Dugar EES?

Dugar EES?

Dugar EES?

Dugar EES?

Hversu væn­leg­ur er sá val­kost­ur fyr­ir Ís­land að treysta á að óbreytt ástand haldi?

Núverandi umgjörð Evróputengsla Íslands hefur í rúm 30 ár grundvallast á samningnum um Evrópska efnahagssvæðið (EES). Schengen-samningurinn um vegabréfasamstarf og aðrir minni háttar samningar um sértækt samstarf við Evrópusambandið, aðildin að Evrópuráðinu (sem rekur Mannréttindadómstól Evrópu og er óháð ESB) og fleiri samstarfsstofnunum Evrópuríkja eins og Norðurlandasamstarfinu, Eystrasaltsráðinu, ÖSE og OECD skiptir allt máli, en kemst hvergi í hálfkvisti við mikilvægi EES-samningsins. Hvað varðar öryggismál skiptir síðan aðildin að Atlantshafsbandalaginu (NATO) mestu máli – flest Evrópuríki eru þar aðilar auk bandamannanna vestanhafs. 

Mat á því hvort óbreytt umgjörð Evróputengsla Íslands geti dugað til að gæta hagsmuna landsins í bráð og lengd felst því fyrst og fremst í því að meta hversu áreiðanlegur EES-samningurinn er og hvort aðildin að honum veiti t.d. fullnægjandi skjól fyrir viðskiptahagsmuni Íslands í breyttum heimi þar sem viðskiptastríð með ofurtollum geta skollið á með engum fyrirvara eins og dæmin sanna. 

Ekki hugsaður sem langtímalausn

Þegar EES-samningurinn var saminn (1990–1992) var hann ekki hugsaður sem langtímalausn, heldur frekar eins konar biðstofa fyrir EFTA-ríki sem af pólitískum ástæðum – ekki sízt hlutleysi í kalda stríðinu – sáu sér ekki fært að ganga í ESB. Þessar ástæður féllu brott við hrun Austurblokkarinnar, sem varð einmitt á meðan samningurinn var í smíðum. Árið 1992 höfðu öll EFTA-ríkin nema Ísland – Austurríki, Finnland, Noregur, Svíþjóð og Sviss – sótt um fulla ESB-aðild.

Það voru síðan tvær þjóðaratkvæðagreiðslur sem urðu bæði EFTA og EES til lífs: Þjóðaratkvæðagreiðsla í Sviss í desember 1992, þar sem naumur meirihluti felldi fullgildingu EES-samningsins, og þjóðaratkvæðagreiðslan í Noregi 1994, þar sem norskir kjósendur felldu aðildarsamning við ESB í annað sinn síðan 1972. Hin EFTA-ríkin – Austurríki, Finnland og Svíþjóð – gengu í sambandið í ársbyrjun 1995. 

Þannig æxlaðist það að EFTA-stoð EES lifði af með þrjú aðildarríki, Noreg, Ísland og furstadæmið Liechtenstein, sem er örríki á milli Austurríkis og Sviss og hafði lengi verið í tolla- og myntbandalagi við Sviss, en því tókst að semja um sjálfstæða aðild að EES eftir að Svisslendingar höfnuðu samningnum. Og EFTA lifði af með fjögur aðildarríki. 

Þetta er rifjað upp hér því það er allt annað en sjálfsagt að það hagsmunabandalag sem með þessari tilviljanakenndu atburðarás myndaðist á milli núverandi aðildarríkja EFTA og EES sé meitlað í stein. Samstaða þessara smáu og ríku Vestur-Evrópuþjóða um rekstur EFTA og EES hefur vissulega haldið í þrjá áratugi, en engin trygging er fyrir því að hún haldi í áratugi í viðbót. Í þessu felst óvissa fyrir framtíðarhagsmuni Íslands. 

