„Ég knúsaði ekki mann­eskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ - Vísir

„Ég knúsaði ekki mann­eskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ - Vísir

„Ég knúsaði ekki mann­eskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína“ - Vísir

„Ég ætla að komast heim til hennar“

Þegar Vera greindist, í ágúst árið 2023, var hún nýútskrifuð sem tækniteiknari. Hálfu ári áður höfðu hún og maður hennar Ingvar Ásbjörn Ingvarsson eignast sitt fyrsta barn, hana Írisi Rán.

„Ég hafði nýlega klárað fæðingarorlof, bókstaflega. Daginn sem ég byrja að vinna enda ég með sjúkrabíl upp á bráðamóttöku og rússíbaninn byrjaði.“

Hún hafði verið með skrýtin einkenni í margar vikur. Sneiðmynd á bráðamóttökunni sýndi 14 sentímetra fyrirferð sem var að ýta á nýrað og brisið. Það þótti þó nokkuð ljóst frá upphafi að um krabbamein væri að ræða en endanleg greining kom ekki fyrr en viku seinna og niðurstaðan var sjaldgæf birtingarmynd bráðahvítblæðis.

Eftir að hafa verið veik lengi upplifði hún að eigin sögn ákveðinn létti við að fá loksins svör, þó svo að krabbameinsgreining sé alltaf mikið áfall.

„Ég hafði verið búin að fá það á tilfinninguna að ég væri bara eitthvað móðursjúk, því ég var búin að vera lasin svo lengi. Svo allt í einu fékk ég svör; það var til lækning, þótt hún væri mjög erfið, eða að minnsta kosti minna erfið ef maður þurfti ekki að fara í beinmergsskipti, sem ég þurfti ekki að gera. 

Ég var komin með lækningu, eða allavega verkefni til að vinna með.

Greiningin kom á tíma sem hjá flestum myndi snúast um nýja fjölskyldu, fyrstu skrefin eftir nám og einhvers konar upphaf að „fullorðins“ lífi. Í staðinn tók við meðferð sem yfirgnæfði allt annað. Lyfjameðferðin stóð yfir í sex mánuði, frá ágúst til janúar. Vera útskrifaðist úr lyfjameðferð í byrjun febrúar 2024 en fór einnig í geislameðferð, þannig að ferlinu var ekki að fullu lokið fyrr en í apríl. Allt í allt tók þetta sjö til átta mánuði.

Stór hluti þess tíma fór fram á deild 11EG, þar sem Vera var inn og út af spítala, oft í einangrun í um mánuð í senn.

„Á meðan krabbameinsmeðferðin drap niður ónæmiskerfið þurfti ég að vera í einangrun. Svo tók það alveg þrjár vikur fyrir gildin að fara aftur upp. Þá fékk ég smá pásu og mátti fara heim í fimm, sex eða sjö daga. Svo byrjaði lyfjameðferðin aftur. Og þó að ég væri heima hjá mér var ég samt í einangrun þar líka. Maður er svo ofboðslega viðkvæmur og allt getur komið í bakið á manni.“

Vera líkir þessu að einhverju leyti við Covid-tímann. Lífið fór inn í ákveðna „búbblu“.

„Maður þurfti að passa allt. Það mátti enginn koma nema nánasti hringur og enginn sem var með kvef. Það gilti líka þegar ég var heima. Ég knúsaði ekki manneskju í sex mánuði nema manninn minn og dóttur mína.“

Dóttir hennar kom stundum í heimsókn á deildina. Lengsta legan var í upphafi, eftir greininguna, þegar Vera var sex vikur í einangrun. Vinkonur hennar komu þá með poka af dóti svo dóttirin gæti haft eitthvað hjá sér inni á herberginu þegar hún kæmi í heimsókn. Það sem fór inn mátti ekki fara út aftur.

Vera lýsir því hvernig litla dóttir hennar varð hennar helsti drifkraftur í gegnum þetta allt saman.

