„Ég neita að leyfa fæðingar­or­lofs­sjóði að stjórna mínu lífi“ - Vísir

„Ég neita að leyfa fæðingar­or­lofs­sjóði að stjórna mínu lífi“ - Vísir

„Ég neita að leyfa fæðingar­or­lofs­sjóði að stjórna mínu lífi“ - Vísir

Karítas Ólafsdóttir sálfræðingur eignaðist son í júní í fyrra og á von á dóttur í febrúar. Hún tók sjö og hálfs mánaðar fæðingarorlof en dreifði greiðslunum yfir tólf mánuði til að geta verið lengur heima með syni sínum.

Það kemur nú niður á greiðslunum sem hún fær í næsta orlofi. Að sögn Karítasar falla nær allir mánuðirnir sem miðað er við í útreikningnum á tímabil þegar hún fékk lægri greiðslur vegna dreifingarinnar. Hún býst því við að fá aðeins lágmarksgreiðslur.

„Þeir taka ekki tillit til í rauninni fyrra orlofs ef maður dreifir greiðslum þannig að ég er að enda á bara lágmarkinu,“ segir Karítas.

Dreifi hún greiðslunum aftur yfir lengri tíma lækki mánaðarlegar greiðslur enn frekar.

Vill eignast börnin fyrir aðgerðir

Karítas hefur persónulegar ástæður fyrir því að hafa stutt á milli barna. Hún er með BRCA2-genabreytingu sem eykur krabbameinsáhættu og þarf að gangast undir fyrirbyggjandi aðgerðir. Hún vill eignast börnin sín áður en að þeim kemur.

Hún hafði heyrt að reglurnar gætu skert greiðslur við næstu barneignir en lét það ekki ráða för.

„Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi.“

Karítas skrifaði grein um málið á Vísi fyrr í haust sem vakti mikla athygli. Hana má lesa hér fyrir neðan. 

Eftir að hún skrifaði um málið á Vísi hafi fjölmargir haft samband. Þar á meðal foreldrar sem hafi frestað barneignum til að tryggja sér hærri greiðslur og fólk sem sé nýkomið úr námi. Hún telur óeðlilegt að reglurnar hafi slík áhrif á ákvarðanir fólks.

Sjálf vildi hún verja fyrsta árinu með syni sínum og gaf honum brjóst fram yfir eins árs aldur. Þá þurfti að brúa bilið þar til hann komst í leikskóla, fimmtán mánaða gamall. Unnusti hennar tók við að hennar orlofi loknu og sá meðal annars um leikskólaaðlögunina.

„Mér finnst það bara ótrúlega dýrmætur tími sem ég á með börnunum mínum og mig langar ekkert að stytta hann,“ segir Karítas.

Hún segir allar mæður sem hún þekki í kringum sig hafa dreift greiðslunum, yfirleitt yfir níu til tólf mánuði. Þær taki á sig tekjulækkun til að geta verið lengur heima.

Dreifingin lækkar mánaðarlegar greiðslur

Greiðslur til launafólks í fæðingarorlofi miðast almennt við áttatíu prósent af meðaltali heildarlauna á tólf mánaða tímabili sem lýkur sex almanaksmánuðum fyrir fæðingarmánuð barns. Þær eru þó háðar lágmarki og hámarki.

Hvort foreldri á almennt rétt á sex mánaða orlofi og getur framselt sex vikur til hins. Annað foreldrið getur því tekið um sjö og hálfan mánuð og hitt um fjóra og hálfan.

Sé greiðslum fyrir sjö og hálfan mánuð dreift jafnt yfir tólf mánuði fær foreldrið fimmtíu prósent af viðmiðunarlaunum í hverjum mánuði, að því gefnu að hvorki greiðsluþak né lágmark hafi áhrif á útreikninginn. Launað sumarleyfi getur lengt tímann heima og þannig hægt að dreifa greiðslunum á færri mánuði.

Færa þurfi viðmiðið nær orlofinu

Ragna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um endurskoðun viðmiðunartímabilsins. Hún lagði tillöguna fyrst fram eftir að hafa sjálf snúið aftur úr fæðingarorlofi.