Breyttur heimur veldur mestri óvissu

Eins og rakið var í fyrstu grein þessa greinaflokks felst þó mesta óvissan í því hversu óútreiknanleg stjórnvöld í Bandaríkjunum, stærsta efnahags- og hernaðarveldi okkar heimshluta, eru orðin. Þegar Bandaríkjaforseti gerði atlögu að því að sölsa undir sig Grænland, næsta grannland Íslands, veturinn 2025–2026 reyndi hann meðal annars að beita þvingunaraðgerðum gegn Danmörku fyrir að vilja ekki „selja“ Bandaríkjunum Grænland. Að skella ofurtollum á útflutning frá Danmörku til Bandaríkjanna var þó hægara sagt en gert þar sem Danmörk er í tollabandalagi Evrópusambandsins. Þannig verndaði ESB-aðildin Danmörku frá þvingunaraðgerðum Bandaríkjastjórnar. Þungavigtarríki ESB og Evrópustoðar NATO sýndu líka hiklausa samstöðu með Danmörku í deilunni, sem tvímælalaust hjálpaði til. Deilan er þó enn óleyst „í nefnd“. 

Ísland er í gegnum EES aukaaðili að innri markaði ESB, en stendur þó utan tollabandalags og sameiginlegrar viðskiptastefnu þess. Að því leytinu væri Ísland mjög berskjaldað ef það yrði fyrir hliðstæðri atlögu af hálfu Bandaríkjastjórnar (eða annars stórveldis?) og Grænlendingar hafa fengið að upplifa undanfarin misseri. Í þessum aðstæðum er það veikleiki fyrir íslenzka hagkerfið, sem er mjög háð utanríkisviðskiptum, að standa utan tollabandalags. Með öðrum orðum: Í þessu felst óvissa fyrir framtíðarhagsmuni Íslands. 

Mat ESB á EES skiptir máli

Við mat á framtíðarmöguleikum EES-samstarfsins er líka nauðsynlegt að taka tillit til þess hvernig stjórnvöld ESB-ríkja og stofnanir ESB líta á þetta samstarf. Víst er að í stjórnsýslu ESB er vitneskja um og þekking á EES-samningnum lítil, enda er samningurinn mikið jaðarfyrirbæri í stóra samhengi allrar starfsemi ESB. En þrátt fyrir þverrandi þekkingu innan stjórnsýslu ESB á EES-samningnum hefur tekizt að halda honum gangandi stóráfallalaust í rúma þrjá áratugi. Margítrekað hefur sameiginlega EES-nefndin ályktað að „rekstur EES-samningsins gangi vel“. 

Lýðræðishallinn og lærdómar af Brexit

EES-samningurinn komst þó óvænt í brennidepil evrópskra stjórnmála í tengslum við samninga Breta um útgöngu úr Evrópusambandinu 2016–2020, þar sem Bretar skoðuðu þann valkost að haldast innan innri markaðarins með því að gerast aðilar að EFTA og EES. Þessum valkosti, sem þeir nefndu „norska módelið“, höfnuðu þeir hins vegar mjög ákveðið eftir skoðun, þar sem sú áskrift að Evrópulöggjöf án raunverulegrar aðkomu að gerð hennar sem í EES-aðild felst kom ekki til greina fyrir stórþjóðina Breta (sem gengu úr ESB undir slagorðinu „take back control“ eða „tökum aftur stjórnina“). 

Þessi veikleiki EES-samstarfsins, sem Bretum leizt svona illa á, er innbyggður lýðræðishalli í ákvarðanatökukerfi þess. Löggjafarstofnanir EFTA-ríkjanna í EES, þ.e. fyrst og fremst þjóðþing Íslands, Noregs og Liechtenstein, hafa enga aðkomu að gerð nýrra EES-gerða fyrr en þær berast frá Brussel sem orðinn hlutur, sem þeim ber síðan að innleiða í löggjöf síns lands með takmörkuðu svigrúmi til aðlögunar að aðstæðum á hverjum stað. 

„Fræðimenn tala reyndar gjarnan um tvöfaldan lýðræðishalla EES“

Fræðimenn tala reyndar gjarnan um tvöfaldan lýðræðishalla EES, þar sem þessi nefndi lýðræðishalli í ákvarðanatöku innan EES bætist ofan á þann lýðræðishalla sem löggjafarferlið innan ESB er oft sakað um. Við þessa lýðræðislegu galla á löggjafarferli EES hafa Ísland og hin EFTA-ríkin í EES þó kosið að una við, en eins og dæmið um skoðun Breta á EES sem valkosti í Brexit sýnir þá eiga ríki erfiðara með að una við þetta kerfi eftir því sem það er stærra. 

