Söngkonan Duffy hefur tilkynnt að hún muni halda sína fyrstu tónleika í rúm 15 ár en hún hvarf nánast alfarið úr sviðsljósinu eftir að hafa verið beitt ofbeldi sem hafði áhrif á líf hennar og feril.
Duffy, sem þekktust er fyrir lagið sitt Mercy sem kom út árið 2008, greindi frá því árið 2020 að henni hefði verið byrlað, rænt og beitt kynferðisofbeldi. Í kjölfarið dró hún sig út úr opinberu lífi og tónlistarheiminum um árabil.
Söngkonan virðist nú vera að snúa aftur. Á Instagram greindi hún frá því að hún stefni á að halda fámenna tónleika í London: „Ég held leynilega og persónulega tónleika í London þann 5. júlí í næsta mánuði og það myndi gleðja mig mjög ef einhver ykkar gætu verið með,“ skrifaði hún. Hún tók fram að aðeins takmarkaður fjöldi gesta kæmist að en sagðist jafnframt hlakka mikið til að syngja ný lög.
Duffy varð ein vinsælasta söngkona Bretlands eftir útgáfu Rockferry, sem var mest selda plata ársins 2008 þar í landi. Hún hefur hlotið þrenn BRIT-verðlaun og ein Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína.
Stuttu eftir að hafa gefið út aðra plötu sína, Endlessly, hvarf hún úr augum almennings og tónlistarbransans. Það var ekki fyrr en tíu árum seinna, árið 2020, sem hún opnaði sig um reynsluna sem hún hafði gengið í gegnum.
Fyrr á þessu ári var einnig tilkynnt að Duffy myndi veita sitt fyrsta ítarlega viðtal í heimildarmynd sem verður sýnd á Disney+. Þar muni hún segja nánar frá atburðunum sem leiddu til langrar fjarveru hennar frá tónlistarbransanum. Útgáfudagsetning heimildamyndarinnar hefur ekki verið gefin út.
Þann 19. maí gaf söngkonan einnig sterklega í skyn að ný tónlist væri á leiðinni þegar hún birti mynd úr hljóðveri á Instagram. Með myndinni skrifaði hún að hún hefði saknað aðdáenda sinna mikið og væri að vinna að því að snúa aftur.