„Ég var löngu til­búin að giftast honum“ - Vísir

„Ég var löngu til­búin að giftast honum“ - Vísir

„Ég var löngu til­búin að giftast honum“ - Vísir

Gerður og eiginmaður hennar Jakob Fannar Hansen eru eigendur Blush og hafa verið góðir vinir í um áratug. Fyrir átta árum þróaðist vinskapurinn í samband og hefur ástin blómstrað allar götur síðan. Hjúin giftu sig við ofur rómantíska athöfn á Ítalíu umkringd þeirra besta fólki.

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Við trúlofuðum okkur 4 júlí 2024 við Garda-vatn á Ítalíu. Við áttum bókað í sólseturs-siglingu um vatnið og mig grunaði ekki neitt. Við höfðum rætt það lengi að gifta okkur einhvern tíma í framtíðinni en ég hélt að bónorðið kæmi eftir svona þrjú ár. Við vorum þarna að klára að byggja okkur hús og svo margt um að vera, þannig að bónorð var það síðasta sem mér datt í hug.

Þarna henti Jakob sér þó á skeljarnar og bað mín fyrir framan kastala við vatnið. 

Hann má eiga það að þetta var fullkomið bónorð sem kom mér mjög mikið á óvart. Þetta var ofsalega einfalt já, ég var löngu tilbúin að giftast honum.

Gerður þurfti ekki að hugsa sig um þegar Jakob bað hennar.Sunday&White Studio

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við byrjuðum mjög fljótlega eftir trúlofunina að velta fyrir okkur hvernig við myndum vilja hafa þetta en vorum bæði hugmyndasnauð og ekki með miklar skoðanir á því hvernig við vildum gera þetta.

Við vorum í sjálfu sér spennt fyrir öllu, allt frá því að fara til sýslumanns og halda smá veislu heima með okkar nánasta fólki yfir í eitthvað risa stórt. Hvorugt okkar hafði látið sig dreyma um brúðkaup og við bæði að gera þetta í fyrsta skiptið svo við höfðum rosalega litlar skoðanir á þessu.

Gerður og Jakob höfðu ekki fastskorðaðar hugmyndir um brúðkaupið og fylgdu flæðinu.Sunday&White Studio

Voruð þið strax ákveðin í að halda þetta erlendis?

Nei alls ekki en við leituðum til Pink Iceland og fórum á fund með þeim. Þar spurði Eva, einn af eigendum Pink Iceland, okkur hvað við vildum og við sögðum við hana að hún mætti ráða. 

Hún er fagmaðurinn og veit hvað virkar svo við settum þetta í hennar hendur. Á næsta fundi var hún með tilbúið plan og við fengum að vita að við værum að fara gifta okkur á Garda-vatni á Ítalíu. Við vorum mjög spennt og vissum að þetta yrði ótrúleg upplifun.

Pink Iceland skipulagði brúðkaupið á þessum rómantíska stað.Sunday&White Studio

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Hann var mjög rólegur framan af. Við vöknuðum um níu leitið og ég fór í förðun og greiðslu. Heiður Ósk förðunarfræðingur og Sirrý Huld hárgreiðslukona komu með mér út til að sjá til þess að allt yrði fullkomið.

Ég fann strax eftir að hafa verið aðeins með stelpunum síðustu mánuði í prufu greiðslu og förðun að mér leið alveg svakalega vel með þeim og ákvað því að vera ein um morguninn með þeim að taka mig til. Þær sáu til þess að morguninn væri afslappaður og rólegur. Við fórum svo í myndatöku um hádegi fyrir athöfnina sem var æðislegt og ég hefði ekki viljað hafa það öðruvísi.

Við höfðum nægan tíma til að taka myndir, fengum okkur hádegismat saman við vatnið í miðri myndatöku og áttum ofboðslega góðar stundir saman. Á meðan gátu gestir farið í sund og notið alls þess sem hótelið bauð upp á fyrir fordrykkinn sem var í garðinum klukkan fjögur með fiðlu- og sellóleik.

Athöfnin var síðan klukkan fimm og þá fórum við Jakob í sitt hvora áttina, því ég kom niður risa tröppur með pabba mínum en Jakob gekk inn hinum megin frá með pabba sínum og syni okkar. Athöfnin var létt og skemmtileg, Eva Ruza sá um að gefa okkur saman og gerði það með einstakri hlýju, ást og húmor.

