Samkvæmt ábendingu hafi að minnsta kosti fjórar lögreglubifreiðar og ein sjúkrabifreið verið á vettvangi. Lögreglan á Norðurlandi eystra sagðist í samtali við RÚV í nótt ekki geta gefið frekari upplýsingar að svo stöddu.Viðbragðsaðilar voru kallaðir til á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt vegna tveggja einstaklinga sem höfðu farið út á kajak en orðið fyrir því óláni að hann valt. Frá þessu er greint í yfirliti lögreglu yfir verkefni næturinnar en ekki kemur fram hvar atvikið átti sér stað.Björgunarsveit bjargaði viðkomandi, sem voru kaldir en ómeiddir. Voru þeir engu að síður fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar.
Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri - Vísir