Varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir að þrír hafi verið fluttir á slysadeild.
Hið minnsta tveir bílar sjást á myndskeiði sem fréttastofu barst af vettvangi talsvert illa leiknir. Báðir bílarnir höfðu hafnað utan vegar og einum hafði verið ekið utan í tré við vegkantinn.
Varðstjórinn kvaðst ekki getað tjáð sig um þátt lögreglu í aðgerðinni og ekki hafa fengist upplýsingar frá lögreglu vegna málsins.
Sjónarvottar lýsa því við Vísi að lögreglan virtist hafa veitt bíl eftirför úr Hafnarfirði.
Á einu myndskeiði sem Vísir fékk sent virðist lögreglan elta ljósan fólksbíl sem er ekið er á mikilli ferð upp frárein af Reykjanesbraut. Þegar ökumaður virðist reyna að taka fram úr öðrum bíl á fráreininni rekst hann í þriðja bílinn, sem hafnar svo utan vegar.
Ljósi bíllinn hafnar síðan sjálfur á tré á umferðarslaufunni. Myndir af vettvangi sýna mikið tjón á bílnum.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Veistu meira um málið? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.