Davíð Þór Jónsson hlaut í vikunni viðurkenningu úr Minningarsjóði Kristjáns Eldjárns gítarleikara. Var þetta í 16. sinn sem úthlutað var úr sjóðnum, sem ætlað er að verðlauna framúrskarandi tónlistarmenn, og er Davíð Þór 21. tónlistarmaðurinn sem er heiðraður með þessum hætti. Sjóðurinn var stofnaður af fjölskyldu Kristjáns Eldjárns, vinum og samstarfsfélögum til minningar um Kristján sem lést tæplega þrítugur að aldri árið 2002.
Í rökstuðningi fyrir vali ársins kemur fram að Davíð Þór skipi „einstakan sess í íslensku tónlistarlífi og þótt víðar væri leitað. Tónlistariðkun hans smýgur undan skilgreiningum; hann er píanóleikari, tónskáld, gríðarlega fjölhæfur hljóðfæraleikari, spuna- og gjörningalistamaður, útsetjari og hljómsveitarstjóri sem á að baki ótrúlega fjölbreytt samstarf við stóran hóp fólks úr öllum geirum og þvert á listgreinar.
Hann hefur samið tónlist fyrir kvikmyndir, leikhús, dans- og myndlistarsýningar og tónleikasalinn í allri sinn víðfeðmu mynd, unnið með ljóðasöngvurum og sinfóníuhljómsveitum, rokksveitum og raftónlistarmönnum, djass- og blústónlistarmönnum, orgelleikurum, karlakórum og áfram má telja en í litskrúðugum hópi samstarfsfólks má finna Ragnar Kjartansson, Skúla Sverrisson og Ólöfu Arnalds, Sigrúnu Hjálmtýsdóttur, ADHD, Víking Heiðar Ólafsson, Guðmund Pétursson, Benedikt Erlingsson, Ilmi Stefánsdóttur og Val Frey Einarsson. Úr þessum síkvika og magnaða suðupotti sækir Davíð Þór áhrif og innblástur og veitir inn í sína einstöku tónlistarsköpun sem á engan sinn líka.
Davíð Þór hefur lifað og hrærst í tónlist frá blautu barnsbeini; hann nam við Tónlistarskólann á Akranesi og síðar við Tónlistarskóla FÍH þaðan sem hann útskrifaðist vorið 2001 með láði. Hann hefur um áratugaskeið verið einn mikilvirkasti og fjölhæfasti liðsmaður íslensks tónlistarlífs og komið fram á óteljandi tónleikum og tónlistarhátíðum, hérlendis og vítt og breitt um heiminn. Hann hefur sinnt kennslu, vinnusmiðjum, námskeiðshaldi og haldið fyrirlestra við MÍT, LHÍ og tónlistarskóla víða um land,“ segir í rökstuðningnum.