Hún telur of langt líða frá því tímabili sem greiðslurnar miðast við þar til foreldrar taki orlofið. Útreikningurinn geti því gefið skakka mynd af tekjum þeirra, sérstaklega hjá fólki sem sé nýkomið á vinnumarkað og hafi hækkað í launum. Þetta geti líka komið illa við feður sem taki stærstan hluta orlofsins síðar á fyrsta ári barnsins.

Ragna Sigurðardóttir er þingmaður Samfylkingar.Vísir/Vilhelm

Ragna vill færa viðmiðið nær töku orlofsins og taka betur tillit til aðstæðna foreldra, svo sem fyrra fæðingarorlofs og veikinda á meðgöngu.

„Það vantar undanþágur og meiri sveigjanleika til þess að taka tillit til aðstæðna fólks,“ segir Ragna.

Tillagan felur félags- og húsnæðismálaráðherra að endurskoða reglurnar vegna foreldra sem eignast börn með stuttu millibili og fólks sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnumarkaði. Ráðherra á samkvæmt henni að leggja fram frumvarp eigi síðar en 1. október 2027.

Ragnar Þór Ingólfsson er félags- og húsnæðismálaráðherra. Vísir/Vilhelm

Ragna segir ráðherra hafa tekið jákvætt í málið og að kostnaðarmat mismunandi útfærslna sé hafið. Hún, Ragnar Þór og Karítas funduðu saman í október. Karítas telur fundinn hafa gengið mjög vel. 

„Ragnar Þór tók vel í málið og ætlar að ganga rösklega til verks og láta kostnaðarmeta nokkrar leiðir. Hann benti jafnframt á að sníða mætti suma vankanta af kerfinu með einföldum breytingum. Ég treysti því að hann fylgi því eftir og klári þetta réttlætismál fyrir ungar barnafjölskyldur strax á haustþingi, frekar en að það velkist í starfshópi mánuðum eða árum saman,“ segir Karítas. 

Þrjátíu mánaða vernd

Bryndís Haraldsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur einnig lagt fram frumvarp með breytingum á útreikningnum.

Samkvæmt því verði fyrra greiðsluviðmið foreldris notað þegar innan við þrjátíu mánuðir eru liðnir frá því það öðlaðist síðast rétt til greiðslna úr Fæðingarorlofssjóði. Viðmiðið taki breytingum eftir launaþróun en almennar reglur gangi framar ef þær veita meiri rétt.

Um tuttugu mánuðir verða milli barna Karítasar miðað við áætlaðan fæðingarmánuð næsta barns. Það bendir til þess að hún gæti fallið undir þrjátíu mánaða skilyrðið, verði frumvarpið að lögum.

„Við viljum ekki að kerfið hafi áhrif á það hvenær fólk eignast börn,“ segir Bryndís.

Bryndís Haraldsdóttir er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og hefur lengi látið fæðingarorlofsmálin sig varða.Vísir/Anton Brink

Frumvarpið tekur einnig til fólks sem hefur nýlokið námi eða hafið störf eftir atvinnuleysi. Meðal annars er lagt til að fólk sem lýkur námi á síðustu tólf mánuðum fyrir umsókn geti öðlast rétt eftir þriggja mánaða samfellt starf. Þá eru lagðar til breytingar vegna sorgarleyfis.

Málið stendur Bryndísi nærri. Hún á tvö rúmlega eins árs barnabörn og bæði dóttir hennar og tengdadóttir eiga von á barni á ný. Í gegnum þær hafi hún kynnst þeim álitaefnum sem foreldrar standi frammi fyrir.

Vilji til samstarfs

Bryndís vonast til samstarfs þvert á flokka og segir hægt að nota frumvarp sitt sem grunn. Sjálfsagt sé að ráðuneytið fari yfir kostnað og útfærslu en samkvæmt greinargerð frumvarpsins hafa áhrif þess ekki verið kostnaðarmetin.

„Ég þarf ekki að eigna mér heiðurinn á einu né neinu,“ segir Bryndís.

Breytingarnar eigi þó ekki að bíða eftir heildarendurskoðun kerfisins.