„Ég ætla að komast heim til hennar“ var eins konar mantra fyrir Veru á meðan á einangrunni stóð. Aðsend

„Ég hugsaði allan tímann um hana: „Ég verð að komast heim til hennar, ég að komast heim til hennar.“ Það var mantran mín, það sem ég hélt í. 

Ég ríghélt í setninguna: „Ég ætla að komast heim til hennar.“

Litlu hlutirnir fá stærra vægi

Vera tekur skýrt fram að hún sé þakklát fyrir heilbrigðiskerfið og að kerfið hafi bjargað henni. Hún hafi fengið meðferðina án þess að þurfa að greiða fyrir hana og sé mjög þakklát fyrir það. En þakklæti útiloki ekki gagnrýni og eftir standi að það sé ýmislegt sem hægt sé að gera til að bæta aðstöðu sjúklinga í einangrun.

Í einangrunarherbergjunum á 11EG þurfi fólk oft að dvelja langtímum saman, oft mjög veikt, með lítið ónæmiskerfi og takmarkaða möguleika á að bjarga sér sjálft. Þar verða einfaldir hlutir eins og ísskápur, skjár, heyrnartól eða góður stóll ekki aukaatriði.

Vera segir að setningin „einn dagur í einu“ sé í raun einhvers konar lykilsetning í krabbameinsferlinu. Dagarnir verða viðráðanlegri þannig.

Hjá henni gat það til dæmis verið eitthvað mjög hversdagslegt, eins og bara einn góður kaffibolli.

„Þess vegna tengist þetta líka aðstæðunum uppi á krabbameinsdeildinni. Þegar ég fór að sofa á kvöldin hugsaði ég oft: „Á morgun verður geggjað að fá mér kaffibolla á kaffistofunni úr Nespresso-vélinni.“ Sem Landspítalinn keypti ekki. Hún kom frá styrkjum. Þetta var alltaf rúsínan í pylsuendanum á hverjum einasta degi.“

Vera nefnir að eitt sem hafi sárlega vantað inn á einangrunarherbergin þegar hún dvaldi á deildinni voru litlir ísskápar. Hún segir að slíkur ísskápur geti skipt miklu máli fyrir sjúkling sem kemst ekki út úr herberginu og þarf annars að biðja starfsfólk um allt.

„Mér skilst að það séu komnir einhverjir ísskápar núna, en alls ekki í öll herbergin og þeir eru í mismunandi ástandi. Oft er þetta bara eitthvað sem fólk gefur, sem það ætlaði annars kannski að fara með á Sorpu. Eitthvað sem er komið til ára sinna. Þegar ég var inni á deildinni þá var bara einn ísskápur sem var eiginlega of stór. Hann var inni á einu einangrunarherberginu. Sú sem hafði útvegað hann var stelpa sem hafði greinst með það sama og ég. Þetta var bara einhver gamall ísskápur sem vinafólk hennar kom með. Það heyrðist mjög mikið í honum, hann var ömurlegur og tók allt of mikið pláss. En þetta var samt eina herbergið sem mig langaði að vera í, því þar var ísskápur. Þá þurfti ég ekki að drekka heitt kók allan sólarhringinn. Ég gat verið með jógúrt og eitthvað lítið, því maður er með svo litla matarlyst. Þetta gerði herbergið aðeins heimilislegra.“

Að vera háð starfsfólki um allt

Vera segir að þegar maður sé veikur haldi maður í það að geta gert sem mest sjálfur. Það geti skipt öllu að geta farið sjálfur á klósettið, fengið sér eitthvað lítið að borða eða haft eitthvað innan seilingar án þess að þurfa alltaf að kalla á starfsfólk.

Hún bendir líka á að betri aðstaða gæti létt á starfsfólki. Ef sjúklingar hefðu meira inni hjá sér þyrftu hjúkrunarfræðingar síður að sinna smábeiðnum sem tengjast ekki beint meðferðinni. Starfsfólkið hafi nóg að gera fyrir.

