Eftirskjálfti varð vestur af Hengli tæplega tuttugu mínútum eftir fjögur í dag. Skjálftinn var af stærðinni 3,8 og er því stærsti eftirskjálftinn hingað til. Búast má við eftirskjálftum áfram í dag og á morgun, og jafnvel næstu daga.
Skjálfti af stærðinni 4,5 reið yfir svæðið fyrr í dag.