„Ég held að það sem ég er að leggja til sé mikilvæg breyting sem við þurfum að sjá gerast hratt og vel.“

Vill átján mánuði með tekjuvernd

Helga Reynisdóttir, ljósmóðir og brjóstagjafaráðgjafi, tekur undir að útreikningurinn eigi ekki að bitna á foreldrum sem hafa stutt á milli barna. Hún vill jafnframt lengja orlofið.

„Í mínum draumaheimi gætu foreldrar valið að hafa barnið sitt heima í að minnsta kosti 18 mánuði með mannsæmandi tekjuvernd,“ segir Helga.

Þannig væri hægt að brúa bilið fram að leikskólagöngu og auka fyrirsjáanleika hjá fjölskyldum. Það sé ekki raunhæfur valkostur fyrir alla að dreifa óbreyttum greiðslum yfir fleiri mánuði.

„Það er dýrt að eignast barn og útgjöld heimilisins lækka ekki þegar tekjurnar skerðast,“ segir Helga.

Fjárhagurinn ráði miklu um hversu lengi foreldrar geti verið heima. Fólk með góðar tekjur og sparnað geti lengt tímann en aðrir hafi ekkert slíkt val.

„Ég vil að lengra orlof sé raunverulegur valkostur, líka fyrir fólk sem hefur ekki sparnað eða er með háar tekjur.“

Ráðleggingum fylgi aðstæður

Helga segir þurfa að styðja konur sem vilji halda brjóstagjöf áfram. Í íslenskum ráðleggingum er mælt með brjóstagjöf út fyrsta árið og lengur ef það hentar móður og barni. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin mælir með áframhaldandi brjóstagjöf með viðbótarfæðu til tveggja ára aldurs eða lengur.

„Mér finnst að ráðleggingum um brjóstagjöf þurfi að fylgja aðstæður sem gera konum kleift að fylgja þeim, ef þær vilja,“ segir Helga.

Það geti verið mikið álag að samræma brjóstagjöf og vinnu og aðstæður séu ólíkar eftir störfum og stuðningi vinnustaða. Samvera og næm umönnun hafi þó gildi óháð því hvernig barn sé nært.

„Réttur til góðs fæðingarorlofs á auðvitað að ná til allra foreldra, óháð því hvernig barnið er nært.“

Meðgangan og batinn ekki til helminga

Báðar þingkonurnar vilja verja sjálfstæðan rétt beggja foreldra. Bryndís vill þó skoða lengingu orlofs og aukinn sveigjanleika við skiptingu þess. Ragna telur tímabært að endurskoða löggjöfina í heild, meðal annars með stöðu einstæðra foreldra og fósturforeldra í huga.

Helga styður rétt beggja foreldra til samveru en telur jafna skiptingu ekki taka nægilegt tillit til meðgöngu, fæðingar og bata.

„Meðgangan var ekki 50–50, fæðingin var ekki 50–50, batinn eftir fæðingu var ekki 50–50 og brjóstagjöfin var ekki 50–50,“ segir Helga.

Hún vill að mæður fái tólf mánaða rétt og feður sex mánaða rétt. Fjölskyldur hafi svigrúm til að ráðstafa mánuðunum átján eftir aðstæðum og þörfum barnsins. Við lenginguna þurfi jafnframt að vernda lífeyrisréttindi og önnur starfstengd réttindi.

„Lengri tími með barninu á ekki að verða fátæktargildra eða bitna á öðru foreldrinu.“

Ein leið henti ekki öllum

Helga segir foreldra misjafnlega tilbúna að snúa aftur til vinnu. Sumar konur séu tilbúnar eftir hálft ár en aðrar alls ekki eftir rúmt ár.

„Við erum ólík, fjölskyldur eru ólíkar og ein útfærsla hentar ekki öllum,“ segir Helga.

Ragna leggur einnig áherslu á að konur geti valið hvenær þær snúi aftur til vinnu.

„Mér finnst stundum konur vera smánaðar fyrir það að vilja byrja að vinna fyrir tólf mánaða,“ segir Ragna.