„Maður er rosalega háður starfsfólkinu á deildinni. Það myndi örugglega líka létta á starfsfólkinu ef hvert einasta einangrunarherbergi væri eins og lítil íbúð. 

Það eina sem maður heldur í þegar maður er lasinn er að geta gert sem mest sjálfur. Maður vill geta farið sjálfur á klósettið og gert sér eitthvað að borða. Það skiptir öllu máli.

Ekki allir koma með iPad og Apple TV að heiman

Hlutir eins og sjónvörp, myndlyklar, Apple TV, iPad og heyrnartól hljóma kannski léttvægir fyrir þá sem hafa aldrei verið fastir inni í einangrunarherbergi vikum saman, en fyrir sjúklinga getur afþreying verið leið til að komast í gegnum daginn.

Vera þurfti sjálf að redda sér Apple TV. Vinahópurinn hennar og manns hennar lagði saman í iPad fyrir hana.

„Það hjálpaði mér rosalega mikið. En margir sem koma þarna inn, sérstaklega eldra fólk, eru ekki með neitt. Þetta er náttúrulega mestmegnis eldra fólk inni á deildinni, en svo er líka ungt fólk eins og ég sem horfir ekki á línulega dagskrá. Sumir koma bara inn og hafa ekkert.“

Hún tekur skýrt fram að heilbrigðiskerfið hafi bjargað henni og að hún sé þakklát fyrir meðferðina. Samt bendir hún á að það megi gera miklu betur í aðstæðum sjúklinga sem dvelja vikum saman í einangrun.Aðsend

Hún nefnir einnig heyrnartól sem mögulega einfalda úrbót.

„Það væri líka sniðugt. Eitthvað til að koma fólki í gegnum dagana. Rúmfjarstýringin er með hátalara, þannig að maður getur hlustað á útvarpið og eitthvað. En svo eru líka tvíbýli. Ég var mjög heppin og var eiginlega alltaf í sérbýli eða einangrunarherbergi. En einu sinni eða tvisvar lenti ég í tvíbýli. Í eitt skipti var ég með eldri konu sem heyrði ekki neitt. Hún var með rúmfjarstýringuna í botni að hlusta á RÚV eða Rás 1. Ég var hinum megin við gardínuna, bara að gera eitthvað, prjóna eða eitthvað slíkt. Þá var ég ekki með AirPods. Ég var bara föst þarna og þurfti að hlusta á það sem hún var að hlusta á.“

Vera minnist einnig á aðstöðuna fyrir aðstandendur. Þegar sjúklingur er mjög veikur geta makar, foreldrar eða aðrir nákomnir viljað vera hjá honum. Stundum gista þeir á deildinni en aðstaðan til þess er takmörkuð.

Hún nefnir betri stóla, ekki svefnsófa, heldur hægindastóla þar sem hægt er að halla sér aftur og setja fæturna upp. Hún veit að herbergin eru lítil og að plássið er vandamál, en segir að jafnvel einn góður stóll á réttum stað geti skipt máli.

„Þegar maður fær heimsókn, sérstaklega þegar maður er mikið veikur, og maki manns eða móðir manns er kannski að gista hjá manni, þá er oft engin aðstaða fyrir aðstandendur. Það voru einhverjir La-Z-Boy-stólar á mínum tíma, en þeir voru bara á flakki á milli herbergja. Það voru bara nokkur stykki. Oft voru þeir ekki lausir, eða þá var stóll inni á einangrunarherbergi og mátti ekki fara þaðan út.“

Annað sem Vera þurfti sjálf að útvega sér voru tann- og munnhirðuvörur. Það er atriði sem margir hugsa líklega ekki um í samhengi við krabbameinsmeðferð, en í tilfelli Veru var þetta algjör nauðsyn. Vera þurfti hins vegar sjálf að útvega þessar vörur. Hún segir að það hefði verið gott að fá einfaldlega pakka með slíkum vörum, svo sjúklingar þyrftu ekki að biðja aðstandendur um að redda þeim.