Eva Ruza gaf hjónin saman.Sunday&White Studio

Eftir athöfnina voru svo forréttir og tónlistaratriði en Ítalinn kann að borða og var því boðið upp á forrétta hlaðborð. Svo tók við sitjandi borðhald með tveimur forréttum, trufflu-pasta og rækjurisotto-i, nautasteik í aðalrétt og kökur og tíramísú í eftirrétt. Því má segja að enginn hafi verið svangur eftir þessa veislu.

Voruð þið með viðburði í nokkra daga og hvernig var skipulagið?

Við vorum með fjóra daga.

Á fyrsta degi var pizzu-partý og skemmtun þar sem vinir okkar voru með ræður og sýndu gæsunar- og steggjamyndböndin. Þetta kvöld var afslappað og fullkomið fyrir gesti að tengjast og spjalla. Á degi tvö var svo brúðkaupið sjálft þar sem fjölskyldan okkar var með ræður. Við vildum hafa það aðeins formlegra kvöld framan af sem endaði svo með risa partýi þar sem Emmsjé Gauti og Sunna Ben héldu stemningunni uppi.

Á þriðja degi héldum við sundlaugarpartý og grillveislu sem endaði með skemmtilegri útilegustemningu, þar sem kassagítarinn var dreginn var fram og allir sungu fram undir morgun. Á fjórða degi borðuðum við morgunmat saman og svo fóru allir heim.

Það var rosalegt stuð í sundlaugarpartýinu daginn eftir brúðkaupið.Sunday&White Studio

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já við vorum mjög samstíga með það að skipta okkur sem minnst af og leyfa fagfólkinu í Pink Iceland að stjórna þessu. Við mættum bara eins og gestir í okkar eigið brúðkaup sem var dásamlegt. 

Þau sáu um allt frá A-Ö, það eina sem við þurftum að gera var að kaupa okkur föt, bjóða fólkinu okkar og þau sáu alveg um rest, sem var ótrúlega þægilegt. Við erum svo þakklát fyrir það hvað þau gerðu þetta vel og hugsuðu vel um okkur í ferlinu og ferðinni sjálfri.

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Að hafa Evu hjá Pink Iceland með sér í þessu. Ég get ekki sagt að ég sé annars með nein sérstök ráð. Ég upplifði mig eins og prinsessu allan daginn, það var stjanað við okkur frá því við vöknuðum og þar til við fórum að sofa.

Glæsileg brúður með ítalska pizzu.Sunday&White Studio

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Við vildum hafa þetta ítalskt, bjóða upp á ítalskan mat og hafa þetta svolítið létt og skemmtilegt. Við vorum með ítalska tónlist og ítölsk vín og við vorum ekki að stressa okkur á hefðum eða reyna að gera eins og aðrir. 

Við vildum sem dæmi ekki vera með fyrsta dans og vorum ekki spennt fyrir því að vera með mikið af leikjum í brúðkaupinu eða margar ræður. Þess vegna dreifðum við því yfir á tvö kvöld svo að brúðkaupsdagurinn sjálfur væri ekki of pakkaður.

Faðir Gerðar gekk með hana að altarinu í gullfallegu umhverfi.Sunday&White Studio

Það sem skipti okkur mestu máli var að gestirnir myndu njóta sín, að það væri nóg af mat og áfengi alla daganna og allir gætu skapað skemmtilegar minningar með okkur og sínu fólki.

Hvað stendur upp úr?

Svo margt. Brúðkaupsdagurinn sjálfur í heild sinni var dásamlegur. Sundlaugarpartýið stóð líka upp úr. Ég var ekki með neinar væntingar en það var ótrúlega gaman. Við náðum að njóta okkar svo vel og eiga skemmtilegar stundir með fólkinu okkar. 

Það sem var líka svo skemmtilegt er hvað vinir okkar náðu allir vel saman, við erum svo lánsöm að eiga ofboðslega mikið af vinum og það höfðu ekki allir fengið tækifæri til að kynnast fyrir ferðina en úti mynduðust fullt af nýjum vinasamböndum sem er mjög verðmætt fyrir okkur.

