that the China-Nepal Rasuwagadhi border crossing has been completely destroyed, with the glacial flood completely scouring the valley floor.
— OSINTtechnical (@Osinttechnical) August 27, 2026
At least 359 people are dead and nearly 1,000 missing, according to local authorities. pic.twitter.com/DiBiUzJGtO
Björgunarsveitir hafa ekki náð almennilega til bæjarins með vinnutæki þar sem enn er verið að gera nýjan veg þangað.
Samkvæmt CGTN koma rúmlega tvö þúsund manns, þar á meðal hermenn, að björgunarstörfunum í Tíbet. Unnið er að því að gera nýjan veg á svæðið en fótgangandi björgunaraðilar hafa leitað að minnsta kosti tvisvar sinnum í rústunum af Gyirong.
Hér að neðan má sjá myndefni af þeirri vinnu og í lokin er drónamyndband sem sýnir leifarnar af Gyirong. Vinnan þykir mjög erfið, þar sem mikið vatn flæðir niður dalinn þar sem verið er að gera veginn.
Lengi var óttast að nýtt stöðuvatn sem myndaðist eftir flóðið gæti leitt til frekari flóða en áin þykir komin í eðlilegt horf. Hættan er þó ekki alfarið liðin hjá og hefur vatn safnast saman á fleiri stöðum, samkvæmt frétt CGTN.
Talið er að hamfarirnar hafi orðið eftir að jökulhlaup átti sér stað ofarlega í Himalæjafjöllum.
Í fréttinni hér að neðan má sjá útskýringarmyndband sem sýnir hvernig talið er að flóðbylgjan hafi farið af stað.