Hún vill efla leikskólastigið svo það geti tekið við börnum að fæðingarorlofi loknu. Atvinnurekendur auðveldi foreldrum að samræma vinnu og umönnun, meðal annars með svigrúmi til brjóstagjafar og hlutastarfa.

Karítas vonast fyrst og fremst til að breytingar á útreikningi greiðslna nái fram að ganga. Hún segist hafa fundið vilja hjá báðum þingkonunum.

„Hvor þessara tillagna sem kemst í gegn og græjar þetta á skikkanlegum tíma væri bara flott niðurstaða,“ segir Karítas.

#fæðingarorlofssjóði #leyfa #mínu #neita #stjórna


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262957185d/-eg-neita-ad-leyfa-faedingarorlofssjodi-ad-stjorna-minu-lifi-

📰 Aðrar fréttir

Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
📅 06.11.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Örvæntingarfull tilraun skrímsladeildar til að gera ráðherra tortryggilegan vegna Landsvirkjunar
Örvænting stjórnarandstöðunnar og Morgunblaðsins hefur náð nýjum hæðum með þeirri ofuráherslu sem lögð hefur verið á að snúa út úr öllu sem snýr að má...
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Lögregla á þyrlu teiknaði typpi á flugkortið – „Ég er ekki reiður, ég er vonsvikinn yfir sóuninni“
Flugmaður lögregluþyrlu í Bretlandi hefur verið sakaður um að „teikna“ typpamynd á flugkort. Flugmaðurinn segist hafa verið að hringsóla við leit.Bres...
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
📅 06.11.2026 👁️ 1
Sprengjuhótanir í Evrópu – „Aðeins byrjunin á því sem bíður Evrópuríkja“
Breska sjónvarpsstöðin Sky, búlgarska stöðin Nova TV og RTÉ, írska ríkissjónvarpið, fengu í dag sprengjuhótanir. Rask varð á starfsemi enda þurfti að ...
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
📅 06.11.2026 👁️ 1
Gögn frá Akureyrarbæ sýna formlegar athugasemdir Síðuskóla við opinber skrif Helgu Daggar
Nútíminn hefur fengið afhent gögn frá Akureyrarbæ sem varpa nýju ljósi á ágreining Helgu Daggar Sverrisdóttur, fyrrverandi kennara við Síðuskóla, og s...
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
📅 06.11.2026 👁️ 1
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp
Kveikt í framhaldsskóla í Frakklandi – um þúsund nemendur inni þegar eldurinn kom upp Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Mikill eldur braust...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Upp­taka sýnir á­tökin sem leyddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 1
Upp­taka sýnir á­tökin sem leiddu til manndráps - Vísir
Þetta herma heimildir fréttastofu. Upptakan sýnir tvo menn fylgja feðgum eftir en mennirnir eru grunaðir um að hafa ætlað að kúga fé út úr syninum. Sa...
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
„Er þetta pöngurinn á honum?“ - Vísir
Fyrsta sería af ferðaþáttunum Einni stjörnu kom út árið 2024 þar sem Dóri og Steindi flökkuðu milli ólíkra staða í leit að einnar stjörnu afþreyingu o...
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sveitarstjóri Norðurþings: „Við könnumst bara ekki við þetta“
Elvar Árni Lund sagði upp starfi sínu sem sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Norðurþings vegna ágreinings um fyrirhugað vindorkuver á Hnotastein...
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Gefur út plötu og heldur út í Ung­frú al­heim - Vísir
Það er nóg um að vera hjá Siggu Ózk þessa dagana. Í dag gaf hún út aðra plötu sína, Pink Static, sem samanstendur af fimm glænýjum lögum auk hinna áðu...
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Stjörnugrís kennir Einari Loga um ástand grísanna í myndskeiðinu
Fyrra innbrot Einars Loga Péturssonar í gyltubú Stjörnugríss, 11. maí í vor, olli dýrunum hræðslu, óbætanlegum skaða og dauða og er dýraníð.Innbrotið ...
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íris Helga komin í nýtt nálgunarbann eftir ásókn gegn brotaþolum í vikunni