Gerður og Jakob náðu svo sannarlega að njóta í botn.Sunday&White Studio

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Já Eva Ruza og Hjálmar Örn sáu um að skemmta fólki frá upphafi til enda. Þau gerðu það svo vel og pössuðu svo vel inn í stemninguna sem var. Þau sáu til þess að þetta væri létt og skemmtilegt en líka rómantískt og innilegt. 

Emmsjé Gauti mætti og kveikti í dansgólfinu og DJ Sunna Ben sá um að spila langt fram undir morgun. Það vöknuðu allmargir daginn eftir með harðsperrur eftir dansgólfið.

Veðrið var fullkomið, staðurinn gullfallegur og stemningin rosalega góð að sögn Gerðar. Sunday&White Studio

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Hvað það voru margir sem mættu. Ég var alveg smá efins þegar við ákváðum að halda brúðkaup erlendis um hvort allir myndu bæði vilja og geta mætt. Það mættu næstum allir sem fengu boð og við vorum með pakkað hótel. Það kom okkur líka smá á óvart hvað veðrið var fullkomið. 

Þetta á að vera mjög góður tími á Ítalíu en vikuna fyrir brúðkaup var búið að vera kalt og skýjað og mikil rigning. Það var í raun bara daginn sem við mættum að veðrið tók við sér og það létti til og sólin fór að skína. Við vorum alveg undirbúin fyrir það að þurfa að halda hluta af brúðkaupinu inni og falla frá hugmyndinni að vera með úti athöfn.

Hvað voru margir gestir?

85 manns.

Sólin skein og 85 af nánasta fólki brúðhjónanna fagnaði með þeim.Sunday&White Studio

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Það gekk ágætlega. Það var mjög auðvelt fyrir Jakob, hann fór bara og lét sauma á sig föt og þurfti lítið að spá í því. Ég hins vegar fór í nokkrar verslanir áður en ég fann rétta kjólinn.

Ég byrjaði á að fara í Loforð hérna á Íslandi og mátaði helling af kjólum sem voru dásamlega fallegir og ég fékk frábæra þjónustu, en fann ekki eina sanna kjólinn. Mig langaði að vera í kjól sem væri léttur og passaði við víbrurnar að gifta sig á Ítalíu við vatn.

Ég hef lengi verið hrifin af brúðakjólamerkinu BERTA og fann verslun á Ítalíu sem selur kjóla frá þeim, þannig ég fór og mátaði og fann þar draumakjólinn. Þetta gekk hins vegar ekki áfallalaust fyrir sig, þjónustan var hræðileg og upplifunin var svo sannarlega ekkert í líkingu við það sem ég fékk hérna heima. 

Að lokum kom kjólinn og allt small en ég myndi aldrei kaupa kjól aftur úti eða allavega ekki á Ítalíu. Þetta var auka stress og álag sem maður þarf ekki rétt fyrir brúðkaup.

Gerður mælir ekki með því að kaupa sér kjól á Ítalíu en fann þó að lokum hinn fullkomna kjól. Sunday&White Studio

Varstu með fataskipti?

Já ég var með mörg mismunandi lúkk, í fötum, greiðslu og förðun.

Fyrsta kvöldið klæddist ég hvítum síðum kjól frá netversluninni Lulus. Við fórum í svona messy snúð í anda Pamelu Anderson, vildum hafa hárið í uppsettri greiðslu en á sama tíma mjúka og afslappaða. Útkoman var snúður með nokkrum lausum lokkum í kringum andlitið.

Á brúðkaupsdaginn var ég í kjólnum frá Berta og hárgreiðslan gaf ákveðna andlitslyftingu. Þá eru lokkarnir fyrir ofan kinnbeinin togaðir aftur og festir við hnakkann án þess að það sé óþægilegt. Við drógum niður lokka sem ramma andlitið og festum þá mjúklega og krulluðum restina af hárinu ásamt því að túbera og stílisera fyrir aukna lyftingu og glamúr.

Ég tók svo allsherjar skipti áður en kakan var skorin og ég er enn í smá áfalli yfir því hvað þessi klikkaða hugmynd kom vel út. Ég var í sérsaumuðum kjól frá Úkraínu sem var allur í glimmeri og eins og korselett að aftan. 

