Maður hefur verið ákærður fyrir sölu fíkniefna og peningaþvætti. Samkvæmt ákærunni þvættaði hann 15,7 milljónir króna. Einnig fundust á honum háar fjárhæðir í evrum og Bandaríkjadollurum þegar hann var á leið úr landi.
Maðurinn er skráður með lögheimili í Reykjanesbæ en dvalarstað í Póllandi. Þar af leiðandi hefur ekki tekist að birta honum ákæruna og því er hún birt í Lögbirtingablaðinu.
Maðurinn er í fyrsta lagi ákærður fyrir umferðarlagabrot með því að hafa ekið bifreið í Reykjanesbæ án ökuréttinda.
Hann er síðan ákærður fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni með því að hafa í þessari sömu bifreið, í sama skipti og hann ók henni án ökuréttinda, haft í vörslum sínum samtals 0,38 grömm af kókaíni og 189,70 grömm af maríhúana ætluðu til söludreifingar í ágóðaskyni sem lögregla fann og haldlagði við leit í bifreiðinni.
Peningar
Loks er maðurinn ákærður fyrir peningaþvætti með því að hafa á tímabilinu 1. janúar 2022 til 15. júní 2023 aflað og tekið við samtals 15.701.329 krónum en samkvæmt ákærunni var um að ræða ávinning af refsiverðum brotum, þ.m.t. sölu og dreifingu ótiltekins magns fíkniefna og/eða eftir atvikum með öðrum ólögmætum og refsiverðum hætti en peningarnir voru lagðir inn á bankareikninga mannsins hjá Íslandsbanka og Landsbankanum.
Einnig segir í ákærunni að maðurinn hafi verið með í vörslu sinni reiðufé samtals að fjárhæð 10.610 evrur (1,5 milljón íslenskra króna) og 10.995 Bandaríkjadollarar (um 1,4 milljónir íslenskra króna) sem lögregla hafi fundið og haldlagt þegar maðurinn var stöðvaður í flugstöð Leifs Eiríkssonar þann 15. júní 2023, á leið úr landi til Varsjár í
Póllandi. Segir að með háttsemi sinni hafi maðurinn aflað og geymt ávinninginn, flutt hann og leynt upplýsingum um uppruna, eðli, staðsetningu og ráðstöfun hans.
Þess er krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og til greiðslu alls sakarkostnaðar og að fíkniefnin og féð sem fannst á honum í Leifsstöð, auk 80.000 króna, verði gerð upptæk.
Málið verður tekið fyrir við Héraðsdóm Reykjaness í lok júní og mæti maðurinn ekki fyrir dóminn má búast við því að það verði metið sem ígildi játningar.