Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftir­réttinn - Vísir

Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftir­réttinn - Vísir

Dönsuðu uppi á borðum fyrir eftir­réttinn - Vísir

Lára starfar sem forstöðumaður markaðsmála og þjónustuupplifunar hjá Sjóvá og Ásbjörn Daníel Ásbjörnsson er aðstoðarframkvæmdastjóri hjá Fiskkaup. Þau hafa verið saman í átta ár og eiga tvö börn. Blaðamaður ræddi við þau um stóra daginn en þau giftu sig upphaflega við litla athöfn fyrir tveimur árum og voru harðákveðin í að halda stórt teiti síðar.

Það var líf og fjör á brúðkaupsdag hjónanna.Saga Sig

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Þetta er í raun ekki mjög hefðbundin eða rómantísk trúlofunarsaga. Við vorum að spjalla eitt kvöldið þegar við áttum von á okkar öðru barni og sammæltumst um það að við vildum gifta okkur. Skömmu síðar fórum við til sýslumanns, giftum okkur þar og héldum lítið kaffiboð fyrir okkar nánustu. Það var 20. júní 2024.

Dagurinn reyndist mun hátíðlegri og fallegri en við höfðum gert ráð fyrir. Við vissum samt að okkur langaði líka að halda stóra brúðkaupsveislu síðar. Þegar við áttuðum okkur á því að 20. júní væri laugardagur árið 2026 fannst okkur það tilvalið. Á vissan hátt vorum við því að halda upp á tveggja ára brúðkaupsafmæli í sjálfri brúðkaupsveislunni.

Lára og Ásbjörn giftu sig aftur á tveggja ára brúðkaupsafmælinu.Saga Sig

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við byrjuðum að skipuleggja um það bil fyrir ári síðan. Eitt af því fyrsta sem ég gerði var að fara til London með svilkonu minni, mágkonu og tengdamömmu að máta brúðarkjóla. Svilkona mín var líka að fara að gifta sig og það var sérstaklega skemmtilegt að við skyldum báðar finna kjólinn í sömu ferðinni.

Í skipulagningunni nutum við mikillar aðstoðar frá stelpunum hjá Stikkfrí. Þær voru ómetanlegar í gegnum allt ferlið, hjálpuðu okkur að halda utan um öll smáatriðin og gerðu það að verkum að við gátum notið undirbúningsins og veislunnar mun betur.

Hjúin byrjuðu að skipuleggja brúðkaupið fyrir ári og Lára var fljót að finna kjólinn.Saga Sig

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Dagurinn fór fram úr öllum okkar væntingum. Veðurspáin hafði verið ansi tvísýn vikuna á undan en þegar dagurinn rann upp var sól og blíða frá morgni til kvölds.

Ég byrjaði daginn í Makeup Studio Hörpu Kára með mínum nánustu á meðan brúðguminn gerði sig og börnin til heima ásamt sínu fólki. Það gaf okkur báðum rólega og notalega byrjun áður en formleg dagskrá hófst.

Athöfnin var í Fríkirkjunni í Reykjavík þar sem séra Hjörtur Magni Jóhannsson gaf okkur saman. Lúðrasveit lék bæði í athöfninni og tók á móti okkur fyrir utan kirkjuna. Þaðan gengum við ásamt gestunum yfir að Vinnustofu Kjarvals þar sem boðið var upp á fordrykk á meðan við fórum í myndatöku.

Leifur og teymið hans buðu upp á dásamlegan mat og veislustjórarnir komu stuðinu heldur betur í gang. Tónlistaratriðin voru frábær og það var í raun bara geggjuð stemning frá upphafi til enda. Við hefðum ekki getað óskað okkur betri dags.

Hjónin hefðu ekki getað óskað sér betri dag.Saga Sig

Hvar hélduð þið brúðkaup? Var erfitt að ákveða staðsetningu?

Athöfnin var í Fríkirkjunni í Reykjavík og veislan á La Primavera, sem er uppáhalds veitingastaður okkar beggja á Íslandi. Eftir að hafa ákveðið að halda brúðkaupið hér heima var valið í raun frekar einfalt fyrir okkur.

Lúðrasveit leiddi gesti áfram eftir athöfnina.Saga Sig

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, langoftast. Auðvitað voru nokkur atriði sem við ræddum aðeins fram og til baka, en við vorum sammála um það sem skipti mestu máli.