Upphaflega var svo hugmyndin að klippa á mig topp en það var aðeins of mikið áhættuatriði miðað við magnið af hárlakki. 
Gerður mætti með topp í eftirpartýið.Sunday&White Studio

Sirrý hafði því heyrt í Hildi hjá Vidore áður en hún kom út og fékk topp úr alvöru hári af manneskju. Við skelltum honum á mig, klipptum til á staðnum og blönduðum honum fullkomlega við restina af hárinu. Hún tók svo krullurnar niður í mjúkt lágt tagl og faldi teygjuna fyrir hreint og afslappað lúkk. Heiður dekkti svo förðunina og gerði það meira smokey.

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Bjóðið ykkar besta fólki sem þið viljið hafa með ykkur en ekki hengja ykkur á að bjóða fólki bara af því ykkur finnst þið þurfa þess. Við völdum að hafa þetta um fjörutíu prósent fjölskyldu og sextíu prósent vini og það var fullkomin blanda.

Svo bara að njóta, það voru mjög margir búnir að benda okkur á að passa að taka móment yfir daginn til að tengjast og vera saman, það vill oft verða þannig þegar fólk er að gifta sig að það hittist nær ekkert yfir daginn.

Hjónin náðu að njóta dagsins í botn.Sunday&White Studio

Við náðum að vera meira og minna allan daginn saman, við ákváðum líka að í stað þess að vera með háborð að vera tvö saman á borði yfir matnum og vorum með lausa stóla hjá okkur svo fólk gat komið til okkar og spjallað yfir matnum, í stað þess að við værum að rölta á milli. 

Okkur fannst þetta æði og þarna fengum við líka tækifæri til að horfa saman á allt fólkið okkar, taka þetta augnablik aðeins inn og spjalla.

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Það er alveg smá skrítið, það er ákveðin tómleiki sem tekur við þó svo að ástin sé í loftinu og maður sé fullur af þakklæti. Þetta er búið að vera svo stór partur af okkar lífi síðustu mánuði og mikil spenna. Maður verður alveg smá sorgmæddur þegar þetta er búið. Þetta var svo skemmtilegt að mann langar að upplifa þetta oftar. 

En við munum lifa á minningum og myndum frá þessum dásamlegu dögum og svo þurfum við bara að vera dugleg að bjóða öllu fólkinu okkar reglulega í mat og heimsókn.

#giftast #honum #löngu #tilbúin #var


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262894690d/-eg-var-longu-til-buin-ad-giftast-honum-

