Gegn þessu skuldbatt Trump sig til að láta niður falla tíu milljarða dala lögsókn sína gegn skattinum.
Dómarinn Kathleen Williams sagði í úrskurði sínum að málið væri allt hið ótilhlýðilegasta. Fyrir það fyrsta hefi það aldrei snúist um að fá lagalega niðurstöðu í deilu.
Báðir aðilar væru sama megin borðsins, þar sem stofnanirnar sem gengu að samkomulaginu við Trump væru undir hans stjórn.
Þá benti dómarinn á að Trump hefði ekki gengið á eftir málinu fyrr en hann komst aftur í Hvíta húsið og kom fyrrverandi lögmönnum sínum til valda í dómsmálaráðuneytinu.
Trump höfðaði upphaflega málið eftir að skattagögnum hans var lekið en lekinn leiddi ljós að hann hefði aðeins greitt 750 dollara í tekjuskatt árið 2016, þegar hann varð forseti, og ekki dollar í tíu af fimmtán árum þar á undan.