Furstadæmið Liechtenstein var fyrir tíma EES vant að una við lög samin í Bern, Ísland var í sinni löggjafarsmíði vant að leita óspart í fyrirmyndir í löggjöf hinna Norðurlandanna og hefur því átt auðvelt með að venjast löggjafaráskriftinni frá Brussel (sem nær enda bara til gildissviðs EES-samningsins sem fyrst og fremst tengist viðskiptum), en Noregur, „stórveldið“ í EFTA-stoð EES síðan 1995, á erfiðara með það á köflum. Þetta kemur m.a. skýrt fram í þeim úttektum sem norsk stjórnvöld hafa látið gera á EES-aðildinni bæði árið 2012 og árið 2024. Í báðum þessum úttektum er mikið fjallað um það vandamál hve litla aðkomu norsk stjórnvöld hafa að gerð EES-löggjafar og þær neikvæðu afleiðingar fyrir lýðræðismenningu norks samfélags sem þessi eiginlega áskrift að reglum sömdum annars staðar veldur. 

„Formleg fullveldi“ helzta vandamálið?

Það má því heita kaldhæðnislegt, að aðalástæðan fyrir þessum göllum á löggjafarferli EES út frá hugmyndum um lýðræðislegt lögmæti eru til komnar af viðleitni til að viðhalda formlegu fullveldi EFTA-ríkjanna í EES, þ.e. að þau framselji ekki formlegt löggjafarvald til samþjóðlegra stofnana ESB. En þannig er það; EFTA-ríkin í EES þurfa að una því að vera í reynd áskrifendur að reglum sömdum af öðrum í nafni þess að viðhalda formlegu fullveldi sínu í EES-samstarfinu og til að tryggja einsleitni löggjafar á öllu EES-svæðinu. Um þetta atriði sem einkennir EES-samstarfið er almennt ekki mikið fjallað í hinni pólitísku umræðu um EES-aðild Íslands. Vegna þess ótvíræða ávinnings fyrir efnahagslíf landsins sem EES-aðildin hefur haft í för með sér hafa kerfislægir gallar samstarfsins eins og þessi frekar ratað í skuggann í opinberri umræðu um EES á Íslandi. En þessir gallar eru samt eftir sem áður til staðar. 

Í kring um aldamótin síðustu, þegar EES-samningurinn hafði verið í gildi í minna en áratug, voru uppi hugmyndir um að uppfæra samninginn einkum vegna þess hve miklar breytingar höfðu orðið á sáttmálagrunni ESB síðan samningurinn var gerður. Þær hugmyndir urðu þó að engu og enn hefur ekki verið gerð tilraun til að uppfæra EES-samninginn sjálfan. 

Sú staðreynd að lagagrunnur EES sé stofnsáttmáli ESB eins og hann var fyrir gildistöku Maastricht-sáttmálans hefur valdið nokkrum vandkvæðum við framkvæmd EES-samningsins eftir því sem stofnsáttmáli ESB hefur tekið frekari breytingum. Síðasta stóra slíka breytingin tók gildi með svonefndum Lissabon-sáttmála árið 2009. Þrátt fyrir þetta hefur hingað til ávallt tekizt að finna lausnir sem allir samningsaðilar hafa getað unað við. Engin trygging er þó fyrir því að svo verði um ókomna áratugi. Í þessu felst óvissa fyrir framtíðarhagsmuni Íslands í EES-samstarfinu. 

Tækifæri í sveigjanlegum samruna? 

Nú eru liðin 13 ár síðan Evrópusambandið stækkaði síðast, en það var við inngöngu Króatíu 1. júlí 2013. Vegna þess hve hægt aðildarviðræður við núverandi umsóknarríki – sem flest eru á vestanverðum Balkanskaga – hafa gengið hefur gagnrýni á kerfi stækkunarmála hjá ESB aukizt. Innrás Rússa í Úkraínu 2022 og bein og óbein afskipti Rússa af innanríkismálum Moldóvu rak Evrópusambandið til að taka sér tak í þessu efni og bjóða báðum þessum ríkjum á austurjaðri álfunnar upp á hraðað ferli aðildarsamninga. 