Hjónin voru að mestu leyti sammála í skipulaginu.Saga Sig

Hvað fannst ykkur mikilvægast?

Okkur fannst mikilvægast að brúðkaupið væri í okkar anda og að gestum liði eins og þau væru hluti af veislunni. Þegar fólk var komið upp á borð að dansa áður en eftirrétturinn var borinn fram vissum við að markmiðinu hafði verið náð. Maturinn var líka algjörlega frábær, enda við engu öðru að búast.

Fólk var byrjað að dansa snemma!Saga Sig

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Héðan og þaðan. Maður safnar alltaf hugmyndum úr brúðkaupum og veislum sem maður hefur sjálfur farið í. Ég eyddi líka ófáum klukkutímum á Pinterest og TikTok að safna innblæstri, en grunnhugmyndin var alltaf skýr: íslenskt sumarkvöld með áhrifum frá Norður-Ítalíu.

Elín Edda Þorsteinsdóttir, grafískur hönnuður, hjálpaði okkur svo að útfæra þá hugmynd í boðskortum, matseðlum og öðrum skreytingum. Það skipti okkur miklu máli að það væri fallegt samræmi í öllu og hún náði því fullkomlega.

Öll smáatriði upp á tíu.Saga Sig

Hvað stendur upp úr?

Gangan frá Fríkirkjunni að Vinnustofu Kjarvals með lúðrasveitina í fararbroddi stendur sérstaklega upp úr. Að ganga í gegnum miðbæinn í sólskininu, með fjölskyldu og fólkið okkar allt í kringum okkur, var ótrúlega sérstakt augnablik. Það setti tóninn fyrir restina af deginum.

Að ganga með lúðrasveitinni í sólinni stóð upp úr.Saga Sig

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Vinir okkar, Andri Steinn Hilmarsson og Júlíana Sara Gunnarsdóttir, sáu um veislustjórnun og gerðu það alveg ótrúlega vel. Þau lögðu rosalega mikinn metnað í þetta og það sást alveg.

Hipsumhaps söng nokkur vel valin lög í kirkjunni og Tríóið fjarkar spiluðu yfir fordrykknum á meðan gestir nutu sólarinnar við höfnina á bak við Marshall.

Eftir desert kom Inspector Spacetime dansgólfinu í gang. Birnir tók svo við og þá sprakk stemningin alveg. DJ Hermigervill og Ívar héldu svo áfram og það var dansað alveg fram að lokun.

Stemningin var engri lík.Saga Sig

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Dagurinn sjálfur fór nánast nákvæmlega eins og við höfðum vonast til. Það sem kom okkur helst á óvart var hins vegar hversu mikil vinna felst í því að skipuleggja brúðkaup. Það eru ótrúlega mörg atriði sem þarf að huga að og mikil vinna að koma þessu í kring.

Það er mikil vinna að skipuleggja brúðkaup en afraksturinn vel þess virði.Saga Sig

Hvað voru margir gestir?

Tæplega 160 gestir.

Lára og Ásbjörn fögnuðu með tæplega 160 vinum.Saga Sig

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Brúðarkjóllinn fannst í London eins og áður sagði. Ég hafði skoðað ótal myndir á Pinterest og TikTok og var sannfærð um að ég vissi nákvæmlega hvernig kjól ég vildi. Svo endaði ég á að velja allt aðra týpu en ég hafði séð fyrir mér. Það virðist vera frekar algengt og ég myndi því ráðleggja öllum að mæta í mátun með opinn huga.

Ásbjörn og sonur okkar létu sérsauma jakkaföt hjá Suitup og voru í stíl hvor við annan. Dóttir okkar var svo í fallegum, einföldum kjól frá Loforði.

Lára fann draumakjólinn snemma í London.Saga Sig

Varstu með fataskipti og varstu löngu búin að ákveða það?

Já, ég skipti yfir í partýkjól fyrir eftirréttinn. Ég var reyndar alls ekki búin að ákveða fyrirfram hvort eða hvenær ég myndi skipta um kjól og var meira að segja með þrjá kjóla með mér. Þegar ég sá hversu mikil stemning var komin á dansgólfið ákvað ég að fara í þann sem auðveldast var að dansa í. Það reyndist mjög góð ákvörðun.

Lára í trylltum partýkjól.Saga Sig

Fór mikill tími í að ákveða og undirbúa hár og förðun og hvernig var ferlið?

