Eldur kom upp í fjölbýlishúsi í Snælandshverfinu í Kópavogi síðdegis. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu var allt tiltækt lið kallað út.
Íbúar í íbúðinni þar sem eldurinn kviknaði, karl og kona, voru sofandi þar inni þegar eldurinn kom upp. Þau komust út af sjálfsdáðum.
Eldurinn kviknaði í kjallara hússins og mikill reykur myndaðist í stigaganginum.
Bjarni Bogi Gunnarsson, aðstoðarvarðstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir útkall hafa borist um klukkan fjögur.
Hann segir eldsupptök ekki liggja fyrir að svo stöddu. Þar að auki líti ekki út fyrir það að eldurinn hafi valdið skemmdum á öðrum íbúðum hússins.
Búið er að slökkva eldinn og unnið er að frágangi.
Fréttin hefur verið uppfærð.