Mikilvægi þess að geta boðið Úkraínumönnum og íbúum Moldóvu upp á raunhæfa framtíðarsýn sem aðilar að velmegunar-, lýðræðis- og réttarríkisklúbbi Evrópusambandsins hefur orðið til þess að endurvekja hugmyndir um sveigjanlegan samruna. 

Í Bretlandi hafa margir stjórnmálamenn líka stokkið á slíkar hugmyndir, þar sem mikill meirihluti Breta hefur nú sannfærzt um að útgangan úr sambandinu hafi verið mistök. Það skyldi þó ekki vera nema að þarna færu hagsmunir samrunaviljugra þjóða á austurjaðri álfunnar og samrunakrítískra þjóða á norðvesturjaðri hennar saman? Að þeim byðist sveigjanlegt samrunamódel, þar sem hver ný aðildarþjóð tæki aðeins þátt í þeim samstarfsþáttum ESB sem hún treysti sér til en sleppti öðrum? Og semdi sig kannski síðar inn í þá þætti sem hún kaus (eða neyddist til) að sleppa í upphafi? 

Hvað sem úr slíkum hugmyndum um sveigjanlegan samruna verður, þar sem sum aðildarríki kjósa að ganga lengra í samstarfi en önnur, en allar vinni þó saman undir sameiginlegum merkjum ESB, þá blasir við að slíkar lausnir gætu hæglega tekið við því hlutverki sem EES-samningurinn hefur gegnt fyrir a.m.k. Ísland og Noreg síðastliðna þrjá áratugi. Þessi þróun veldur m.ö.o. óvissu um framtíð EES. 

Dugar EES? Það er óvíst

Samantekið er því hægt að svara spurningunni sem spurt er í yfirskrift þessarar greinar á þessa leið: Veikleikar EES-samstarfsins sem vakin er athygli á hér að ofan eru frekar líklegir til að ágerast en hitt. Rekstur EES hefur vissulega gengið stóráfallalaust á þeim tiltölulega lygna sjó sem ríkti í alþjóðaumhverfi Íslands síðustu áratugi. En í þeim ólgusjó sem fylgir breyttum heimi (og lýst var í síðustu grein) væri óvarlegt að treysta á að lausnir gærdagsins dygðu við áskorunum morgundagsins. 

Um öryggis- og varnartengda þætti þeirra breytinga sem hafa orðið á alþjóðaumhverfi Íslands verður fjallað í sjöttu grein þessa greinaflokks. 

Næst: Grein 3 fjallar um þann valkost að ganga í Evrópusambandið, þar sem samanburður á aðstæðum í fyrstu atrennu aðildarviðræðna 2009-2013 eru bornar saman við aðstæður nú. 


Höfundur er með meistaragráður í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum.
#dugar #ees