Í raun ekki. Ég fór í prufugreiðslu hjá Huldu Soffíu á Blondie í Garðabæ og við hittum strax réttu greiðsluna. Frænka mín, Katrín Árnadóttir, sem er förðunarfræðingur, sá um förðunina. Ég treysti henni fullkomlega og við vildum hafa útlitið náttúrulegt og tímalaust. Það passaði fullkomlega við kjólinn og heildarútlitið.

Lára var með einfalda en fallega greiðslu og förðun. Það var fjör að gera sig til með vinkonunum.Saga Sig

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Reyna að njóta dagsins eins mikið og hægt er. Það hljómar eins og klisja, en dagurinn líður ótrúlega hratt og svo margt að taka inn. Góður ljósmyndari er líka hverrar krónu virði. Saga Sig tók myndir hjá okkur og var algjörlega frábær. 

Við fengum auk þess Elísabetu Mettu hjá Memoria Content til að taka upp myndbönd frá deginum og það er ótrúlega dýrmætt að eiga þær minningar líka. Myndirnar fanga augnablikin en myndböndin ná svo vel utan um stemninguna, hljóðin og litlu augnablikin.

Lára segir ómetanlegt að eiga góðar myndir og myndbönd frá deginum.Saga Sig

Ætlið þið í brúðkaupsferð?

Ekki strax. Við erum að vísu núna í Portúgal í smá fjölskyldufríi og njótum þess. Brúðkaupsferðin bíður okkar því aðeins síðar.

Brúðhjónin fóru með börnunum sínum til Portúgal eftir brúðkaupið en ætla seinna meir í brúðkaupsferð.Saga Sig
#borðum #dönsuðu #eftirréttinn #fyrir #uppi


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262909115d/donsudu-uppi-a-bordum-fyrir-eftir-rettinn