📰 Aðrar fréttir

Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
📅 24.10.2026 👁️ 1
Íslendingar lýsa því hversu mikið þeir ná að leggja til hliðar í hverjum mánuði – „Bara góð ef ég kem út á núlli þessa dagana“
Í dýrtíð eins og nú er er ekki sjálfsagt að geta lagt fyrir í hverjum mánuði. Annað hvort inn á sparireikning eða borgað inn á lán. Í umræðum á samfél...
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
📅 24.10.2026 👁️ 1
Kennari skildi bekk sex ára barna einan eftir og fór á fyllerí – Læsti sig inni á klósettinu
Katharine Viviano, 50 ára grunnskólakennari í Pennsylvaníufylki í Bandaríkjunum, hefur verið ákærð fyrir ölvun á almannafæri eftir undarlegt atvik í h...
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
📅 24.10.2026 👁️ 1
Segir viðmót starfsmanns hafa breyst þegar hún sagðist vera gyðingur
Ísraelsk-bandaríski rithöfundurinn Shoshanna Keats Jaskoll segir viðmót starfsmanns í öryggisleit á flugvellinum hafa breyst þegar hún sagðist vera gy...
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
📅 24.10.2026 👁️ 1
Segir skorta rök fyrir því að lögregluembættin verði þrjú
Yfirlögregluþjónar og starfsmenn lögreglu á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum lýsa áhyggjum af fyrirhugaðri fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú. Alls...
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 1
Blóð og hryllingur í grænmetisdeildinni - Vísir
Keppnin var á vegum Krónunnar og var metþátttaka í ár. Edda sem bar sigur úr býtum var í öðru sæti fyrir tveimur árum og hefur því ákveðna reynslu á b...
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
📅 24.10.2026 👁️ 1
Hefur ekki átt í sambandi við föður sinn til að vernda börnin
Meghan Markle hefur ekki leyft föður sínum að eiga í sambandi við börnin sín vegna ásakana á hendur honum. Fréttir bárust af því í gær að myndefni sem...
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Sjö þúsund krónur séu ekki nóg - Vísir
„Innanlandsflugið er lífæð landsbyggðar og tryggir aðgengi að nauðsynlegri þjónustu við fólk. Flugið er öryggismál og jafnréttismál til að jafna aðstö...
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
📅 24.10.2026 👁️ 2
Þrír menn segjast hafa selt Lindsey Graham vændi – Einn var 17 ára
Í myndbandi sem birt var af hópnum The Young Turks segir að þingmaðurinn Lindsey Graham hafi keypt vændi af karlmönnum. Graham lést skyndilega í sumar...
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Yfir hundrað hand­teknir í mót­mælunum - Vísir
Mótmælaaldan sem hefur farið vaxandi í Frakklandi á síðustu vikum náði hámarki um síðustu helgi. Fjöldi fólks var handtekinn og voru gerðar miklar ske...
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins - Vísir
Þann 16. apríl síðastliðinn spurði Njáll Trausti Friðbersson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í fjárlaganefnd, Eyjólf Ármannsson samgön...
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
📅 24.10.2026 👁️ 3
Davíð Þór Björgvinsson skrifar: Refhverf sléttubönd
Talsvert er rætt um gervigreind þessa dagana. Margir þeirra sem vinna með höfðinu óttast að þeir verði úreltir og ónothæfir áður en langt um líður. Vi...
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Þetta er undar­legt…: QWER­TY-stafa­ruglið á símum og lykla­borðum - Vísir
Frekar undarlegt er það ekki? Vinsælasta skýringin er sú að í upphafi ritvélarinnar festust takkarnir ef pikkað var of hratt. Þannig að uppfinningamað...
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Salvör krefur stjórnvöld um svör – „Að baki þessu máli er barn sem lést og fjölskylda sem hefur orðið fyrir óbætanlegum missi“
Salvör Nordal, umboðsmaður barna, segir að stjórnvöld verði að gera grein fyrir úrbótum varðandi neyðarvistun barna. Tvö ár eru síðan drengur í neyðar...
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Smáhestar flúðu úr verslunar­mið­stöð - Vísir
Dýrin komust raunar ekki langt. Lögregla náði að handsama hestana þegar þeir stoppuðu til að bíta gras um kílómetra frá verslunarmiðstöðinni og voru þ...
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Geta notað drónana til fulls á ný - Vísir
Aðfaranótt 14. október tóku úkraínskir hermenn eftir því að takmarkanir virtust hafa verið settar á notkun þeirra á Starshield-kerfinu sem er sérstaku...
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigmundur Ernir skrifar: Það krefst úthalds til að auðga samfélagið
Mynd Mannréttindabarátta hefur mestu varðað um bætta ásýnd samfé
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
📅 24.10.2026 👁️ 3
Lilja Rafney ekki ánægð með breytingu flokksbróður síns – „Þetta er ekki boðlegt“
Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, er ekki ánægð með fyrirhugaðar breytingar á hinni svokölluðu Loftbrú. Flokksbróðir hennar Eyjólfu...
