Djammari handtekinn í miðbænum

Lögreglumenn við störf
Mynd: Aðsend
Karlmaður í kringum þrítugt var handtekinn á skemmtistaðnum Dubliner rétt eftir hálf 11 í gærkvöldi.
Að sögn vitna hafði karlmaðurinn verið að rífast við konu, sennilega kærustu sína, og að hann hafi ýtt við henni. Í kjölfarið hafi dyraverðir stokkið á manninn og snúið hann niður en vitnin sögðu bæði karlmanninn og konuna hafa verið nokkuð full.
Skömmu síðar kom lögreglan á svæðið og handjárnaði manninn. Hins vegar telja vitnin að dyraverðirnir hafi hugsanlega brugðist of harkalega við og hefði mátt afgreiða málið án aðkomu lögreglu.
Þegar maðurinn var leiddur út í lögreglubíl sagði hann að handtakan væri brot á lögreglusamþykkt án þess að fara nánar út í það. Konan var að sögn vitna í miklu uppnámi og bað lögregluna um að sleppa manninum.