Skotárás eftir útskriftarathöfn í framhaldsskóla í norðurhluta Kaliforníu varð unglingi að bana og særði þrjá aðra í gærkvöld á bílastæði skólans, að sögn lögreglu.
Auk 18 ára ungmennis sem lést við Fairfield High School, sem er um 80 kílómetra norðvestur af San Francisco, særðust 11, 20 og 25 ára einstaklingar í skotárásinni, að sögn lögreglu.
Maður sem var viðstaddur athöfnina sagði við staðbundnu sjónvarpsstöðina KCRA að hann hefði heyrt skotum hleypt af á meðan verið var að taka myndir á bílastæði skólans.
Michelle Belyea, lögregluþjónn hjá lögreglunni í Fairfield, segir að rannsókn á skotárásinni standi yfir en engin yfirvofandi ógn steðji að samfélaginu. Hún gaf engar upplýsingar um hinn grunaða eða áverka fórnarlambanna.