Búist er við að þúsundir danskra ungmenna mótmæli í dag áformum stjórnvalda um að skera niður ríkisstyrki til náms. Samtök menntaskóla- og háskólanema og ungmennasamtök stjórnmálaflokka ætla að safnast saman á ráðhústorginu klukkan hálf tólf að íslenskum tíma og ganga saman að þinghúsinu.
Þrjátíu þúsund nemar í fjörutíu framhaldsskólum víðsvegar um Danmörku taka þátt í mótmælunum með því að leggja niður störf.
Herða skilyrði fyrir ríkisstyrkjum til náms
Ríkisstjórnin vill fella niður ríkisstyrk til 81 þúsund námsmanna sem búa heima hjá foreldrum sínum sem hafa meira en 420 þúsund danskar krónur á ári í tekjur fyrir skatt. Það eru nærri 7,9 milljónir íslenskra króna.
Námsstyrkir til stúdenta sem búa hjá foreldrum með tekjur á milli 420 -710 þúsund krónur á ári fyrir skatt verða lagðir af í áföngum.
Þar að auki hefur ríkisstjórnin kynnt skilyrði sem námsmenn verða að uppfylla eftir útskrift til þess að eiga kost á atvinnuleysisbótum. Þeir verða að vinna að meðaltali fjórar klukkustundir á viku átján mánuði af síðustu tveimur námsárunum til þess að geta fengið atvinnuleysisbætur eftir útskrift.
Námsmenn hafa mótmælt þessu og sagt að þeir hefðu þá minni tíma fyrir undirbúning og heimanám.
Oscar Tønsberg Hoffmann, fulltrúi Landssamtaka danskra menntaskólanemenda, DGS, seir í samtali við Danska ríkisútvarpið að þetta sé ekki rétti staðurinn fyrir ríkið til að spara. „Við höfum reynt að ræða við ráðherra en ekki komist að. Við erum að boða þessi mótmæli til að sýna hversu svekkt mörg ökkar erum yfir þessum áformum. Við raunverulega getum ekki trúað því að þeir séu meðvitaðir um það,“ segir hann.
„Það er ljóst að stúdentar verða að vinna meira með námi og sá tími sé tekinn frá þeim tíma sem annars færi í undirbúning og heimanám.“