Lögreglan á Suðurnesjum birti Írisi Helgu Jónatansdóttur 12 mánaða nálgunarbann fimmtudaginn 5. nóvember, eftir atvik miðvikudaginn 4. nóvember síðdeg...
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
📅 06.11.2026 👁️ 2
Man attacked with machete outside his home in Corralejo
A 25-year-old man has been arrested after allegedly attacking another man with a machete at his home in Corralejo, leaving him with a seven-centimetre...
Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
📅 06.11.2026 👁️ 2
Faðir Meghan Markle var handtekinn í Flórída í dag grunaður um vörslu barnaníðsefnis
Thomas Markle eldri, faðir hertogaynjunnar Meghan Markle, hefur verið handtekinn af bandarísku alríkislögreglunni FBI. Frá þessu greinir The New York ...
Kourani beri á­byrgð á sprengjuhótununum - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kourani beri á­byrgð á sprengjuhótununum - Vísir
Opinberum stofnunum, leikskólum og fyrirtækjum hafa borist sprengjuhótanir undanfarna daga. Vísir greindi frá því í gær að Keflavíkurflugvelli hafi bo...
Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum
📅 06.11.2026 👁️ 2
Davíðstíminn: Davíð og frjálshyggjumennirnir kúventu afstöðu sinni til dreifðs eignarhalds á bönkunum
Davíð Oddsson og frjálshyggjumennirnir í kringum hann vildu upphaflega passa upp á að eignarhald bankanna eftir einkavæðingu yrði dreift og enginn fen...
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland
📅 06.11.2026 👁️ 2
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland
Sendimaður Trumps kynnir áætlanir um að endurmóta öryggismál í Evrópu í samráði við Rússland Fréttin6. nóvember 2026ErlentLeave a Comment Jared Kushne...
Markle hand­tekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Markle hand­tekinn fyrir vörslu barnaníðsefnis - Vísir
Fjölmiðlar vestanhafs og á Bretlandseyjum greina frá handtökunni.  Fjöldi alríkisfulltrúa tók þátt í aðgerðunum í borginni Lakeland, sem er skammt frá...
Segist starfa einn og reiknar með sekt - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Segist starfa einn og reiknar með sekt - Vísir
Einar Logi birti í gær myndband á Instagram af innbroti sínu í svínabú hjá Stjörnugrís. Forstjóri hjá Stjörnugrís segir myndbandið ekki gefa rétta myn...
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar
📅 06.11.2026 👁️ 2
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar
Snorri Másson gagnrýnir túlkun Samfylkingarinnar á kosningasigri demókrata – segir brottfararstöðina afhjúpa veikleika ríkisstjórnarinnar Fréttin6. nó...
Hafi brotist aftur inn til að geta dregið upp verri mynd - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hafi brotist aftur inn til að geta dregið upp verri mynd - Vísir
Einar Logi Pétursson, 25 ára karlmaður sem játað hefur innbrot í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ, birti í dag myndband af...
Kourani á bak við sprengjuhótanirnar
📅 06.11.2026 👁️ 2
Kourani á bak við sprengjuhótanirnar
Sprengjuhótanir sem hafa borist ýmsum ríkisstofnunum og fyrirtækjum hafa verið raktar til Sýrlands. Þær eru allar sendar úr sama netfangi sem Mohamed ...
Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu
📅 06.11.2026 👁️ 2
Segir fölsuð gögn hluta af greinargerð Írisar Helgu
Fjölskyldumeðlimur brotaþola í málinu gegn Írisi Helgu Jónatansdóttur sagði fölsuð gögn hafa verið í greinargerð sem hún lagði fyrir dóm. Aðalmeðferð ...
Faðirinn laus úr haldi vegna manndráps í Breiðholti
📅 06.11.2026 👁️ 2
Faðirinn laus úr haldi vegna manndráps í Breiðholti
Faðir sem handtekinn var í tengslum við rannsókn á manndrápi í Breiðholti aðfaranótt sunnudags er laus úr haldi.Þetta staðfestir Guðmundur St. Ragnars...
Brand's barrister refers himself to regulator after report he confronted journalist
