Í ár kemur mikill fjöldi listamanna fram á hátíðinni. Þarna koma saman ólíkir listamenn frá tilraunakenndum listamönnum til klassískrar listamanna, þar á meðal: Dj Krush, Abul Mogard, Arovane, Perila, Ulla, Ronja, Reptilicus, Youth (Martin Glover), Rafael Anton Irisarri, Martina Bertoni, Dj Flugvél og Geimskip, YPY og fleiri.
Hátíðin mun eiga sér stað á nokkrum mismunandi stöðum í miðborginni: Gamla Bíó, Iðnó, Tjarnarbíói og Space Odyssey.
Extreme Chill hátíðin er orðin ein af langlífustu tónlistarhátíðum Íslands enda hefur hún verið starfandi óslitið síðustu 16 ár. Hátíðin hefur vakið mikla athygli víða um heim og er orðin mjög mikilvægur partur af tónlistarsenu Íslands með sína sérstöðu sem er fókus á tilraunakennda tónlist, raf- og sveimtónlist. Hátíðin og starfið í kringum hana hefur leitt af sér fjölda útgáfa, tónleika, ferðalaga erlendis og samstarfa við bæði erlenda og innlenda tónlistarmenn, að ótöldum ógleymanlegum uppsetningum á hátíðum erlendis og innanlands sem eru bein afleiðing hátíðarinnar,“ segir Pan Thorarensen skipuleggjandi í samtali við Vísi.
Hann segir að um sé að ræða fimm daga tónlistarveislu þar sem bæði innlendir og erlendir tónlistarmenn með ólíkan bakgrunn á öllum aldri mætast í sköpun sinni undir áhrifum íslenskrar náttúru.
„Þetta er einstakur viðburður sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Þetta verður leyndardómsfullt ferðalag um rafræna Reykjavík,“ segir Pan.
Hátíðarpassinn kostar 19.900 krónur og gildir á alla 5 dagana. Einnig er hægt að nálgast dagsmiða fyrir hvern dag. Miðasala er inni á midix.