📰 Aðrar fréttir

Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
📅 16.10.2026 👁️ 0
Maður sem lést af völdum tígrisdýrs hafði áður farið í geðrof
Maðurinn sem lést þegar hann klifraði ofan í gryfju tígrisdýrs í dýragarði í Yorkshire á Englandi hafði lengi glímt við geðræn vandamál.Breska ríkisút...
Met needs to move away from criminalising sex workers, officers say after Levy failings
📅 16.10.2026 👁️ 0
Met needs to move away from criminalising sex workers, officers say after Levy failings
The force is piloting a two-officer female team in north London to engage with street sex workers, in a bid to improve trust.
Watch: Will disenchanted Iowa Republicans reject Trump in the midterms?
📅 16.10.2026 👁️ 2
Watch: Will disenchanted Iowa Republicans reject Trump in the midterms?
The BBC's Sarah Smith travelled across the state ahead of the midterms, as the president faces political headwinds.
65 handteknir í háværum mótmælum námsmanna í Albaníu
📅 16.10.2026 👁️ 3
65 handteknir í háværum mótmælum námsmanna í Albaníu
Róstusöm mótmæli námsmanna í Albaníu hafa dreift úr sér frá höfuðborginni, Tirana, til smærri borga, en þeir hafa nú í þrjá daga krafist afsagnar fors...
Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín
📅 16.10.2026 👁️ 3
Trump segir Zelensky erfiðari að eiga við en Pútín
Donald Trump Bandaríkjaforseti kallar árásir Úkraínu á olíuhreinsunarstöðvar í Rússlandi „hneisu“. Þetta sagði forsetinn fyrir skemmstu í viðtali hjá ...
Fimm Norðmenn handteknir fyrir að svíkja fé af NATO
📅 16.10.2026 👁️ 3
Fimm Norðmenn handteknir fyrir að svíkja fé af NATO
Fimm menn voru handteknir nærri Björgvin í Noregi á miðvikudaginn og hafa þeir verið ákærðir fyrir fjársvik gagnvart Atlantshafsbandalaginu.Mennirnir ...
Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að misnota börn
📅 16.10.2026 👁️ 3
Stjórnmálamaður dæmdur fyrir að misnota börn
Norðurírski stjórnmálamaðurinn Jeffrey Donaldson hefur verið dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir kynferðislega misnotkun á börnum, þar af eina nauðgun. Þá ...
Three children and teacher killed by 16-year-old at Oregon primary school
📅 16.10.2026 👁️ 3
Three children and teacher killed by 16-year-old at Oregon primary school
The suspect was shot dead by a local community member who followed him into the school, said police.
Children and teacher killed in Oregon primary school shooting
📅 16.10.2026 👁️ 3
Children and teacher killed in Oregon primary school shooting
The suspect was shot dead by a community member who followed him into the Oregon school, police said.
Same-day test helps doctors detect hidden infections in critically ill children
📅 16.10.2026 👁️ 3
Same-day test helps doctors detect hidden infections in critically ill children
Metagenomics offers a new way of detecting infections in intensive care patients.
Gripinn á flugvelli með 90 skriðdýr í farteskinu
📅 16.10.2026 👁️ 3
Gripinn á flugvelli með 90 skriðdýr í farteskinu
Maður var í gær gripinn á flugvellinum í Bonn í Þýskalandi með meira en 90 eðlur og eitursnáka meðferðis.Maðurinn er sagður vera 45 ára mexíkóskur rík...
Nálgist neyðar­á­stand - Vísir
📅 16.10.2026 👁️ 3
Nálgist neyðar­á­stand - Vísir
„Við höfum í raun og veru haft töluverðar áhyggjur af þessu máli núna um nokkurt skeið og við töldum okkur í raun og veru vera komin í þá stöðu að það...
Reform faces questions over candidate vetting after undercover filming
📅 15.10.2026 👁️ 3
Reform faces questions over candidate vetting after undercover filming
Reform UK says the party has "improved and prioritised its vetting procedures".
CJP, Abhijeet Dipke: India's 'cockroach' protesters set to return despite police crackdown
📅 15.10.2026 👁️ 3
CJP, Abhijeet Dipke: India's 'cockroach' protesters set to return despite police crackdown
The youth-led movement plans a fresh Delhi protest after mass detentions last week and the jailing of two leaders.
Porn showing choking or incest to be banned from early November, government says
📅 15.10.2026 👁️ 3
Porn showing choking or incest to be banned from early November, government says
The move follows a review into pornography regulation in 2025 by Conservative peer Baroness Gabby Bertin
Sparks fly at the Celebrity Traitors round table and a 'terrifying' death march
📅 15.10.2026 👁️ 3
Sparks fly at the Celebrity Traitors round table and a 'terrifying' death march
The celebrities turn on each other at the round table, and have to beat the death marchers for their mission.
Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin
📅 15.10.2026 👁️ 3
Ný rannsókn varpar ljósi á hættuna við að borða seint á kvöldin
Það getur verið freistandi að fá sér eitthvað gott í gogginn áður en haldið er til náða. Ný rannsókn bendir hins vegar til þess að þessi hversdagslegi...
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki
📅 15.10.2026 👁️ 3
