Danska ríkisstjórnin hyggst leggja fram lagafrumvarp í febrúar sem mun banna notkun á búrkum, níqab og annars klæðnaðar sem hylur andlit kvenna í öllum menntastofnunum landsins, allt frá grunnskólum til háskóla.
Tillagan felur í sér að gildandi bann við klæðnaði sem hylur andlit fólks á almannafæri, sem tók gildi árið 2018, verði breikkað þannig að það nái einnig til kennslustofa og annarra menntastofnana.
„Búrka, níqab eða annar klæðnaður sem hylur andlit fólks á ekkert erindi í danskar kennslustofur. Nú þegar gildir bann við slíkum klæðnaði á almannafæri og það á að sjálfsögðu einnig að gilda á menntastofnunum,“ sagði Rasmus Stoklund, innflytjenda- og aðlögunarmálaráðherra Danmerkur.
Segja bannið styðja stúlkur og konur með innflytjendabakgrunn
Samkvæmt ráðherranum er markmið lagabreytingarinnar meðal annars að styðja stúlkur og konur með innflytjendabakgrunn sem búa við svokallaða „heiðurstengda“ félagslega kúgun og íhaldssöm menningarleg viðmið.
„Með þessu lagafrumvarpi sendum við skýr skilaboð til stúlkna og kvenna úr innflytjendasamfélögum um að við stöndum með þeim í baráttunni gegn heiðursmenningu og úreltum samfélagslegum viðmiðum,“ sagði Stoklund.
Tillagan byggir á ráðleggingu frá dönsku nefndinni Kommissionen for den glemte kvindekamp (Nefnd um kvennabaráttu), sem lagði fyrr á þessu ári til að bannið yrði útvíkkað til menntastofnana.
Gildir frá grunnskólum til háskóla
Bannið mun ná til allra skóla í Danmörku, þar á meðal grunnskóla, framhaldsskóla og háskóla.
Frá árinu 2018 hefur verið óheimilt að bera klæðnað sem hylur andlit fólks á almannafæri í Danmörku, nema sérstakar ástæður liggi fyrir.
Nefndin sem lagði fram tillöguna var stofnuð árið 2022 og hefur áður vakið mikla umræðu með tillögum sínum, meðal annars um að banna slæður í dönskum grunnskólum.
Meðal annarra tillagna nefndarinnar eru hertar aðgerðir gegn félagslegri kúgun og aukið eftirlit með íslömskum einkaskólum í Danmörku.
Danska ríkisstjórnin hefur nú ákveðið að fylgja ráðleggingum nefndarinnar hvað varðar búrkubannið og hyggst leggja frumvarpið fyrir danska þingið á næstu mánuðum.