Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur hafnað kröfum eigenda einbýlishúss í Breiðholti um að ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar um að færa skuli húsið til fyrra horfs, eftir umfangsmiklar breytingar sem gerðar voru á því, yrði felld úr gildi. Samkvæmt fasteignaskrá er húsinu skipt í tvær íbúðir en búið var hins vegar að innrétta fimm íbúðir til viðbótar í því og stækka það verulega. Húsið mun hins vegar hafa verið í þessu ásigkomulagi árum saman.
Einbýlishúsi í Breiðholti var breytt í fjölbýlishús í leyfisleysi - Leigjendur þurfa að finna sér ný heimili