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 2
Leggjast gegn sam­einingu lögregluembætta - Vísir
Umsögnin beinist að frumvarpsdrögum Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttur dómsmálaráðherra um skipulagsbreytingar hjá lögreglu. Frumvarpið leggur til að...
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
📅 24.10.2026 👁️ 3
Paramedics save holidaymakers life after he had a heart attack on a beach in Lanzarote
An elderly man was resuscitated and taken to hospital after suffering a cardiac arrest at La Garita beach in Arrieta, located in the north of Lanzarot...
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
📅 24.10.2026 👁️ 2
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala
Katrín í Lýsi fjárfestir í einkareknum spítala Litli spít­al­inn verður opn­aður í hús­næði í eigu stofn­anda Samherja. Nýja einka­rekna sjúkra­húsið ...
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
📅 24.10.2026 👁️ 2
Hyggjast mótmæla breytingum á Loftbrú: „Við ætlum ekki að sætta okkur við þetta“
Innviðaráðherra, tilkynnti í gær breytingar á fyrirkomulagi Loftbrúar sem taka gildi frá og með áramótum. Formaður Sambands sveitarfélaga á Austurland...
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
📅 24.10.2026 👁️ 2
Investor Political Due Diligence in Europe: Which firms should you speak to?
A European investment target may have strong financial results and still depend on relationships that do not appear in its accounts. Political connect...
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Skrif­borð Megasar eins og hjá skurð­lækni - Vísir
Í viðtalinu fer Tolli á kostum, hann fer yfir víðan völl og stiklar á stóru varðandi sinn litríka feril. Hann hætti öllum afskiptum af tónlist eftir a...
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
📅 24.10.2026 👁️ 4
Pawel Bartoszek: Við erum ekki að innleiða bókun 35 fyrir Brussel – við erum að innleiða hana fyrir Íslendinga
Þegar við skrifuðum undir EES-samninginn skuldbundum við okkur til að lögfesta forgang innleiddra laga og regla sem leiddu af honum ef þörf væri á. Hæ...
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Sigríður Hagalín með frumlega hugmynd fyrir borgarstjórn – „Byggingin er bæði falleg og praktísk“
Sigríður Hagalín Björnsdóttir, fréttakona og rithöfundur, leggur til að borgarstjórn Reykjavíkur sameini tvö mál sem henni eru hjartfólgin, það er bók...
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
📅 24.10.2026 👁️ 4
Starfsmenn lögreglunnar á Norðurlandi vestra leggjast gegn sameiningu embætta
Starfsmenn Lögreglustjórans á Norðurlandi vestra hafa skilað inn umsögn um frumvarp til laga um breytingar á lögreglulögum. Þar leggjast þeir gegn þei...
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
📅 24.10.2026 👁️ 4
Lýsa þungum áhyggjum af vanfjármögnun á sjúkraflutningum á Suðurnesjum
Bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýsir þungum áhyggjum af sjúkraflutningum á Suðurnesjum. Þetta kemur fram í sameiginlegri bókun bæjarstjórnarfulltrúa á fun...
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
„Ég er bara svo­lítið sár“ - Vísir
Loftbrúarverkefnið var sett á fót fyrir sex árum til þess að bæta aðgengi íbúa á landsbyggðinni að þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Hingað til hefur fól...
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hafi fengið bréf um á­sakanirnar en deildu því ekki með fleirum - Vísir
Greint var frá því í gær að Thomas Markle eldri hefði verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir Meg...
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Minkarækt Dana mun heyra sögunni til - Vísir
Fyrri ríkisstjórn Mette Fredriksen forsætisráðherra Danmerkur greiddi atkvæði gegn reglugerð ESB árið 2025 og ákvað í kjölfarið að sækja um undanþágu ...
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
📅 24.10.2026 👁️ 4
Voru loftslagsverkföll ungs fólks bara góðærishreyfing?
„Ef aðrar hreyfingar eru öflugar þá hafa hinar hreyfingarnar lítið pláss og það heyrist lítið í þeim. Í samtímanum eru bara önnur málefni sem taka mik...
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 24.10.2026 👁️ 4
Hversu vel fylgdist þú með fréttum vikunnar? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvað nýtt fangelsi á að heita, hvaða bíómynd á að setja á svið í Borgarleikhúsinu og hvaða land ban...
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Vikulokin: Mótmæli í Evrópu, bókasöfn, menntamál og tíðindaleysi á þingi
Mótmælin í Evrópu, PHP-málið, hugmyndir um breytingar á rekstri bókasafna og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins, menntamál og tíðindaleysi á þingi er meða...