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/26922/dugar-ees/

📰 Aðrar fréttir

Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
📅 22.10.2026 👁️ 1
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar
Kristnir sæta vaxandi ofsóknum í Kína – handtökur, kirkjulokanir og eftirlit kommúnistastjórnarinnar Fréttin22. október 2026Erlent, Mannréttindi, Trúm...
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
📅 22.10.2026 👁️ 1
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll
Bresk lyfjayfirvöld afturkalla leyfi bóluefnis eftir alvarlegar aukaverkanir og tilkynningar um dauðsföll Fréttin22. október 2026Bólusetningar, Erlent...
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex - Vísir
Vísir fjallaði á þriðjudaginn um þennan gjörning Axels sem ákvað að sýna í beinu streymi á TikTok frá sér skríða frá Njarðvík til Bessastaða þar sem h...
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Hættir við að af­létta ráðningarbanni vegna manndráps - Vísir
Þetta kemur fram í svari félags- og húsnæðismálaráðuneytisins við fyrirspurn Vísis. Vísir greindi frá áformunum á þriðjudag, en Einhverfusamtökin höfð...
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Félag atvinnurekenda mótmælir leigubremsu á atvinnuhúsnæði - „Hyggjast skerða samningsfrelsi“
Félag atvinnurekenda (FA) gerir alvarlegar athugasemdir við að fyrirhuguð leigubremsa muni einnig ná til atvinnuhúsnæðis. Engin fullnægjandi rök hafi ...
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
📅 22.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón
Öflugur jarðskjálfti af stærð 7,0 skekur Tíbet – óttast umfangsmikið tjón Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Öflugur jarðskjálfti af stærð 7...
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
📅 22.10.2026 👁️ 1
Hafa ekki hugmynd um útbreiðslu ólöglegra peptíða
Engin gögn eru til um hversu útbreidd notkun ólöglegra peptíða er hér á landi. Efnagreining á stórri sendingu sem Tollgæslan haldlagði frá Kína leiddi...
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 1
Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingju­söm? - Vísir
Fundurinn fer fram í Hátíðarsal HÍ frá klukkan fjögur til fimm. Halla og Sunstein munu sérstaklega ræða hvernig sjónarmið ungs fólks geta mótað stafræ...
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
📅 22.10.2026 👁️ 1
Ekki krónu varið í bókakaup á nokkrum leikskólum
Til eru leikskólar hér á landi þar sem ekki er gert ráð fyrir að krónu sé varið til bókakaupa vegna fjárskorts. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem G...
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Vill bæta eftir­lit með lyfjagjöfum aldraðra - Vísir
Málið var tekið upp á Alþingi í dag í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringaþáttanna Kompáss um umfang svefnlyfjanotkunar og Kveiks um lyfjanotkun aldraðr...
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
📅 22.10.2026 👁️ 1
Starmer gæti þurft að bera vitni vegna nauðgunargengja í rannsókn sem hann fyrirskipaði sjálfur
Keir Starmer, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, gæti þurft að bera vitni fyrir rannsóknarnefndinni sem hann sjálfur boðaði til að rannsaka pakis...
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
📅 22.10.2026 👁️ 1
Finnskir hvolpar í beinni útsendingu slá í gegn
Pentulive er komið í loftið í sjötta sinn hjá finnska ríkissjónvarpinu Yle og viðbúið er að áhorfsmet falli. Yfir sex milljónir hafa þegar horft á Pen...
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
📅 22.10.2026 👁️ 1
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“
Pútín, Xi og Trump gætu átt „sögulegan leiðtogafund“ Fréttin22. október 2026ErlentLeave a Comment Júrí Úshakov. Vladimír Pútín Rússlandsforseti, Xi Ji...
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Fjar­vera Þor­gerðar á pari við for­vera hennar - Vísir
Þetta kemur fram í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu. Samkvæmt útreikningi fréttastofu nemur meðaltal fjarveru utanrík...
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
📅 22.10.2026 👁️ 3
Oddur Thorarensen Stefánsson skrifar: Hver ber ábyrgð á árunum sem tapast?
Skólaár byrjar og endar. Næsta skólaár tekur við. Fyrir þann sem bíður eftir nauðsynlegri aðstoð getur þetta þýtt að enn eitt tækifærið líður hjá. Þeg...
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
📅 22.10.2026 👁️ 2
Flóttamaður með þrjú nöfn fór huldu höfði eftir nauðgunarákæru – Fingraför komu upp um hann á Keflavíkurflugvelli
Meintur nauðgari hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 19. október, en hann hafði verið í felum til að sleppa annars vegar undan ákæru fyrir kyn...