„Ein mesta sýkingarhættan í þessari meðferð, þegar maður er ekki með neinar varnir í líkamanum, er munnurinn. Ég mátti ekki raka mig, ég mátti ekki bursta tennurnar og alls ekki nota tannþráð. Mér byrjaði bara að blæða. Ég tannburstaði ekki tennurnar í marga mánuði.“

Úr núllpunkti í tíu kílómetra

Vera útskrifaðist úr meðferðinni í byrjun árs 2024 og var þá líkamlega „á botninum“ eins og hún orðar það. Hún þurfti að byrja upp á nýtt, byggja líkamann aftur upp og læra að treysta honum á ný.

Lyfjameðferðin stóð yfir frá ágúst til janúar og geislameðferðinni lauk ekki fyrr en í apríl. Þetta var ekki stuttur kafli heldur langvarandi tímabil þar sem lífið fór nánast alfarið inn á spítala og í einangrun.Aðsend

„Þegar ég útskrifaðist úr meðferðinni var ég í hópi í Ljósinu með konum sem höfðu verið með brjóstakrabbamein eða voru búnar með meðferð. Þær voru á öllum stigum ferlisins og voru að fara að taka þátt í skemmtiskokki eða 10 kílómetrunum. Ég var þá svo ofboðslega veikburða í líkamanum. Ég er venjulega um 60 kíló en var orðin 48 kíló. Ég var bara skinn og bein og hafði engan styrk. 

Ég þurfti að stoppa nokkrum sinnum á leiðinni upp tveggja hæða stiga heima hjá mér. Ég var gjörsamlega á núllpunkti.

Veru hafði verið tjáð á sínum tíma að krabbameinsmeðferðin myndi valda ófrjósemi. Hún fór í eggheimtu en niðurstöðurnar gáfu ekki tilefni til bjartsýni.

„Það var búið að segja við mig að ég væri ófrjó. Og ég var auðvitað mjög hrædd og leið yfir þeirri tilhugsun að geta ekki eignast annað barn og geta gefið dóttur minni systkini.“

Annað kom hins vegar á daginn.

Einungis örfáum mánuðum eftir að Vera útskrifaðist úr meðferðinni kom í ljós að hún var ófrísk. Sonur hennar, Breki, kom í heiminn í apríl á seinasta ári, sannkallað kraftaverkabarn, eins og Vera orðar það.

Vera hafði fengið þær upplýsingar að meðferðin myndi valda ófrjósemi og hafði óttast að geta ekki eignast annað barn. Nokkrum mánuðum eftir meðferðina varð hún ófrísk og eignaðist soninn Breka.Aðsend

Setur markið hátt

Núna ætlar Vera að hlaupa tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu og safna áheitum fyrir sjóð til styrktar blóð-og krabbameinslækningadeild 11EG Landspítala.

Framlög í sjóðinn nýtast til að bæta aðbúnað og líðan sjúklinga og aðstandenda þeirra á deildinni. Sjóðurinn gerir deildinni kleift að styðja við verkefni og úrbætur sem auka vellíðan og lífsgæði þeirra sem dvelja á 11EG.

Með söfnuninni vill Vera vekja athygli á því sem hún lærði inni á einangrunarherberginu á deild 11EG: að þegar veikindi taka yfir lífið geta litlir hlutir breytt miklu. Ísskápur er ekki bara ísskápur. Kaffibolli er ekki bara kaffibolli. Og það að geta gert eitthvað sjálfur, þótt það sé ekki meira en að ná sér í kaldan drykk eða smá jógúrt, getur skipt máli þegar allt annað hefur verið tekið úr höndunum á manni.

Fyrir Veru eru tíu kílómetrar svo sannarlega stórt markmið.

