Hunangsflugur eru komnar á stjá og drottningar að vakna úr dvala. Ein frekar stúrin skreið um sólpallinn heima hjá Rúnari Snæ Reynissyni fréttamanni á Egilsstöðum á sumardaginn fyrsta.
Hún hresstist við hunangsdropa og saup af áfergju. Þegar hún hafði drukkið nægju sína fór hún að teygja sig og gera æfingar áður en hún tók hún flugið út í sumarið.