Ástralski leikarinn og bardagalistamaðurinn Richard Norton, sem lék meðal annars á móti Chuck Norris og Jackie Chan í kvikmyndum á löngum ferli sínum, lést í mars á síðasta ári eftir að hafa tekið tvöfaldan skammt af peptíðum sem læknir hafði ávísað honum.Dánardómstjóri í Ástralíu hefur komist að þeirri niðurstöðu að sprauta sem leikarinn gaf sjálfum sér og innihélt peptíð sem ekki höfðu hlotið markaðsleyfi hafi orðið honum að bana.
Dauði þekkts Hollywood-leikara rakinn til of stórs skammts af peptíðum