Dvalartími erlendra stúdenta og blaðamanna í Bandaríkjunum verður styttur, samkvæmt nýjum reglum stjórnvalda. Þetta er einn liður í að draga úr straumi innflytjenda til landsins.
Reglurnar kveða á um að erlendir blaðamenn geti dvalið að hámarki í 240 daga, eða um átta mánuði í Bandaríkjunum. Þeir geta svo sótt um 240 daga framlengingu. Áður gátu þeir fengið leyfi í nokkur ár. Sérreglur gilda um kínverska blaðamenn - þeir geta aðeins fengið 90 daga dvalarleyfi.
Hámarksdvalarleyfi stúdenta verður fjögur ár samkvæmt reglunum, eða það sem til þarf til að ljúka náminu. Ekkert slíkt hámark var í gildi áður.
Vilja stöðva eilífðarstúdenta
Reglurnar voru fyrst kynntar í ágúst 2025 og voru þá gagnrýndar harðlega, en þeim hefur lítið verið breytt síðan og er nú stefnt að því að þær taki gildi í september. Rökin gagnvart stúdentunum voru þau að dæmi væru um að útlendingar væru endalaust að lengja í námi sínu og gætu endað sem eilífðarstúdentar í landinu. Ríflega milljón erlendir stúdentar voru skráðir í landinu veturinn 2023-2024.
Donald Trump hafði lagt slíkar tillögur fram á fyrra kjörtímabili sínu, en þær voru lagðar til hliðar þegar Joe Biden tók við. Þingið þarf að samþykkja reglurnar til að þær taki gildi, en þar ráða Repúblíkanar ríkjum.