📅 06.11.2026 👁️ 2
Brand's barrister refers himself to regulator after report he confronted journalist
Ian Winter allegedly confronted a reporter outside court who had investigated the comedian.
Íslenska sumargotssíldin sækir austur í haf og blandast norsk-íslenskri síld
📅 06.11.2026 👁️ 2
Íslenska sumargotssíldin sækir austur í haf og blandast norsk-íslenskri síld
Segja má að vertíðarskil séu hjá síldveiðiflotanum. Veiðum úr norsk-íslenska síldarstofninum fer að ljúka og þá hefjast veiðar á íslenskri sumargotssí...
New wave of bomb threats hit European airlines
📅 06.11.2026 👁️ 2
New wave of bomb threats hit European airlines
No link has been established between the threats against the airlines and those against the media outlets.
Mildar alla dauða­dóma í Kali­forníu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Mildar alla dauða­dóma í Kali­forníu - Vísir
Í opnu bréfi sem ríkisstjórinn birti í gær segir hann að eftir nærri því þrjátíu ára störf við opinbera stjórnsýslu hafi Newsom orðið þeirrar skoðunar...
AI stocks bounce back after trillions wiped from market values
📅 06.11.2026 👁️ 2
AI stocks bounce back after trillions wiped from market values
Investors had been selling off tech shares in part due to concerns the Democrat election victory would mean slower AI development.
Afhjúpar hræðilega aðferð til að aga börnin sín
📅 06.11.2026 👁️ 3
Afhjúpar hræðilega aðferð til að aga börnin sín
Sænski leikarinn Bill Skarsgård hefur hrætt milljónir kvikmyndagesta með hlutverkum sínum sem dansandi trúðurinn Pennywise í IT og sem greifinn Orlok ...
Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Sér sárlega eftir að hafa hafnað skrýtnu hlutverki: „Ég hugsaði of mikið um þetta“
Bandaríski leikarinn Matt Damon er í forsíðuviðtali GQ Men of the Year sem kom út í gær.
Is it the end of the road for Tesla's Cybertruck?
📅 06.11.2026 👁️ 3
Is it the end of the road for Tesla's Cybertruck?
The car company's CEO Elon Musk has said production will halt in Texas, to focus on the firm's self-driving Cybercabs.
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
📅 06.11.2026 👁️ 3
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“
„Reykjavíkurborg! Setjið rafmagnið á, fjandinn hafi það!“ Og setjist svo niður með hjólabúum á Sævarhöfða og leysið málið!“segir Kolbrún Baldursdóttir...
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
📅 06.11.2026 👁️ 2
Ætlaði að gera vel við sig daginn fyrir afmælið – Allt fór úr böndunum eftir að óvæntur grunur vaknaði
Karlmaður sem ætlaði að gera vel við sig í tilefni afmælis síns og pantaði vændiskonu á gistiheimili í Reykjavík hefur verið dæmdur í 60 daga skilorðs...
Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
📅 06.11.2026 👁️ 3
Jón Trausti svarar Hannesi: „Hvorki skrifuð af spjallmenni né skjallmenni“
Jón Trausti Reynisson, annar höfunda nýrrar bókar um Davíð Oddsson, vísar alfarið á bug fullyrðingum Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar um að bókin sé ...
Burnham says he was not aware of Brand's 'horrific' crimes
📅 06.11.2026 👁️ 3
Burnham says he was not aware of Brand's 'horrific' crimes
The prime minister told the BBC that Labour politicians courting the comedian a decade ago had not been aware of his crimes.
Trölli upp­seldur út árið - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Trölli upp­seldur út árið - Vísir
Mikil eftirvænting ríkir eftir jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum! sem verður frumsýndur á morgun. Björgvin Franz Gíslason fer þar með hlutverk...
Upp­selt út árið og sýningar næsta leik­árs komnar í sölu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Upp­selt út árið og sýningar næsta leik­árs komnar í sölu - Vísir