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Vilja af­sökunar­beiðni frá Kim vegna jarð­sprengju - Vísir
Yfirvöld í Suður-Kóreu ætla að senda bréf til öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna þar sem kallað verður eftir því að ráðamenn í Norður-Kóreu biðjist afsöku...
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
White Lotus-stjarna bætist í leik­hópinn - Vísir
Bransamiðillinn Hollywood Reporter greinir frá ráðningunni. Spennumyndin Hafið er svart (Dark Ocean á ensku) er framleidd af Glassriver en Baldvin Zop...
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
📅 22.10.2026 👁️ 3
Væri eðlilegast að draga umsókn til baka en er ekki á stefnuskránni
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki ætla að styðja þingsályktunartillögu formanna stjórnarandstöðuflokkanna um að draga formlega til ba...
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Síminn stoppar ekki vegna heimildar­myndar - Vísir
Myndin er úr smiðju bandaríska sjónvarpsmannsins Nathan Fielder sem gert hefur garðinn frægan með sjónvarpsþáttunum Nathan For You og síðast The Rehea...
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
📅 22.10.2026 👁️ 3
Six months of overnight roadworks to begin on the TF-1 this Sunday
Night-time traffic restrictions are due to begin on the TF-1 this Sunday, 25th October, as the Tenerife Cabildo starts a six-month programme to resurf...
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Gríðar­leg sjúkdómsbyrði meðal niður­staðna - Vísir
Skýrsla vinnuhóps sem Alma Möller heilbrigðisráðherra skipaði í ágúst 2025 var birt í dag. Markmið hópsins var að fjalla um fyrirkomulag heilbrigðisþj...
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Eftir­sjá að Eggerti: „Lífið heldur á­fram“ - Vísir
Guðlaug Rakel Guðjónsdóttir, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja, segir stofnunina hafa viljað halda Eggerti áfram. Vísir greindi frá ráðningu h...
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kempa leik­stýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra - Vísir
Bransamiðillinn Deadline greinir frá tíðindunum. Stóri bróðir/Vigilant er samevrópskt samstarfsverkefni íslenska framleiðslufyrirtækisins ACT4, streym...
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifs­stöð - Vísir
Þetta segir í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, sem kveðinn var upp þann 19. október og staðfestur af Landsrétti í gær. Í honum segir að í greinargerð ...
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
📅 22.10.2026 👁️ 3
Opnað fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA - Þú getur tekið þátt í valinu
Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Viðurkenninga FKA 2027. Atvinnulífið og almenningur eru hvött til að tilnefna konur sem hafa skarað fram úr, ...
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
📅 22.10.2026 👁️ 3
Afhjúpar átakanlegan veruleika að baki brúðkaupsþætti Friends
Systir Matthew Perry sagði að hinn frægi þáttur Friends, þar sem persóna hans, Chandler, gengur að eiga Monicu, hafi verið fjölskyldu Perry bæði gleði...
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
📅 22.10.2026 👁️ 3
Svarthöfði skrifar: Tók þá fjallið jóðsótt og fæddist lítil mús
Ekki er laust við að margir hafi hreinlega verið búnir að gleyma Sigurði Inga Jóhannssyni, fyrrverandi formanni Framsóknar. Ugglaust héldu margir að h...
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 3
Landsnet og landeigendur ræða aftur saman um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
📅 22.10.2026 👁️ 3
Landsnet vill ræða aftur við landeigendur um Holtavörðuheiðarlínu 1
Landsnet hefur tilkynnt landeigendum á fyrirhugaðri leið Holtavörðuheiðarlínu 1 að viðræður um bætur fyrir land hefjist að nýju á næstunni.Landsnet he...
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Dóttir Kol­brúnar skrifar undir harða við­vörun um leigu­bremsuna - Vísir
Karen Áslaug Vignisdóttir, framkvæmdastjóri hagfræði og peningastefnu hjá Seðlabankanum, undirritar umsögn bankans ásamt Flóka Halldórssyni, framkvæmd...
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir
Úkraínskur maður handtekinn í Þýskalandi grunaður um njósnir Alrík­is­sak­sókn­ari segir mann­inn hafa aflað upp­lýs­inga um fram­leiðslu bryn­var­inn...
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
📅 22.10.2026 👁️ 3
Ilhan Omar says 'bizarre' pre-dawn raid on her home is forcing her to move out
The congresswoman said federal agents seized over a dozen items, including cell phones and notebooks, as part of a federal investigation.
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
📅 22.10.2026 👁️ 2
Maður sem vísa átti úr landi settur í gæsluvarðhald svo hann flýi ekki land