„Ég byrjaði í raun ekki að hreyfa mig af neinu viti fyrr en ég var í fæðingarorlofi með strákinn minn í fyrra. Þá fór ég í svona mömmutíma og náði að styrkja mig ótrúlega mikið. Að byrja frá núllpunkti og fara allt í einu að hlaupa tíu kílómetra er mjög stórt. Það mesta sem ég hafði hlaupið á ævinni var einn kílómetri. En ég var alltaf með þetta í hausnum: Ef ég get þetta, þá ætla ég að reyna.“

Þegar hún horfir til baka finnst henni ótrúlegt að vera komin á þann stað sem hún er á í dag.

„Ég hefði aldrei ímyndað mér þetta. Aldrei. Ég gat ekki hlaupið 10 kílómetra áður en ég fékk krabbamein, hvað þá eftir það. En ég get það núna.“

Hér má heita á Veru og styðja við starfsemi deildar 11EG.

#ekki #knúsaði #manneskju #mánuði #sex


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262908526d/-eg-knusadi-ekki-mann-eskju-i-sex-manudi-nema-manninn-minn-og-dottur-mina-

📰 Aðrar fréttir

Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
📅 15.10.2026 👁️ 1
Hundreds of IDF investigations into killings without public outcome, BBC Verify finds
BBC Verify has identified 254 incidents from the past three years the Israeli military said it is reviewing after being accused of harm.
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
📅 15.10.2026 👁️ 2
Falin myndavél fannst í sturtum kvenkyns hermanna
Varnarmálaráðuneyti Ástralíu hefur hafið rannsókn á því hvernig falin myndavél rataði í klefa um borð í einu skipa sjóhersins.Ábending um að myndavéli...
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
📅 15.10.2026 👁️ 2
Bækur Sally Rooney teknar úr sölu vegna stuðnings við Palestine Action
Írski rithöfundurinn Sally Rooney segist vera tilneydd til að taka bækur sínar úr sölu í Bretlandi vegna stuðnings hennar við samtökin Palestine Actio...
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
📅 15.10.2026 👁️ 2
White House defends new press secretary Katie Zacharia amid questions about her legal credentials
Katie Zacharia does not appear to be registered to the legal bar in any state where she has lived.
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
📅 15.10.2026 👁️ 1
North Korea and China open new bridge after 12-year delay
China is the North's largest trading partner and a lifeline against the sanctions Pyongyang faces.
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
📅 15.10.2026 👁️ 3
Viðvaranir gular en áfram hríð og óvissustig vegna snjóflóðahættu
Veðurviðvaranir eru nú allar gular en enn þá er norðan- eða norðvestanhríð í þeim landshlutum þar sem viðvaranir gilda.Á Vestfjörðum er slæmt skyggni ...
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
📅 15.10.2026 👁️ 2
Retired US generals call on Pentagon to cancel livestream execution
Livestreaming the execution of Nidal Hasan "will taint the honor of the military that employs it, and a nation that allows it," 72 former officers sai...
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
📅 15.10.2026 👁️ 3
Nýtt háskólanám í vímuefnaráðgjöf hefst næsta haust
Háskólaráð Háskólans á Akureyri samþykkti nýverið að bjóða upp á tvær nýjar námsleiðir við skólann. Það verður boðið upp á diplómu- eða meistaranám í ...
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 5
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
📅 14.10.2026 👁️ 1
SOS Children's Villages International withholds report into its role in 'disappeared' Syrian children
SOS Children's Villages International has acknowledged that more than 140 children were taken to its facilities by Syrian security services.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 5
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 5
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 5
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 5
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
📅 14.10.2026 👁️ 3
Why Zelensky's meeting with Burnham matters
Prime Minister Andy Burnham welcomed President Zelensky to Downing Street on Wednesday, as Ukraine's leader looks to shore up his European allies five...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
📅 14.10.2026 👁️ 1
What if you could turn off your algorithm? Australia is about to try
New legislation is being tabled in Australia's parliament on Thursday to force big tech to allow users to switch off algorithms which send them recomm...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...