Tuga milljóna kröfu brottrekins flugmanns hafnað - Rekinn vegna drykkju og hegðunarvandamála - Umdeild ADHD-greining dugði ekki
Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjaness sem hafnaði kröfu manns, sem vikið var úr starfi sínu sem flugmaður, um 78,9 milljóna króna bætur...
Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon - Vísir
CBS News greinir frá þessu. Yfirvöldum barst tilkynning um að skoti hefði verið hleypt af inn í bíl fyrir utan grunnskólann klukkan 12:59 að staðartím...
Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjöl­farið - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjöl­farið - Vísir
Þetta segir Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson í pistli sem birtist á Vísi í morgun. Þar opnar hann sig um eigin missi til að vekja athygli á tveimur við...
Þrjú börn látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon
📅 15.10.2026 👁️ 3
Þrjú börn látin eftir skotárás í grunnskóla í Oregon
Fjórir er látnir, þar af þrjú börn, eftir skotárás í grunnskóla í Oregon-fylki í Bandaríkjunum í kvöld. Að minnsta kosti tveir voru fluttir alvarlega ...
Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hagar hækka afkomuspá um 800 milljónir
Annar ársfjórðungur í rekstri Haga hf. var umfram væntingar og afkomuspá fyrir rekstrarárið 2026-2027 hefur verið hækkuð um 800 milljónir króna. Þetta...
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
📅 15.10.2026 👁️ 3
Dæmdur fyrir að flytja inn lítt þekkt efni sem hann taldi vera löglegt
Héraðsdómur Vesturlands hefur sakfellt mann fyrir brot á lögum um ávana- og fíkniefni. Flutti maðurinn efni til landsins sem er líklega ekki mikið þek...
Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Þakk­lát fyrir að vera á lífi eftir að járn­plata flaug inn líkt og hnífur - Vísir
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegginn og þvert yfir íb...
Lentu aftur í ó­förum - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Lentu aftur í ó­förum - Vísir
Svo virðist sem að þakplata hafi losnað af iðnaðarhúsi í næstu götu og lent á húsinu með svo miklu afli að hún fór í gegnum útvegg og þvert yfir íbúði...
Bus hits train stopped on French side of  Channel Tunnel, with 19 injured
📅 15.10.2026 👁️ 3
Bus hits train stopped on French side of Channel Tunnel, with 19 injured
Two people were severely injured and evacuated by helicopter but no one's life appeared to be in danger, officials said.
Sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja
📅 15.10.2026 👁️ 3
Sárt að horfa upp á Trump velja nýjan samherja
Samband forseta Úkraínu og Bandaríkjanna hefur súrnað síðustu vikuna eftir að Trump samdi við Pútín um kaup á dísilolíu. Þegar Úkraínuforseti gagnrýnd...
„Bara 15. októ­ber og við erum auð­vitað uggandi yfir vetrinum“ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Bara 15. októ­ber og við erum auð­vitað uggandi yfir vetrinum“ - Vísir
Í tilkynningu frá Vegagerðinni í gær kom fram að ölduhæð myndi ná hámarki um klukkan 21 í gær og að við svipaðar aðstæður í desember í fyrra hefði flæ...
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Segir stærsta óvin sinn stundum hafa verið sjálfan sig og eigið sjálfstal: „Virði mitt er annað og meira heldur en bara tónlistarmaðurinn Friðrik Dór“
Friðrik Dór Jónsson hefur farið mikinn í íslensku tónlistarlífi á rúmlega 15 ára tónlistarferli. En þótt hittarnir hafi verið margir hefur leiðin ekki...
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans
📅 15.10.2026 👁️ 3
Segir innri vanda þingflokks Viðreisnar alvarlegan og að Þorgerður Katrín hafi ekki hlustað á áhyggjur hans
Um fátt hefur verið fjallað meira í fréttum dag en óvænta úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar. Jón var í viðtali við Kastljós á RÚV nú í kvöld ...
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði
📅 15.10.2026 👁️ 3
Fiskeldi gæti skapað 10 til 15 störf á Seyðisfirði
Áformum Kaldvíkur um sjókvíaeldi í Seyðisfirði hefur verið mótmælt og samkvæmt skoðanakönnun er meirihluti íbúa þar mótfallinn fiskeldi í firðinum. Lí...
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“
Hvetur ríki til að binda enda á „stríðið gegn náttúrunni“ Alþjóð­leg skýrsla segir að stefna stjórn­valda dugi ekki til að vernda 30 pró­sent lands og...
Why Harry and Meghan's UK relaunch felt so much like a royal engagement
📅 15.10.2026 👁️ 3
Why Harry and Meghan's UK relaunch felt so much like a royal engagement
The Duchess of Sussex has not done anything like the day of events in Nottingham for several years on British soil.
„Sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum“
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Sætti mig ekki við að vera í óheilbrigðum aðstæðum“
Jón Gnarr þingmaður segir að langvarandi skortur hafi verið á skýrri forystu innan þingflokks Viðreisnar.Hann sagði sig í dag úr þingflokki Viðreisnar...
London suburban housing project wins top UK architecture award
