Einar Bárðarson framkvæmdastjóri SVEIT, samtök fyrirtækja á veitingamarkaði og viðburðahaldari með meiru, gerir sér mat úr frétt Vísis í dag um Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum og miðasölu á hátíðina sem farið hefur hægt af stað. Segir Einar málefnið áhugavert viðfangsefni sem þoli greiningu og „úr því að greiningardeildir bankanna eru uppteknar af öðru ætla ég að taka þennan bolta.“Segir Einar að það hafi verið gríðarlegt álag á miðakaupendum í vor og sumar.
Einar segir þennan dag verða vendipunkt í sumar - „Ég held að það verði SUPER-MONDAY“