Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni en þeim var tilkynnt um eldinn á tólfta tímanum í dag. Auk þyrlusveitarinnar var áhöfn Bjargar, björgunarskips Slysavarnarfélags Landsbjargar á Rifi, einnig kölluð út á mesta forgangi.
Skömmu eftir að tilkynningin barst bárust upplýsingar til stjórnstöðvar Gæslunnar um að búið væri að loka vélarrými bátsins og ræsa slökkvikerfi.
Sá sem var um borð varð fyrir óhappi þegar eldurinn kom upp svo sigmaður og læknir þyrlusveitarinnar sigu um borð í bátinn til að meta aðstæður og huga að honum. Að því búnu fór skipverjinn um borð í björgunarskipið og fiskibáturinn var tekinn í tog til hafnar í Rifi.
Gert er ráð fyrir því að þangað verði komið laust fyrir klukkan fjögur.