Bókun 35 í samningnum um Evrópska efnahagssvæðið gæti orðið að dómsmáli á næstunni. Etirlitsstofnun EFTA (ESA) undirbýr nú svokallað samningsbrotamál sem rekið yrði fyrir EFTA dómstólnum.
Íslensk stjórnvöld hafa í nokkurn tíma verið meðvituð um undirbúning þessarar málshöfðunar ESA. Stofnunin er nánast tilbúin með svokallað samningsbrotamál, sem snýst, eins og nafnið bendir til, um meint brot á samningnum um Evrópska efnahagsvæðið; að Ísland hafi ekki tekið upp bókun 35, sem felur í sér að í íslensku lagaumhverfi séu til staðar lög sem tryggi að innleiddar EES-reglur sem snerta innri markaðinn, gangi framar öðrum íslenskum lögum, þegar þetta tvennt stangast á, nema Alþingi hafi tekið skýrt fram að svo sé ekki.
Almenn regla um þetta var tekin upp á Íslandi 1994, í tengslum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið. En árið 2011 staðfesti Hæstiréttur að sú regla dygði ekki til.
ESA hóf að gera athugasemdir gagnvart íslenskum stjórnvöldum árið 2017 og sendi formlegt álit þremur árum síðar, en hefur til þessa ekki höfðað samningsbrotamál.
Samningsbrotamálið hefur verið í undirbúningi hjá ESA að undanförnu, en hefur samkvæmt upplýsingum fréttastofu verið í biðstöðu síðustu mánuði vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar um síðustu helgi.
Þrisvar lagt fram á Alþingi
Frumvarp um bókun þrjátíu og fimm hefur þrisvar verið lagt fram á Alþingi, fyrst í mars 2023 af þáverandi utanríkisráðherra, Þórdísi Kolbrúnu Gylfadóttur, og svo tvisvar í tíð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur núverandi utanríkisráðherra, í febrúar í fyrra, og svo aftur fyrir tæpu ári.
Alþingi kemur saman 10. september, og talið er nokkuð víst að frumvarpið verði á þingmálalista ríkisstjórnarinnar. Það gæti haft áhrif á ákvörðun ESA um að draga íslensk stjórnvöld fyrir EFTA dómstólinn.