Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingkona Flokks fólksins, ítrekaði andstöðu sína við Evrópusambandið þegar hún steig í pontu á Alþingi í dag, þegar þingsályktunartillaga utanríkisráðherra um að hefja viðræður við Evrópusambandið á ný var samþykkt.
„Ég er og verð harður andstæðingur þess að Ísland gangi í Evrópusambandið og tel hagsmunum Íslands betur borgið utan þess Íslandi,“ sagði Lilja í ræðu sinni.
Þá ítrekaði hún þá afstöðu sína að hún teldi ríkt samfélag líkt og Ísland hafa alla burði til að búa landsmönnum góð kjör, en burðarstólpi þess yrði að vera full yfirráð yfir auðlindum landsins.
Íslendingar geti séð um sín mál sjálfir
„Þau verkefni sem þjóðin glímir við hverju sinni getur hún leitt sjálf betur heldur en ráðamenn í Brussel og eru undir stjórnvöldum hverju sinni komið. Það eru engar töfralausnir sem fást við inngöngu í ESB sem við sem fullvalda þjóð höfum ekki fulla burði til að leysa sjálf,“ sagði Lilja.
Hún lauk ræðu sinni á því að hún teldi rétt að þjóðin fengi að taka afstöðu til málsins sem hefði verið þrætuepli til margra ára, en að hún hefði gert upp sinn hug og kjósa gegn því að Ísland gangi til viðræðna við ESB um aðild.
„Ég mun segja nei 29. ágúst.“