📅 15.10.2026 👁️ 3
London suburban housing project wins top UK architecture award
Lion Green Road in Coulsdon was recognised for the way it responds to its surroundings.
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar
📅 15.10.2026 👁️ 3
Segir ljóst að Jón hafi einn þorað að tala opinberlega um það sem sé altalað innan Viðreisnar
Össur Skarphéðinsson fyrrum formaður og ráðherra Samfylkingarinnar segir ljóst að úrsögn Jóns Gnarr úr þingflokki Viðreisnar sé mikið áfall fyrir flok...
Hvað veistu um… þjóð­veginn frá Reykja­vík til Akur­eyrar? - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Hvað veistu um… þjóð­veginn frá Reykja­vík til Akur­eyrar? - Vísir
Á leiðinni er margt og mikið sem ber fyrir augu: opið útsýni, fjöll, firðir, sveitir, ár og vötn, auk einhverra þéttbýlisstaða og víðáttumikilla heiða...
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband
📅 15.10.2026 👁️ 3
Úrsögn Jóns úr þingflokknum sé líkt og opið hjónaband
Ólafur Þ. Harðarsson, prófessor emiritus í stjórnmálafræði, segir úrsögn Jóns Gnarrs úr þingflokki Viðreisnar hafa komið á óvart, atburðarrásin sé óve...
Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Spurði um úr­sögn Jóns fyrir hálfu ári - Vísir
Snorri reyndist auðvitað að hluta til sannspár en í dag tilkynnti Jón Gnarr að hann segði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur þó ekki sagt sig úr...
Snorri reyndist að hluta til sann­spár um ör­lög Jóns - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
Snorri reyndist að hluta til sann­spár um ör­lög Jóns - Vísir
Snorri reyndist auðvitað að hluta til sannspár en í dag tilkynnti Jón Gnarr að hann segði sig úr þingflokki Viðreisnar. Hann hefur þó ekki sagt sig úr...
Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ
📅 15.10.2026 👁️ 3
Telur nokkuð ljóst að hún verði ekki kjörinn varaforseti ASÍ
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Halla Gunnarsdóttir formaður VR bjóða sig báðar fram í embætti fyrsta varaforseta Alþýðusambands Íslands ...
„Auð­vitað er þessi at­burða­rás ekki mjög sam­einandi“ - Vísir
📅 15.10.2026 👁️ 3
„Auð­vitað er þessi at­burða­rás ekki mjög sam­einandi“ - Vísir
Þetta sagði Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, í samtali við fréttastofu skömmu eftir að tillaga miðstjórnar Alþýðusambands Íslands um að fækka varafor...
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínunnar eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Afhjúpa símtalið til Neyðarlínunnar eftir að leikkonan fannst meðvitundarlaus - „Guð minn góður“
Leikkonan Hayden Panettiere fannst látin í Greenville í Suður-Karólínu þann 16. ágúst sl. Samkvæmt skýrslu dánardómstjóra lést hún af slysförum vegna ...
Maðurinn sem yfirbugaði farþegann agndofa yfir framburði hans – „Þá er hann sjúkur maður“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Maðurinn sem yfirbugaði farþegann agndofa yfir framburði hans – „Þá er hann sjúkur maður“
Maður sem yfirbugaði og fjötraði farþega um borð í flugi Icelandair frá Baltimore til Keflavíkur 27. desember árið 2023 bar vitni í réttarhöldum yfir ...
Lenti í vanda vegna ferðamanna frá Ísrael og Palestínu - „Hvað á maður að gera í svona aðstæðum?“
📅 15.10.2026 👁️ 3
Lenti í vanda vegna ferðamanna frá Ísrael og Palestínu - „Hvað á maður að gera í svona aðstæðum?“
Þórarinn Leifsson teiknari, rithöfundur og leiðsögumaður greinir frá því í færslu á Facebook að hann hafi lent í töluverðum vandræðum með hóp ferðaman...
Komu að húsi sínu gjörónýtu eftir veðurofsann
📅 15.10.2026 👁️ 3
Komu að húsi sínu gjörónýtu eftir veðurofsann
Fjölmörg handtök eru framundan á Siglufirði næstu daga við að meta tjón og taka til eftir óveðrið sem gekk þar yfir í gær. Þök fuku af þremur húsum og...
Streeting hvetur Bandaríkin til að styðja Úkraínu áfram
📅 15.10.2026 👁️ 3
Streeting hvetur Bandaríkin til að styðja Úkraínu áfram
Varnarmálaráðherra Bretlands hvetur Bandaríkin til að styðja við Úkraínu. Spenna milli Bandaríkjanna og Úkraínu hefur aukist vegna olíukaupa Bandaríkj...
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
📅 15.10.2026 👁️ 4
Fimm verkefnastjórar fengu störf sín aftur eftir uppsagnir
Fimm verkefnastjórum sem hafði verið sagt upp hjá Reykjavíkurborg var boðið starf sitt aftur. Fjórir þeirra fengu boð um tímabundna ráðningu.Stöðurnar...
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
📅 15.10.2026 👁️ 4
Dudus barði Diddy í fangelsinu – Á sjúkrahús með höfuðáverka
Eiturlyfjabarón sem er kallaður Dudus veitti Diddy alvarlega höfuðáverka í slagsmálum í fangelsi í New Jersey. Var hann reiður reiður rapparanum vegna...
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
📅 15.10.2026 👁️ 4
Hrunamannahreppur er sveitarfélag ársins 2026
Sveitarfélag ársins er árleg viðurkenning sem byggir á starfsánægju og starfsumhverfi starfsfólks sveitarfélaga. Gallup framkvæmir könnunina og Mannau...