Frænkurnar Þóra Björk og Elísa Björk tóku á móti blaðamanni með kaffi og bakkelsi einn morgun í vikunni. Fyrir framan þær á borðinu voru þrjár litríkar fígúrur úr viði sem líktust helst einhverju óræðu dýri. Hægt er að taka höfuðið og búkinn af og raða hlutunum saman aftur á ýmsan hátt.
Móðir Þóru og amma Elísu, listakonan Elísa Steinunn Jónsdóttir, á heiðurinn af hönnun leikfangsins, en hún lést árið 2016. Elísa Steinunn vann alla tíð að list sinni og var mest í keramík, en hún stofnaði einnig Gallerí List í Skipholti. Árið 1961 bjó hún til leikfang sem öll börn í fjölskyldunni hafa leikið sér með í gegnum árin. Nú hefur leikfangið, sem fengið hefur nafnið Steina, fengið nýtt líf en fjölskyldan ákvað að hefja framleiðslu á leikfanginu sem nú er smíðað í Póllandi og komið í sölu hér á landi.
Ólumst upp við leikfangið
„Þegar við systkinin vorum lítil fannst mömmu svo lítið til af íslenskum leikföngum þannig að hún fór að búa til þetta leikfang sem við svo ólumst upp við að leika okkur með, og svo síðar líka barnabörnin hennar. Þetta fór aldrei í framleiðslu í gamla daga,“ segir Þóra.
„Við systkinin erum fjögur og áttum öll eitt leikfang. Við vorum einhvern tímann og ræða það og Kristján bróðir minn stakk upp á að framleiða leikfangið. Við ákváðum þá öll að hefjast handa og Kristján fór að finna framleiðendur. Kári, pabbi Elísu, sá um að taka myndir og skrásetja ferlið og barnabörnin hafa haldið utan um samfélagsmiðla, textagerð, að smíða vefsíðuna og markaðssetningu. Öll barnabörnin hafa fengið eitthvert hlutverk,“ segir Þóra.
Fjölskyldan vinnur saman
Leikfangið Steina er framleitt í litlu fjölskyldufyrirtæki í Póllandi og er bæði handsmíðað og handmálað.
„Það er svo gaman að sjá myndir frá framleiðslunni; að þarna sé verið að búa til leikfangið hennar ömmu,“ segir Elísa, en nú þegar hafa verið framleidd þrjú hundruð stykki.
„Við erum með leikfangið í upprunalegu litunum; bláu, grænu, rauðu og gulu, og munum alltaf vera með þá gerð. Svo bjuggum við til annað með nýjum og mildari litum og ætlum svo að vera dugleg að skipta út litum eftir árstíðum,“ segir Elísa en nánar má lesa um verkefnið á vefsíðunni eftirelisu.is og á Instagram-síðunni eftir_elisu.
Þegar framleiðslan var komin í hendurnar á fjölskyldunni var skundað með leikfangið í Epal á fund hjá Eyjólfi Pálssyni sem tók strax vel í að selja gripinn. Einnig fékk fjölskyldan styrk úr Hönnunarsjóði til þess að koma framleiðslunni í gang. Á nýliðnum HönnunarMars var Steina til sýnis og sölu í Epal á Laugavegi en er nú að fara í sölu í öðrum verslunum Epal og öllum helstu hönnunar- og barnaverslunum.
„Það er svo gaman að fjölskyldan sé öll saman að vinna að þessu og nú fá aðrir að njóta leikfangsins líka,“ segir Þóra.
Hvorki fugl né fiskur?
Hvaða fugl er þetta?
„Það er nefnilega málið!“ segir Þóra og hlær.
„Við sjáum út úr þessu gíraffa því fugl er bara með tvær lappir en það má sjá út úr þessu hvað sem er,“ segir Elísa.
Steina er til í nokkrum litum.
„Ég sá alltaf gíraffa þó enginn hafi í raun sagt að þetta væri gíraffi. Þess vegna heitir þetta bara Steina,“ segir Þóra.
„Við tölum um þetta líka sem stofustáss því þetta hefur staðið í hillum fjölskyldunnar lengi,“ segir Elísa og Þóra bætir við að litlu börnin í fjölskyldunni taka alltaf leikfangið úr hillunni og hafa gaman af því að taka það í sundur og raða saman á ýmsan máta.
„Steina er skemmtilega ófullkomið leikfang; eins konar abstrakt dýr sem hallar aðeins fram. En það er eitthvað fallegt við þetta.“
Fáðu þér áskrift til að lesa áfram
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu,
rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki
á mbl.is.