Mikil eftirvænting ríkir eftir jólasöngleiknum Þegar Trölli stal jólunum! sem verður frumsýndur á morgun. Björgvin Franz Gíslason fer þar með hlutverk...
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skilar sér ekki í vasa Íslendinga
📅 06.11.2026 👁️ 2
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu skilar sér ekki í vasa Íslendinga
Lækkun heimsmarkaðsverðs á olíu hefur ekki skilað sér í vasa íslenskra neytenda, segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bifreiðaei...
Faðirinn laus úr haldi - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Faðirinn laus úr haldi - Vísir
Faðirinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald seint á sunnudaginn til 9. nóvember en hefur nú verið látinn laus úr haldi þar sem rannsóknarhagsmunir hafa v...
Stefnir í sögu­lega mörg til­felli lekanda - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Stefnir í sögu­lega mörg til­felli lekanda - Vísir
Á fyrstu níu mánuðum ársins voru 283 greindir með lekanda en þar af voru 249 karlar. Samkvæmt því sem fram kemur í Farsóttarfréttum hefur tíðnin aukis...
Roskið fólk sankar að sér reiðufé
📅 06.11.2026 👁️ 3
Roskið fólk sankar að sér reiðufé
Almenningur, sérstaklega eldra fólk, hefur undanfarið verið að taka út reiðufé í stórum stíl og sumir háar upphæðir vegna upplýsinga í bæklingi almann...
Dagar Cybertruck virðast taldir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Dagar Cybertruck virðast taldir
Framtíð Cybertruck, hins umdeilda rafmagnspallbíls Tesla, er í mikilli óvissu eftir að Elon Musk tilkynnti að framleiðslu hans í Texas yrði hætt á næs...
Ís­lenskum hljóðgervli fagnað með tónlistarveislu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Ís­lenskum hljóðgervli fagnað með tónlistarveislu - Vísir
Fyrri hluta kvöldsins var vinum og velunnurum LOVE Synthesizers boðið í gleðskap þar sem skálað var fyrir útgáfu FIRST LOVE og hljóðfærið var kynnt. E...
Neighbour stabbed after row over unmuzzled dog near playground in Tenerife
📅 06.11.2026 👁️ 3
Neighbour stabbed after row over unmuzzled dog near playground in Tenerife
A 44-year-old man has been arrested after allegedly stabbing a neighbour in the chest following an argument about a dog being walked loose near a chil...
Hannes telur bókina um Davíð skrifaða með gervi­greind - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 2
Hannes telur bókina um Davíð skrifaða með gervi­greind - Vísir
Bókin, sem heitir Davíðstíminn – Sjálfstæð saga leiðtoga og lands, fjallar um Davíð Oddsson og þær vendingar sem hans stjórnartíð fylgdu. Ólafur Arnar...
Þriggja bíla árekstur á Hlíðarbraut
📅 06.11.2026 👁️ 3
Þriggja bíla árekstur á Hlíðarbraut
Þriggja bíla árekstur varð á Hlíðarbraut við Teigarsíðu á Akureyri um klukkan 12:30 í dag. Þetta staðfestir Jóhann Olsen varðstjóri hjá lögreglunni á ...
Viður­kennir mis­tök í hjóna­bandinu - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Viður­kennir mis­tök í hjóna­bandinu - Vísir
Greint var frá því í gær að Jen Affleck, ein stjarnan úr raunveruleikaþáttunum The Secret Lives of Mormon Wives, SLOMW, hefði sótt um skilnað við eigi...
Segir svín búa við hræðilegar aðstæður hjá Stjörnugrís – forstjóri hafnar ásökunum
📅 06.11.2026 👁️ 3
Segir svín búa við hræðilegar aðstæður hjá Stjörnugrís – forstjóri hafnar ásökunum
Segir svín búa við hræðilegar aðstæður hjá Stjörnugrís – forstjóri hafnar ásökunum Fréttin6. nóvember 2026InnlentLeave a Comment Einar Logi hefur birt...
Leik­skólar, stofnanir og fyrir­tæki fengið sprengju­hótanir - Vísir
📅 06.11.2026 👁️ 3
Leik­skólar, stofnanir og fyrir­tæki fengið sprengju­hótanir - Vísir
Vísir greindi frá því í gær að Keflavíkurflugvelli hafi borist sprengjuhótun. Sagði Ómar Mehmet Annisius, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurnesjum að h...