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
📅 24.10.2026 👁️ 3
Met Police confirms it received 2019 letter with "number of claims" about Meghan's father
The Met said it passed information to the duchess but did not share it with other law enforcement agencies.
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
„Lands­byggðin brjáluð“ og draugar í Laugar­dal - Vísir
Þá verður rætt við þingmann stjórnarminnihlutans sem segir landsbyggðina brjálaða vegna málsins. Eyjólfur Ármannsson samgönguráðherra hafi lofað samrá...
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
📅 24.10.2026 👁️ 4
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi
Séð og heyrt á flóknum mótmælum í Frakklandi Við­bún­aður víða um Frakk­land í dag. Hvað knýr and­stöð­una áfram? Hvernig hefur hún breyst? Rætt við f...
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
📅 24.10.2026 👁️ 3
700 mótmæli skipulögð í Frakklandi í dag
Fjölmenn mótmæli eru fyrirhuguð í að minnsta kosti átta borgum á Ítalíu, á Spáni, í Portúgal, Albaníu og Austurríki.Yfirvöld í Frakklandi hafa hert ör...
Kim fór til Kína - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 3
Kim fór til Kína - Vísir
Kim fór um borð í lestina í Pjongjang, höfuðborg Norður-Kóreu, sem fór yfir nýju brúna sem liggur yfir Yalu-fljótið og endaði í kínversku borginni Dan...
Íslenska Trump-hatursæðið
📅 24.10.2026 👁️ 3
Íslenska Trump-hatursæðið
Íris Erlingsdóttir skrifar: Sérkennileg árátta hefur gripið um sig í íslenskri þjóðfélagsumræðu – að svara pólitískum skoðunum með skítkasti í stað ra...
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Between quick wins and big dreams lies Burnham's biggest test, starting with the Budget
The prime minister might be dreaming of gold medals in 2040, but he must first navigate the difficult years in between, writes Laura Kuenssberg.
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
📅 24.10.2026 👁️ 3
Orðið á götunni: Sleifarlag Sjálfstæðismanna í sveitarstjórnum – Seltjarnarnes á leið í gjörgæslu, Þór settur af? Bullandi tap í Hafnarfirði
Hrikaleg staða fjármála Seltjarnarnesbæjar er enn á ný komin á dagskrá eftir að sex mánaða uppgjör var birt nýlega þar sem halli á A-hluta bæjarins va...
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
📅 24.10.2026 👁️ 4
Northern Olympics plan to get £7m in John Healey's first Budget
The full feasibility study will look in detail at how hosting the Games in northern England could work.
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
📅 24.10.2026 👁️ 4
Explore Gran Canaria’s British heritage on a new free guided walk
Residents and holidaymakers can discover a different side of Las Palmas next week, with a bilingual guided walk exploring the city’s British connectio...
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
📅 24.10.2026 👁️ 4
300 dumped mattresses cleared from Costa Calma streets
Clean-up crews have removed 300 mattresses and 22 tonnes of bulky waste from Costa Calma this month, prompting an appeal for residents and businesses ...
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
📅 24.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Fifa president says he is backed by 'vast majority' in world football
Fifa president Gianni Infantino laughs off questions about whether he considered resigning over the World Cup sell-off debacle.
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
📅 24.10.2026 👁️ 4
Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað - Vísir
Um sjötíu þúsund lögreglumenn verða við störf í Frakklandi á þar sem yfirvöld reyna að stemma stigu við mótmælaöldu sem hefur farið vaxandi á síðustu ...
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
📅 24.10.2026 👁️ 4
Augljós og marktæk aukning á sölu insúlínsprauta og nála
Eftirspurn eftir insúlínsprautum og nálum heldur áfram áfram að aukast. Hægt er að nota sprauturnar til að sprauta peptíðum í líkamann, en borið hefur...
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
📅 24.10.2026 👁️ 4
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“
Ætlar að koma palestínskum yfirvöldum „á óvart“ Eftir árás tveggja palest­ínskra manna á ísra­elska her­menn á Vest­ur­bakk­anum boðar Benjamín Net­an...
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
📅 24.10.2026 👁️ 3
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi Mynd: Brynhildur Jensdóttir HMS hefur borist tilkynning frá Bílaumboðinu Unu um innköllun á ...
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
📅 24.10.2026 👁️ 4
Fimmtán ára drengur handtekinn eftir Facebook-færslur um borgarfulltrúa
Lögreglan í West Midlands á Englandi handtók 15 ára dreng á heimili hans í Walsall 3. ágúst eftir að leiðtogi Íhaldsmanna í borgarstjórn Wolverhampton...