Landsréttur staðfesti í gær gæsluvarðhald til 16. nóvember yfir karlmanni sem er grunaður um nauðgun. Hann hefur játað sök að hluta. Illa hefur gengið...
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Á­rásir hófust áður en gallarnir voru lag­færðir - Vísir
Alvarlegir veikleikar fundust í PHP-forritunarmálinu sem er notað fyrir um sjötíu prósent vefsíðna heimsins. Vegna gallanna var fjölmörgum vefsíðum lo...
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 2
Ætlar að halda þing­sætinu þrátt fyrir rann­sókn á svikum - Vísir
Sænsk yfirvöld rannsaka enn tilraunir hóps manns til þess að kaupa atkvæði í Dölunum í Norður-Svíþjóð í þingkosningunum sem fóru fram í síðasta mánuði...
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 3
Margrét Löf vill komast í opið fangelsi - Vísir
Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Margrétar gerir málinu skil í Facebook færslu. Þar gerir hann skóflustungu að nýju fangelsi Stóra-Hrauni að umfjölluna...
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
📅 22.10.2026 👁️ 3
Kröfur ESB um endurnotkun umbúða valda fiskútflytjendum áhyggjum
Um níu milljón einnota frauðplastkassar, fullir af ferskum fiski og ís, eru á hverju ári fluttir út frá Íslandi, aðallega með flugi, til viðskiptavina...
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þetta er það sem Harry Bretaprins sér mest eftir - „Af því að ég er prins!“
Það sem Harry Bretaprins sér hvað mest eftir í lífinu er seinasta símtalið sem hann átti við móður sína, Díönu prinsessu, áður en hún lést í bílslysi ...
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
📅 22.10.2026 👁️ 4
Engin staðfest innbrot vegna öryggisgallans
Engin staðfest innbrot hafa orðið vegna öryggisgallans í PHP-forritunarmálinu að sögn Antons Más Egilssonar, forstjóra netöryggisfyrirtækisins Syndis....
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
📅 22.10.2026 👁️ 3
French weekend protests to be limited to union demos only, says Macron
Some cities including Lyon and Nice have banned all protests, and the French president said only authorised demos would be allowed.
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
📅 22.10.2026 👁️ 4
Wintering in the Canaries with Canada and US Tax ties
Every winter, the Canary Islands draw visitors from much further away than Manchester or Madrid. Canadians escaping frozen mornings and Americans chas...
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
📅 22.10.2026 👁️ 4
Stjórnvöld buðu leigusala næstum þrefalda leigu fyrir að henda leigjendum út og taka inn hælisleitendur í staðinn
Leigusali í Lundúnum segir að fyrirtæki sem útvegar breskum stjórnvöldum húsnæði fyrir hælisleitendur hafi boðið honum 4.500 pund í mánaðarleigu fyrir...
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Andrew Tate fárveikur í fangelsinu og lögmaður biður fólk um að biðja fyrir honum
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot, er að sögn lögmanns hans fárveikur í fangelsi. Biður hann fólk um að biðja fyrir Tate.B...
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
📅 22.10.2026 👁️ 4
Elva Hrönn segir fréttirnar frá París gefa ranga mynd – „Lögreglan í Frakklandi hefur beitt mikilli hörku gagnvart börnum“
Elva Hrönn Hjartardóttir, fjáröflunarstýra hjá Amnesty International, er nýkomin frá París. Hún segir fréttir af borginni í ljósum logum gefa ranga my...
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
📅 22.10.2026 👁️ 4
Telur rök Há­skólans á Akur­eyri ekki hald­bær - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í þremur nýjum skýrslum Ríkisendurskoðunar um stofnanakerfi ríkisins sem kynntar voru fyrir stjórnskipunar- og efti...
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
📅 22.10.2026 👁️ 4
Firefighters rescue man trapped in overturned car in Lanzarote
A man was rescued from an overturned car in Lanzarote yesterday afternoon (Wednesday) after firefighters used hydraulic tools to open the driver’s doo...
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
📅 22.10.2026 👁️ 4
Ríkisstofnunum fækkað um tæpan fimmtung – starfsfólki fjölgar
Ríkisstofnunum hefur fækkað um 18,7% frá því árið 2020 og telur Ríkisendurskoðun stjórnvöld hafa brugðist við að fullu við tveimur af fjórum tillögum ...
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
📅 22.10.2026 👁️ 4
Þorsteinn Már beið lægri hlut gegn Seðlabankanum
Þorsteini Má Baldvinssyni, fyrrverandi forstjóra Samherja, og lögmanni hans tókst ekki að sýna fram á að hann hefði orðið fyrir miska þó að persónuupp...
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
📅 22.10.2026 👁️ 4
How did AI discover the internet's massive cyber-security risk?
The BBC's technology correspondent Joe Tidy explains how it happened, and what it means for you.