Gloria Steinem, aðgerðarsinni og brautryðjandi sem hjálpaði til við að móta kvennahreyfingu nútímans, er látin 92 ára að aldri. Samkvæmt yfirlýsingu lést hún á heimili sínu í New York á miðvikudaginn, umvafin ástvinum.„Þessari tæpu öld sem Gloria varði í jarðvist sinni var vel varið og hún hélt áfram að vinna að jafnrétti allt til enda,“ segir í yfirlýsingunni og er þar tekið fram að mesti kostur Gloriu hafi verið sá að hún kunni að hlusta á aðra og fá viðmælendur sína til að upplifa að þeir væru sýnilegir og hefðu rödd.
Einn þekktasti femínisti sögunnar, Gloria Steinem, er látin